Samið við Guð í Grindavík

Ferm­ing­ar­ár­gang­ur barna sem bjuggu í Grinda­vík þeg­ar bær­inn var rýmd­ur tel­ur sex­tíu börn. Ekk­ert þeirra býr enn í bæn­um. Nú er tæp­ur helm­ing­ur hóps­ins mætt­ur og troð­fyll­ir kirkj­una með fjöl­skyld­um sín­um.

Samið við Guð í Grindavík
HnúturinnHjálpin er nær þegar setja þarf upp bindi fyrir athöfn.
ÖmmustrákarnirSólveig Ólafsdóttir heilsar tvíburabarnabörnum sínum, þeim Einari Þór og Eiríki Óla sem sitja rólegir fyrir athöfn með tvo vini á milli sín.
MömmukossMargrét Kristín Pétursdóttir kyssir dóttur sína, Kamillu Kristínu, fyrir athöfn.

Það er eitthvað í loftinu í Grindavík. Óveðurslægðir hafa gengið yfir hver af annarri en að morgni pálmasunnudags er stillt veður, bjart og fallegt. Dagana á undan hafa verktakar á fjöltonna skurðgröfum unnið upp við íþróttahúsið við að fylla upp í risastóru sprungurnar sem árið 2023 rifu bæinn og líf íbúanna í sundur. Handan götunnar ganga nú prúðbúin börn og fjölskyldur þeirra til óskaddaðrar Grindavíkurkirkju. Þau eru komin heim til að gera samning við himnaföðurinn, en sérstaklega til að halda í ræturnar og vinskapinn.

Sr. Elínborg Gísladóttir á tuttugu ára starfsafmæli sem sóknarprestur í Grindavík í haust. Hér hefur …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár