Heilsa og líðan hinsegin fólks

Heilsa og líðan hinsegin fólks er verri en sís gagn­kyn­hneigðra sam­kvæmt nið­ur­stöðum rann­sókn­ar­verk­efnis. Harpa Þor­steins­dóttir og Þór­hildur Elín­ar­dóttir Magn­ús­dóttir skýra frá nið­ur­stöð­unum og fara yfir það hvað megi gera til að styðja betur við hinsegin fólk.

Heilsa og líðan hinsegin fólks
Heilsa og líðan hinsegin fólks Harpa Þor­steins­dóttir, verk­efna­stjóri lýð­heilsu­m­ála á skrif­stofu borg­ar­stjóra og borg­ar­rit­ara, og Þór­hildur Elín­ar­dóttir Magn­ús­dóttir, sér­fræð­ingur í mál­efnum hinsegin fólks. Mynd: Golli

„Það er auð­vitað slá­andi að nið­ur­stöð­urnar hafi verið jafnslæmar og raun ber vitni,“ segir Þór­hildur Elín­ar­dóttir Magn­ús­dóttir, sér­fræð­ingur í mál­efnum hinsegin fólks hjá Reykja­vík­ur­borg, um nið­ur­stöður rann­sókn­ar­verk­efnis sem fjallar um heilsu og líðan hinsegin fólks. Verk­efnið er hluti af aðgerða­á­ætlun lýð­heilsu­stefnu Reykja­víkur. 

Nið­ur­stöð­urnar voru nýverið kynntar af Þórhildi og Hörpu Þor­steins­dóttur, verk­efna­stjóra lýð­heilsu­m­ála á skrif­stofu borg­ar­stjóra og borg­ar­rit­ara. Heilsa og líðan hinsegin fólks mæld­ist verri en hjá sís gagn­kyn­hneigðum. 

Í takt við Norðurlöndin

Rann­sókn­ar­verk­efnið er unnið í sam­starfi við Samtökin '78 og byggir á gögnum emb­ættis land­læknis frá árunum 2017 og 2022. Gögnin eru hluti af rann­sókn emb­ætt­is­ins sem kall­ast Heilsa og líðan og hófst árið 2007. Hún fer þannig fram að á fimm ára fresti er upp­lýs­ingum um heilsu og líðan Íslend­inga safnað með því að leggja könnun fyrir 18 ára og eldri. Harpa og Þór­hildur tóku því fagn­andi þegar að spurn­ingum um kyn­hneigð …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár