„Við þurfum að draga einhverja línu í sandinn“

Rósa Björk Brynj­ólfs­dótt­ir seg­ir VG standa á tíma­mót­um, vilja end­ur­heimta skýra rödd í græn­um mál­um, fé­lags­legu rétt­læti og frið­ar­stefnu – og hafn­ar því að svar­ið við sam­tím­an­um fel­ist í harð­ari hægri orð­ræðu eða gam­aldags stór­iðju­stefnu.

Rósa Björk Brynjólfsdóttir, nýr formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, segir flokkinn ætla að hefja nýjan kafla eftir erfitt tímabil í ríkisstjórn og fall af þingi. Að hennar mati er nú að myndast tómarúm í íslenskum stjórnmálum þar sem græn sjónarmið, félagslegt réttlæti, friðarpólitík og mannréttindi hafi veikst eða verið sett til hliðar af öðrum flokkum.

„Erindi VG í dag, það er í raun og veru mjög skýrt,“ segir hún. Hún nefnir sérstaklega að VG hafi lengi verið það afl sem hafi talað hvað skýrast fyrir umhverfismálum og grænni pólitík, en að nú sjáist í íslenskri umræðu að „það er eitthvert rými þar sem græn pólitík er ekki til staðar“. 

Hún segir hið sama gilda um félagslegt réttlæti, friðarmál og kvenréttindi. Að hennar mati hafi bæði stjórnarflokkarnir og aðrir flokkar verið að yfirgefa þessi mál og þar með skapist þörf fyrir skýrari rödd vinstra megin. „Þar komum við til sögunnar,“ segir …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár