„Það hentar þeim ekki að almenningur í landinu vakni“

Þor­gerð­ur Katrín Gunn­ars­dótt­ir ut­an­rík­is­ráð­herra seg­ir Sjálf­stæð­is­flokk og Mið­flokk beita áróðri gegn Evr­ópu­sam­bands­að­ild sem komi beint úr hand­bók Nig­el Fara­ge. Segi þjóð­in „já“ geti Ís­land orð­ið að­ild­ar­ríki í árs­lok 2028 en ef „nei“ verð­ur svar­ið komi það til kasta Al­þing­is að draga um­sókn­ina frá 2009 til baka.

„Það hentar þeim ekki að almenningur í landinu vakni“
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Utanríkisráðherra segir það munu hafa afdrifaríkar afleiðingar fyrir almenning ef „nei“ verður niðurstaðan í þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið. Mynd: Golli

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra telur að það muni taka tvö ár að klára aðildarviðræður við Evrópusambandið samþykki kjósendur í þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst að halda áfram viðræðum. Hún segist vongóð um góða niðurstöðu í samningi við ESB um sjávarútvegsmál, engar áhyggjur hafa af orkumálunum og telur að mikil tækifæri felist í landbúnaðarkaflanum. Allt tal um framsal auðlinda við inngöngu í ESB sé „kjaftæði“.

Ráðherra var stödd í Hamborg þegar Heimildin ræddi við hana um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu sem ríkisstjórnin hefur boðað. Skömmu áður fundaði hún með kollegum sínum í Lissabon og fyrr í mánuðinum var hún í Brussel með Mörtu Kos, stækkunarstjóra ESB, og Kaju Kallas, varaforseta framkvæmdastjórnar ESB, þar sem þær undirrituðu samstarfsyfirlýsingu Íslands og ESB í varnar- og öryggismálum.

Stjórnarandstaðan hefur sakað Þorgerði Katrínu um að vera þannig byrjaða í aðildarviðræðum við ESB áður en tillaga um þjóðaratkvæðagreiðslu er einu sinni komin í gegnum Alþingi. „Það eru engar viðræður farnar …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár