Valdið Utan­rík­is­stefna Donalds Trump ein­kenn­ist af ein­hliða hags­munapóli­tík og harð­neskju­legri afstöðu sem hefur komið banda­mönnum á óvart. Framhald stefn­unnar og svig­rúm for­set­ans veltur nú á nið­ur­stöðum þing­kosn­ing­anna í nóv­em­ber. Mynd: AFP

Átök, núningur og línur dregnar

Stór­veldi herða tökin, Evrópa end­ur­vopn­ast og örygg­is­staða Íslands breyt­ist. Á sama tíma aukast átök, óvissa í alþjóða­kerf­inu og hætta á víg­bún­að­ar­kapp­hlaupi, bæði í nýjum og í hefð­bundnum skiln­ingi.

Árið markar sögu­leg tíma­mót í örygg­is­málum Evrópu og þar með fyrir Ísland. Aukin áhersla á hags­muna­drifna milli­ríkjapóli­tík (e. transactional diplomacy) í boði Banda­ríkja­stjórnar hefur þegar haft víð­tæk áhrif og settu aðgerðir banda­ríska hers­ins í Venes­ú­ela tón­inn strax í upp­hafi árs. „Donroe-kenn­ingin“, sem er 21. aldar útgáfa Trump-stjórn­ar­innar af Monroe-kenn­ing­unni, form­gerir ein­hliða og harð­neskju­lega nálgun Banda­ríkj­anna á for­ystu í heim­inum. Evrópa reynir að ná vopnum sínum á ný – bók­staf­lega – og Íslend­ingar taka umræð­una um hvaða banda­menn við viljum og eigum í raun.

Þeir stóru verða sterkari

Baldur Þór­halls­son, pró­fessor í stjórn­mála­fræði við Háskóla Íslands, segir að stóru ríkin, Banda­ríkin, Rússland og Kína, hafi bæði endað árið 2025 og hafið nýtt ár með sprengju­árásum eða yfir­lýs­ingum um algjöra yfir­töku á nágranna­ríkjum sínum. Banda­ríkin telji áhrifa­svæði sitt ná frá syðsta odda Argent­ínu allt til Íslands og Kína boði yfir­töku á Taívan. Stríð Rússa, sem er nú á sínu fjórða ári, er …

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    Are we simply witnessing history: the disintegration of the so-called West, the vassals under their US hegemon!?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hvað gerist árið 2026?

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár