Gervigreind og netöryggi

Gervi­greind heldur áfram að umbreyta heim­inum með ótrú­legum hraða, en sam­hliða auknum áhrifum hennar verða net­ör­yggi, staf­rænt full­veldi og gagna­vernd lyk­ilá­skor­anir í síbreyti­legu alþjóð­legu umhverfi. Hjálmar Gíslason rýnir í og spáir fyrir um tækni­árið 2026.

Gervigreind og netöryggi

Þriðja árið í röð er það gervi­greindin sem tekur mest pláss í tækni­spá árs­ins. Þetta er ekki að ástæðu­lausu. Gervi­greind er að breyta heim­inum meira og hraðar en nokkur tækninýj­ung hefur gert ára­tugum saman. En vend­ingar í alþjóða­málum setja líka sitt mark á spána að þessu sinni. Á sviði net­ör­yggis, staf­ræns full­veldis og gagna­verndar eru krefj­andi úrlausn­ar­efni sem munu kalla á athygli á árinu.

Gervigreindarleiðrétting

Eftir því sem leið á árið 2025 fóru raddir um „gervi­greind­ar­bólu“ að verða hávær­ari. Sumir hafa vísað til „dotcom“-bólunnar um síð­ustu alda­mót sem hlið­stæðu, en þá varð gríð­ar­legt verð­fall á hluta­bréfum tækni­fyr­ir­tækja í kjöl­far mik­illa vænt­inga á loka­árum síð­ustu aldar.

Í þessu sam­hengi er rétt að hafa tvennt í huga:

  1. Fram­far­irnar sem net­bólan lof­aði í lok síð­ustu aldar gengu að mestu eftir. Í raun urðu þær langt umfram það sem jafn­vel fram­sýn­asta fólk sá fyrir sér: Sam­skipti, verslun, við­skipti og vinna tóku stór­stígum breyt­ingum með …
Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SÍF
    Sveinn í Felli skrifaði
    Margt ágætt í þessari grein, en samt er alveg hlaupið framhjá stóru vandamálunum við uppgang þessara vitlíkisfyrirtækja:
    - Hvernig verður tekið á þeim gríðarlega hugverkaþjófnaði sem átti og á sér stað við mötun gagna inn í LLM-líkönin?
    - Hvert er þanþol samfélaganna gagnvart yfirboðum þessara fyrrtækja í sameiginlegar auðlindir og innviði, þ.e. hækkun á orkureikningum heimila og slíku?
    - Hve langur tími mun líða áður en löggjöf fer að aðlagast þessari starfsemi og [alþjóðlegar] reglur verði settar varðandi þætti á borð við siðferðilega ábyrgð og inngrip í mannlega hegðun?

    Því eins og stendur í greininni:
    "...veitukerfin, orkuframleiðsluna og samgöngurnar – þetta eru lífæðar samfélagsins og við þurfum að umgangast þær sem slíkar."
    En það þarf líka að passa upp á samfélagið, ekki satt?
    0
  • Gunnar Magnússon skrifaði
    Hversu mikið vatn þarf til að framleiða hverja einingu, d.t. Terabite, gerfirgreindargetu ? Er til endalaust vatn ?
    https://www.ruv.is/frettir/menning-og-daegurmal/osynilega-vatnid-sem-vid-drekkum
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hvað gerist árið 2026?

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár