Tengsl við Gaza Kristín S. Bjarna­dóttir á heim­ili sínu á Akureyri, þar sem hún ræðir við fólk á Gaza. Mynd: Sindri Swan

„Viltu muna mig?“

Kristín S. Bjarna­dóttir, starfar við líknar- og lífsloka­hjúkrun á Akureyri, en heldur jafn­framt úti hjálp­ar­línu til Gaza.

„Það er verið að brenna börn til bana. Kremja þau undir rústum. Sprengja þau í tætlur. Stundum þarf að tína líkin upp sem tætlur, settar í poka,“ segir Kristín S. Bjarna­dóttir, sem notar frí­tíma sinn til að styðja við fjöl­skyldur á Gaza í gegnum mynda­spjall á Facetime.

Starfs­reynslan veitir henni styrk þegar hún hjalar við börn sem gætu dáið í næstu árás Ísra­els­manna. Hún þekkir orðið börnin vel og veit að fjöl­skyldan kvíðir nótt­inni þegar lesið er í hljóð sprengju­flug­véla, svo vön þeim að þau greina á hljóð­inu hvort árás sé í vændum eða ekki. Ef það heyr­ist í þyrlu eru þau viss, árás er á leið­inni. Og for­eldrar sofa þétt upp við börnin svo þau deyi saman ef sprengja fellur á tjaldið.

Til að hug­hreysta börnin nær hún stundum í hundana sína tvo, Skotta og Astro, sem tóku á móti blaða­manni á heim­ili Krist­ínar, Sigluvík í …

Kjósa
31
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sóley María Kristínardóttir skrifaði
    Gríðarlega mikilvæg umfjöllun, ég vona að hún verði til þess að fleiri rétti fram lífsnauðsynlega hjálparhönd.
    1
  • KHS
    Kristín Hildur Sætran skrifaði
    Auður og Ingibjörg, TAKK! Óhemjumikilvægt að lesa um Kristínu og núna Guðnýju. En getið þið skýrt hvers vegna Ísland setur ekki viðskiptabann á Ísrael? Heyrðist ráðherra segja í hádegisfréttunum að það væri ástæða þess að ekki væri hægt að hætta viðskiptum við Rapyd? Hvaða öfl hér heima eru þar að baki?
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár