Vinstri byltingin sem varð ekki: Af hverju sameinaðist vinstrið ekki í borginni?

Vinstri græn, Sós­í­alistar og Píratar eru sam­an­lagt með fimmtán pró­senta fylgi í borg­inni. Hvor í sínu lagi gætu þeir hins vegar verið í fall­bar­áttu. Til­raunir voru gerðar til að ná saman um sam­eig­in­legt fram­boð fyrir kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar, undir for­ystu sós­í­alist­ans Sönnu Magda­lenu Mörtu­dóttur. Van­traust og skortur á mál­efna­legri sam­leið kom í veg fyrir það.

<span>Vinstri byltingin sem varð ekki: </span>Af hverju sameinaðist vinstrið ekki í borginni?
Vorboði Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir er hvata­konan að baki sam­eig­in­legu fram­boði vinstra­fólks í borg­inni. Hún er ekki í náð­inni hjá vald­höfum í sínum gamla Sós­í­alista­flokki og neit­aði að ganga til liðs við Vinstri græn, sem virð­ast nú hafa gengið henni á hönd og ert hana að leið­toga sínum, utan flokka.

Til­raunir til að sam­eina flokk­ana sem féllu af þingi í síð­ustu kosn­ingum og Sós­í­alista fyrir kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar runnu út í sand­inn mörgum að óvörum. Sam­ein­ingin strand­aði ekki á einu atriði heldur sam­spili ólíkra þátta, svo sem skorti á trausti á milli aðila og mál­efna­legri sam­legð. Þá hjálp­aði ekki sú stað­reynd að Píratar skil­greina sig ekki sem vinstri flokk. Aðeins Vinstri græn og Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir náðu saman að end­ingu. Það gæti bjargað báðum frá því að falla út úr borg­ar­stjórn.

Vantaði traust í viðræður

Viðræður flokk­anna fóru fram á síð­ustu vikum, bæði á form­legum og óform­legum fundum. Þær ein­kennd­ust þó af tor­tryggni milli þeirra sem sátu við borðið, þrátt fyrir að flestir flokk­anna hafi unnið saman í borg­ar­stjórn­ar­meiri­hluta und­an­farin ár og mynda í raun meiri­hluta í dag. Ljóst var að brekka yrði að ná sáttum í deilu Sós­í­alista við sinn gamla leið­toga, Sönnu Magda­lenu Mörtu­dóttur, borg­ar­full­trúa flokks­ins, sem hóf veg­ferð­ina …

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Já hérna hér er vindhaninnkanskieitthvaðbilaðurþarnahjaþeimápólitískaheimilnu?það skyldiþóekkivera?
    0
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    Why does the Left Green still exist?
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár