Jólaævintýri leynikórsins

Tár falla, bæði í salnum og í kórnum sjálfum, og sumir í salnum syngja með. Lokatónn­inn hverfur út í skamm­degið, ein­lægt klapp, þurrkuð tár og ótal bros. Það þekkja allir and­lit í kórnum en hann kemur bara fram fyrir sér­val­inn hóp og syngur þá inn jólin.

Jólaævintýri leynikórsins
Á æfingu „Ég get ekki leyft mér að vera mjög strangur kór­stjóri, þetta er auð­vitað bara vina­hópur sem er að hafa gaman, það skiptir miklu máli að ég sé ekki að koma hingað og skamma með­limi,“ segir Hildigunnur Ein­ars­dóttir á æfingu Jóla­kórs­ins sem hún segir langt í frá stund­vís­asta kór sem hún hafi stjórnað. Mikill tími fari í fagn og faðm­lög. Mynd: Golli

Í hlý­legum sam­komu­sal hjúkr­un­ar­heim­ilis sitja spari­búnir eldri­borg­arar og bíða. Fyrir framan þá stendur jóla­kór sem gerir sig til­bú­inn fyrir hátíð­ar­söng. Andlitin eru kunn­ug­leg og mætti halda að hér væri verið að taka upp íslenska kvik­mynd. Stór­leik­arar þjóð­ar­innar í bland við minna þekkt and­lit draga djúpt and­ann og hefja söng.

Tár falla, bæði í salnum og í kórnum sjálfum, og sumir í salnum syngja með. Nokkrir syngja á inn­sog­inu um mein­villa mann­kind sem lá í myrkr­unum. Lokatónn­inn hverfur út í skamm­degið, ein­lægt klapp, þurrkuð tár og ótal bros. 

Þó að þetta gæti verið sena í kvik­mynd, er eng­inn sem hrópar „KÖTT“ að lagi loknu. Engar mynda­vélar eru á staðnum, engin upp­taka gerð – aðeins stöku far­sími á lofti í hrukk­óttum höndum og einn ljós­mynd­ari. Í ára­tug hefur þessi kór starfað í kyrr­þey með eitt hlut­verk: að gleðja gamla fólkið á aðvent­unni – og sjálfan sig í leið­inni.

Jafnvægi radda …
Kjósa
27
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    ALLIR VERÐA GAMLIR SVO ÚRELDAST KENNINGAR TÆKNI HVERRA TÍMA OG HVAÐ SEM ER ÞVÍ ALLIR HLUTIR HRÖRNA OG ENDURNÝJAST ÞVÍ ÞANNIG ER GANGUR LÍFSINS EKKERT SNÝR AFTUR SEM HORFIÐ ER Í GLEYMSKU EN SAMT LIFIR MINNINGIN UM ÞAÐ LIÐNA OG EKKERT ER SEM ÁÐUR VAR
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár