Til Grænlands á gamalli eikarskútu

Ittoqqortoormiit á aust­ur­strönd Græn­lands er eitt afskekktasta þorp í heimi. Þangað liggja engir vegir og til að kom­ast í þorpið þarf að fljúga með þyrlu eða fara á snjó- eða hunda­sleðum frá flug­vell­inum sem er í 60 kíló­metra fjar­lægð. Yfir hásum­arið er hægt að sigla þangað en Ittoqqortoormiit er við mynni Scoresbysunds sem er stærsta fjarða­kerfi í heim­inum.

Til Grænlands á gamalli eikarskútu
Áhöfnin á Hildi Fremri röð: Lucia leið­sögu­maður, Jóhannes háseti. Aftari röð: Filip skip­stjóri, Benedikt stýri­maður og Jónas kokkur. Mynd: Jóhannes Kr. Kristjánsson

Áður en við höldum lengra skulum við fara aðeins í gegnum það hvernig á að bera fram nafn þorps­ins Ittoqqortoormiit sem þýðir á austur-græn­lenskri mál­lýsku „stað­ur­inn með stóru hús­unum“ –IIttok-kor-tor-mit. Þið getið æft ykkur að segja þetta nokkrum sinnum og þá eruð þið búin að ná þessu nafni sem margir eiga erfitt með í byrjun og ég var einn af þeim og nýtti mér stytt­ing­una Itto sem er svona svipað og ef útlend­ingar hefðu notað Æja sem stytt­ingu fyrir Eyja­fjalla­jök­uls­gosið. 

Frá því í æsku hefur mig langað til Græn­lands. Ég var 9 eða 10 ára þegar pabba lang­aði að taka mig með í hóp­ferð á vegum Oddfellow til Græn­lands. Mamma vildi ekki að ég færi – sagði að ég mætti ekki missa úr skóla. Ég sat því eftir heima með sárt ennið. Pabbi tók mikið af ljós­myndum í ferð­inni, sagði mér ferða­sög­una og færði mér grjót frá Græn­landi sem …

Kjósa
34
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár