Var settur á samheitalyf, steyptist út í sárum og lést

Sig­ur­laug Gísla­dótt­ir, móð­ir manns með hvít­blæði sem lést haust­ið 2023, seg­ir son sinn hafa ver­ið lát­inn þjást að óþörfu þeg­ar hann var tek­inn af frum­lyfi og sett­ur á sam­heita­lyf þrátt fyr­ir að lækn­ir hans hefði ósk­að eft­ir áfram­hald­andi lyfja­skír­teini fyr­ir frum­lyf­ið. Eft­ir að hann skipti um lyf steypt­ist hann út í sárs­auka­full­um sár­um. „Hann bara gat ekki meir,“ seg­ir hún.

Var settur á samheitalyf, steyptist út í sárum og lést
Svæsin sár Móðir Gunnlaugs segir að heilbrigðisstarfsfólk hafi staðið á gati gagnvart húðútbrotunum.

Gunnlaugur Dan Sigurðsson var 38 ára gamall þegar hann lést í október 2023 en hann hafði greinst með hvítblæði þremur árum áður. Móðir hans, Sigurlaug Gísladóttir, telur að Gunnlaugur hafi látist af öðrum orsökum en standa á dánarvottorði hans. 

Skömmu eftir að hafa verið tekinn af frumlyfi við járnofhleðslu vegna blóðgjafa og settur á samheitalyf fór Gunnlaugur að steypast út í sársaukafullum sárum. Eftir að hafa glímt við síversnandi og sársaukafull húðútbrot segir Sigurlaug að sonur hennar hafi neitað að halda inntöku lyfsins áfram. „Hann vissi alveg hvað myndi gerast ef hann hætti að taka lyfið. Hann bara gat ekki meir.“

Samkvæmt lyfjaskrá var munurinn á 90 taflna skammti af frum- og samheitalyfinu rétt rúmar 11 þúsund krónur í apóteki haustið 2023. Lyfin eru bæði leyfisskyld og í lyfjalögum eru slík lyf skilgreind þannig að þau megi eingöngu nota að undangengnu samþykki lyfjanefndar Landspítala. 

Sigurlaug Gísladóttirbarðist fyrir Gunnlaugi syni …
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár