„Ég þoli ekki þegar maður er settur í box“

„Ég fór með það vega­nesti í lífið að ögra þessum staðalí­myndum,“ segir Björn Stef­áns­son leik­ari, sem fer með annað aðal­hlut­verk­anna í Fjalla­baki, eða Brokeback Mountain, á sama tíma og eitruð karl­mennska rís í heim­inum.

„Ég þoli ekki þegar maður er settur í box“

Leik­ritið Fjalla­bak er nú sýnt á fjölum Borg­ar­leik­húss­ins en þar leika þeir Björn Stef­áns­son og Hjörtur Jóhann Jónsson kúrek­ana og elsk­hug­ana Jack og Ennis. Leik­ritið, sem byggir á Pulitzer-verð­launa­smá­sögu Annie Proulx, fjallar um for­boðnar ástir tveggja banda­rískra kúreka á sjö­unda ára­tug síð­ustu aldar, á þeim tíma er sam­kyn­hneigð var ólög­leg. Þar er einnig komið inn á eitr­aða karl­mennsku, sem mikið er áber­andi í umræðu nútím­ans.

Heim­ildin ræddi við Björn Stef­áns­son, eða Bjössa í Mínus eins og hann er gjarnan kall­aður, um leik­ritið, eitr­aða karl­mennsku og ólíkar skoð­anir og sitt hvað fleira. 

Af hverju finnst þér þetta leik­rit skipta máli í dag?

„Sem leik­ari sem hefur unnið sem slíkur und­an­farin 12 ár, fær maður ýmis hlut­verk. Maður fær kannski hlut­verk í barna­leik­riti og í söng­leik. En síðan fær maður svona verk, Fjalla­bak, eða Brokeback Mountain; svona verk­efni þar sem erindið er svo brýnt og sterkt, sér­stak­lega núna þar sem við sjáum …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár