Faðir og börn að leik í fjör­unni Gul við­vörun var í fjör­unni þegar frétta­ljós­mynd­ari og blaða­maður sóttu hana stuttu eftir banaslysið í byrjun ágúst. Mynd: Víkingur

Reynisfjara: Öryggið og ábyrgðin

„Tími aðgerða er ein­fald­lega runn­inn upp,“ segir Hanna Katrín Frið­riks­son atvinnu­vega­ráð­herra um örygg­is­mál í ferða­þjón­ust­unni. Land­eig­endur í Reyn­is­fjöru telja örygg­is­ráð­staf­anir þar vera sam­starfs­verk­efni. Varnir voru hertar í fjör­unni eftir að níu ára gömul þýsk stúlka lést þar í byrjun ágúst. Sjón­ar­vottur segir krafta­verk að ekki fleiri hefðu farist þennan dag. Ferða­menn halda áfram að streyma niður í fjöru þrátt fyrir nýtt lok­un­ar­hlið og leggja ólíkt mat á hætt­una.

Fólk deyr á hverjum degi en þegar þú sérð það með eigin augum breytir það miklu,“ segir Marcial Gomez. Hann er þjónn á Svörtu fjöru, veit­inga­staðnum í Reyn­is­fjöru, og varð vitni að átak­an­legu banaslysi þann 2. ágúst. Þá lést níu ára gömul stúlka frá Þýska­landi sem sótti þennan vin­sæla ferða­manna­stað ásamt föður sínum og eldri systur.

Gul við­vörun log­aði á var­úð­ar­skilti í Reyn­is­fjöru þennan dag­inn. Annað var­úð­ar­skilti sem útskýrir hvaða svæði í fjör­unni séu örugg út frá hættu­stigi hafði fokið nokkru áður og nýju skilti hafði ekki verið komið fyrir. Á vef­síðu SafeTra­vel á vegum Lands­bjargar stóð: „Sýnið alltaf aukna varúð á strönd­inni, öld­urnar eru mjög óút­reikn­an­legar.“

Samkvæmt mæla­borði Ferða­mála­stofu hafa rúm­lega 230 þús­und ferða­menn sótt Reyn­is­fjöru það sem af er liðið ári. Í fyrra var fjaran fjórði vin­sæl­asti áfanga­staður lands­ins með 446 þús­und gesti. Einungis Gullni hring­ur­inn var vin­sælli. Þá hafa flest dauðs­föll á ferða­manna­stöðum orðið við …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Takk fyrir svo ítarlega rannsakaða, innsæisríka og ítarlega umfjöllun um þetta efni.
    0
  • bjørg valgeirsdottir skrifaði
    Ég hef mikið velt þessu fyrir mér, Ég hef ansi oft farið í Disney garðin í UDA og svo flýgur maður ansi oft. Og í flugi, ferjum og Disney þá er altaf annaðhvort öryggisvideo eða flugfreyja/þjónn sem fer yfri öryggi. Ég hef unnið á olíupöllum í Noregi og vitanlega þurfti ég að fara á viku námskeið sem þarf síðan að endurnýja á 4 ára fresti, en þrátt fyrir það þá þarf maður að setjast inn í sýningarsal og horfa á öryggisvideo í hvert skipti sem maður fer upp í þyrluna til að komast á pallinn. Er hugmynd að byggja skála þar sem væri flott öryggisvideo (Íslendingar eru jú snillingar í að búa til flotta svona hluti) og það væru kanski 3 mysmunandi það er grænt, gult eða rautt og það væri bara ekki hægt að komast af bílastæðinu og niður í fjöruna fyrr en fólk væri búið að horfa. Jú kosnaðurinn væri einhver við þetta en þá verður bara að setja upp gjald þar til að reka þetta batteri. Og svo er annað sem ég myndi gera það er að koma upp einhverskonar geysla eða eithvað sem gæti gert rautt strik í fjöruna þegar mikil hætta er og þá bara sér fólk nákvæmlega hversu langt má fara. Maðaur sér á útihátíðum að það eru alskins auglýsinga merki og dót sem er varpað upp í berkkur og á hús og tjöld og hvað sem er, ég get ekki skilið að þetta gæti ekki verið hægt þegar kemur að öryggi. Það er alveg vitað að það eru ekki glannarnir sem stoppa og lesa skilti. það eru þeir sem fara með varúð, en það er kanski meiri möguleiki á að það næðist í glannana ef þeir bókstaflega væru skikkaðir til að horfa á video.
    1
  • Friðrik Erlingsson skrifaði
    Björgunarhringur er gagnslaust verkfæri á þessum stað. Hins vegar gæti gúmmíbátur með utanborðsmótor gagnast betur til björgunar, en það þýðir að einhver sem kann að nota hann þarf að hafa stöðuga viðveru á staðnum.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár