Heilsusamlegt líf á að vera áreynslulaust líf

Læknar sem sam­ein­uðu krafta sína með stofnun Félags lífs­stíls­lækn­inga á Íslandi vilja efla heilsu­læsi og minnka álag á heil­brigð­is­kerfið til lengri tíma. Í hröðu nútíma­sam­fé­lagi hefur þörfin aldrei verið jafn­rík og nú. Lífs­stíls­breyt­ingar eru krefj­andi en sjálfsmildi er mik­il­vægt fyrsta skref.

Heilsusamlegt líf á að vera áreynslulaust líf
Heil­brigður lífs­stíll á að vera aðgengi­legur Lífs­stíls­lækn­ingar eiga fullt erindi í nútíma­sam­fé­lagi að mati lækn­anna Svölu Sig­urð­ar­dóttur, Teklu Hrundar Karls­dóttur og Kjartans Hrafns Lofts­sonar. Markmið lífs­stíls­lækn­inga er að vald­efla og styrkja ein­stak­linga til að við­halda heilsu á öllum ævi­skeiðum. Mynd: Golli

Hraði nútíma­sam­fé­lags­ins eykst með degi hverjum með hvers kyns áreiti og það reyn­ist þrautin þyngri að lifa heilsu­sam­legu lífi. Því vilja lækn­arnir Svala Sig­urð­ar­dóttir, Kjartan Hrafn Loftsson og Tekla Hrund Karls­dótt­irbbreyta. Þau til­heyra hópi lækna sem vilja setja aukna áherslu á lífs­stíls­lækn­ingar sem birt­ast einna helst með þeim hætti að það á að vera áreynslu­laust að lifa heil­brigðu lífi. 

En hvað eru eig­in­lega lífs­stíls­lækn­ingar? 

„Lífs­stíls­lækn­ingar er vís­inda­lega studd nálgun sem vald­eflir og styrkir ein­stak­linga til að við­halda heilsu á öllum ævi­skeiðum,“ segir Kjartan. Hug­mynda­fræði lífs­stíls­lækn­inga byggir á aðferðum til að fyr­ir­byggja, bæta með­ferð og jafn­vel snúa við lífs­stílstengdum sjúk­dómum.   

Kjartan og Tekla eru hjón og störf­uðu um ára­bil í hefð­bundnu heil­brigð­is­kerfi, til að mynda á heilsu­gæsl­unni, í end­ur­hæf­ingu og staf­rænni heil­brigð­is­þjón­ustu og þekkja kosti og galla þess. Lífs­stíls­lækn­ingar hafa verið þeim ofar­lega í huga lengi en þegar þau voru búsett í Svíþjóð fyrir um ára­tug fóru þau að gera breyt­ingar á eigin lífi. „Við höfum alltaf reynt að vera með­vituð, passa upp á syk­ur­inn og svona, en það varð ein­hver breyt­ing þarna, nálg­unin breytt­ist,“ segir Tekla. Síðustu tíu ár hafa þau farið í saumana á lífs­stílstengdum sjúk­dómum og jafn­framt skoðað ítar­lega hvernig hægt er að finna merki og ein­kenni þess að heilsan sé að stefna í óefni. 

Lífs­stíls­lækn­ingar voru til umfjöll­unar á einu af fjöl­mörgum mál­þingum á Lækna­dögum sem fram fóru í síð­ustu viku. Nærðu hug­ann – fyrir aukin afköst og bjart­ari fram­tíð var yfir­skrift mál­þings­ins sem Svala Sig­urð­ar­dóttir læknir stýrði. Hún hefur alltaf haft áhuga á heil­brigðum lífs­stíl, er einka­þjálf­ari og lærði nær­ing­ar­fræði áður en hún byrj­aði í lækn­is­fræði og það kom henni á óvart hversu lítið var fjallað um nær­ingu og lífs­stílstengda þætti í lækn­is­fræð­inni. „Við lærum ekk­ert um hvað veldur heilsu, við lærum bara hvað veldur sjúk­dómum. Við lærum ekk­ert um áhrifa­þætti heil­brigðis.“ Kjartan tekur í sama streng. „Við áttum að sjá um lækn­ingar, ekki nær­ingu. Lífs­stíll­inn er nefndur, en það er ekk­ert kennt um hann, það er farið beint í lyfin.“

„Við lærum ekk­ert um hvað veldur heilsu, við lærum bara hvað veldur sjúk­dómum
Svala Sig­urð­ar­dóttir læknir
um lækna­námið

Kveikjan að því að stofna sér­stakt lífs­stíls­lækn­inga­fé­lag varð þegar Svala, Tekla og Kjartan störf­uðu saman hjá Sidekick Health, hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæki sem þróar og mark­aðs­setur staf­rænar heil­brigð­is­með­ferðir, fyrir nokkrum árum. Þar kynnt­ust þau Thomas Ragnari Wood, bresk-íslenskum lækni, stofn­anda Félags lífs­stíls­lækna á Bret­landi, sem er í for­svari fyrir félag lífs­stíls­lækna á Bret­landi og veltu fyrir sér hvernig þau gætu inn­leitt starf­semi félags­ins í störfum sínum hér á landi (við­tal við Thomas má einnig finna í þessu tölu­blaði). „Hann stakk upp á því að við myndum stofna okkar eigið íslenska félag,“ segir Kjartan. Þau létu slag standa og í sept­em­ber 2023 stofn­uðu þau, ásamt Jens K. Guð­munds­syni lækni, Félag íslenskra lífs­stíls­lækn­inga (e. ILMA - Icelandic Lifestyle Medicine Association). ILMA er í nánu sam­starfi við bresku sam­tökin, British Society of Lifestyle Medicine (BSML) og er einnig hluti af evr­ópsku heims­sam­tökum lífs­stíls­lækn­inga. 

FormaðurKjartan Hrafn Loftsson er for­maður Lífs­stíls­lækn­inga­fé­lags Íslands. Hann hefur starfað í yfir ára­tug í heilsu­gæslu og starfar í dag sem ábyrgð­ar­læknir heilsu­efl­andi mót­töku Heil­brigð­is­stofn­unar Suð­ur­nesja.
„Við áttum að sjá um lækn­ingar, ekki nær­ingu
Kjartan Hrafn Loftsson læknir
um lækna­námið

Lífs­stíls­lækn­ingar eiga fullt erindi í nútíma­sam­fé­lagi að mati Kjartans, Teklu og Svölu, sam­fé­lagi þar sem hraði og áreiti ein­kenna dag­legt líf. „Þetta er það eina sem „meikar sens“ í þessu sam­fé­lagi sem við búum í. Það er kannski lausnin sem maður sér í að minnka álag á heil­brigð­is­kerfið og fá meiri orku í lands­menn. Þetta snýr að lífs­gæðum almennt,“ segir Tekla. „Þetta snýst líka um sam­fé­lagið. Þetta eru lífs­stíls- og sam­fé­lags­lækn­ingar,“ bætir Svala við. Hún seg­ist ekki vilja gera lítið úr fólki og sjúk­lingum en telur að það geti verið snúið að lifa í nútíma­sam­fé­lagi. „Fólk er ekki aum­ingjar, það er erfitt að iðka heil­brigðan lífs­stíl eins og sam­fé­lagið er í dag með öllu áreit­inu sem þar er, alls konar ómót­stæði­legar vörur sem við eigum ekki séns í,“ segir hún og nefnir sem dæmi úrval skyndi­bita og alls kyns ann­arra skyndi­lausna í matar­æði.

Kjartan tekur undir. „Eftir að hafa verið að grúska í þessu lengi sér maður að þetta snýst ekki bara um að hjálpa fólki að grenn­ast eða losna við syk­ur­sýki,“ segir hann. Sam­fé­lags­legir þættir hafa einnig áhrif á kvíða, ADHD-ein­kenni og and­lega þætti. En fleiri þættir tala saman. „Lækn­is­fræðin bútar lík­amann svo­lítið niður, geð­lækn­is­fræði er heil­inn, tauga­lækn­is­fræði er það sem heil­inn sendir út og svo fram­vegis. Þegar við erum búin að skoða þetta svona mikið þá sér maður að þetta er allt nátengt. Við erum að reyna að byggja upp hvað frum­urnar vantar til að starfa eðli­lega. Það hefur áhrif á heila­heils­una og rest­ina af lík­am­anum,“ segir Kjartan. 

Snýst allt um sex grunnstoðir heilsu

Lífs­stíls­lækn­ingar byggja á sex grunn­stoðum heilsu, þær eru: Tengsl, matar­æði, svefn, hreyf­ing, öndun og umhverfi. „Allar þessar grunn­stoðir snúa að því að mæta okkar grunn­þörfum. Þegar grunn­þör­f­unum er betur mætt virkar þetta betur, þá er meiri heilsa,“ segir Tekla. 

Þetta hljómar kannski ein­falt. Það ætti ekki að koma neinum á óvart að það geri okkur gott að eiga í góðum tengslum við fólkið sitt og sam­fé­lagið, borða hollan mat, hreyfa sig reglu­lega, sofa vel, anda (hver gerir það ekki?) og verja tíma í nátt­úr­unni. En þegar eitt­hvað í heils­unni gefur sig skiptir máli að líta til þess­ara grunn­stoða. Þar koma lífs­stíls­lækn­ingar sterkar inn.  „Þetta er vís­inda­lega studd heild­ræn nálgun sem miðar að því að fyr­ir­byggja, með­höndla og snúa við lífs­stílstengdum sjúk­dómum. Þetta byggir á þessum grunn­stoðum heilsu. Það er rauði þráð­ur­inn, að fara betur í þessa sjúkra­sögu með ein­stak­lingum til að vald­efla og fræða um hvað sé hægt að gera til að byggja upp góða heilsu,“ segir Kjartan. 

Sex grunn­stoðir heilsuLífs­stíls­lækn­ingar byggja á sex grunn­stoðum sem snúa að því að mæta okkar grunn­þörfum.

Tekla nefnir tengsl sem dæmi. „Þró­un­ar­lega séð er svo mik­il­vægt að standa saman. Það var ógn við þínu öryggi ef þú varst ein­hvers staðar einn á stangli. Við höfum alltaf þurft á hvert öðru að halda. Þetta er kjarna­stoð hjá okkur, það er ein af okkar frum­hvötum að til­heyra. Með meiri skautun í sam­fé­lag­inu er verið að ögra þess­ari stoð.“ Tengsl hafi ef til vill aldrei verið mik­il­væg­ari en í nútíma­sam­fé­lagi. „Við erum meira ein­mana í dag en samt höfum við aldrei verið tengd­ari, ef við lítum á sím­ana,“ bendir Kjartan á. 

Félag lífs­stíls­lækn­inga talar ekki fyrir einu sér­stöku matar­æði heldur leggur áherslu á fjöl­breytni. „Við við­ur­kennum að það eru til margar leiðir til þess að ná góðri heilsu með matar­æði en það þarf að ein­stak­lings­miða og fara eftir vænt­ingum og mark­miðum,“ segir Kjartan. Gott fæðu­ör­yggi skiptir lyk­il­máli. „Í því felst stöðugt orku­fram­boð og upp­byggi­leg nær­ing. Þá finnur lík­am­inn að hann hefur allt sem hann þarf til að virka vel og þá hættir löng­unin í óholl­ust­una og ofát,“ segir Tekla, sem er umhugað um efna­skipta­heilsu. „Sama hvert mark­mið okkar er þurfum við orku til að knýja okkur áfram. Þar er lyk­ill­inn í efna­skipta­heilsu sem gerir okkur kleift að gefa öllum frumum þá orku sem þær þurfa.“

Ábati hreyf­ingar hefur verið margrann­sak­aður. „Hreyfing getur verið allt, hún getur verið for­vörn og hluti af með­ferð en hún getur líka verið eitt­hvað sem er áreið­an­legt og eft­ir­sókn­ar­vert að gera án þess að vera hluti af með­ferð. End­an­lega mark­miðið hlýtur að vera að það verði við­ur­kennt að horfa til allra þess­ara þátta,“ segir Svala. 

Ávinn­ingur svefns hefur sömu­leiðis verið rann­sak­aður ítar­lega. „En þetta snýst ekki bara um svefn, það er dæg­ur­sveiflan og birtan sem við fáum á morgn­ana sem þarf líka að hafa í huga,“ segir Kjartan. Þegar kemur að öndun og streitu­stjórnun bendir Tekla á að önd­unin er besta tólið til að róa tauga­kerfið og kerfið í heild sinni ef út í það er farið. 

Sjötta grunn­stoðin, umhverfi og nátt­úra, felst einna helst í að forð­ast nei­kvæða áhrifa­valda í umhverf­inu sem hafa skað­leg áhrif á heils­una, allt frá tóbaki til óheil­næms hús­næðis. Tekla spyr hvort við séum að horfa á sjúk­dóma sem óhjá­kvæmi­leg örlög. „Erum við fórn­ar­lömb norms­ins sem lífs­stíls­sjúk­dómar eru? Er það eðli­legt að svona mörg pró­sent séu með astma og svona mörg syk­ur­sýki? Er eitt­hvað í umhverf­inu sem má breyta og gera öðru­vísi?“ Spurn­ing­arnar eru ótelj­andi. Að mati Teklu fel­ast tæki­færin í lífs­stíls­lækn­ingum í því að líta aðeins í eigin barm. 

Að sýna sér sjálfsmildi

Það er ekki til einn leið­ar­vísir fyrir alla að heil­brigðum lífs­stíl heldur þarf að taka mið af þörfum hvers og eins. „Ef við myndum gefa út leið­bein­inga­spjald fyrir alla yrði það bit­laust,“ segir Kjartan. Sex lyk­il­stoðir heilsu eru eins konar leið­ar­vísir og líta má á það sem heilsu­hjól eins og Tekla kemst að orði. „Það er hægt að meta hvar þú ert og hvar þú átt inni. Ég myndi vilja að fólk gæti mátað sig hvar það stendur og hvort þú sért móti­ver­aður til að breyta ein­hverju, hvort sem það er hreyf­ing eða matar­æði. Við þurfum að sjá styrk­leika og mis­mun­andi þarfir hvers og eins. Hvar er maður til­bú­inn að byrja?“

Sjálfsmildi er fyrsta skrefið þegar kemur að lífs­stíls­breyt­ingu, það geta þau öll þrjú verið sam­mála um. „Það er ógeðs­lega erfitt að breyta um lífs­stíl. Sjálfsmildi er eitt það mik­il­væg­asta,“ segir Svala. Að sýna sér sjálfsmildi hefst á því að ein­beita sér að því sem við getum gert, ekki því sem við getum ekki gert. „Það skiptir miklu máli að skilja þínar frum­hvatir, þá fylgir því meiri sjálfsmildi. Við höfum verið að vinna með skömm, að þetta séu lífs­stíls­vanda­mál og þú ert að klúðra því. Við þurfum að vald­efla fólk í gegnum fræðslu, þá gengur þetta upp,“ segir Tekla.  

Heilsu­efl­andi sam­fé­lagHeilsa á hvorki að vera áskorun né und­an­tekn­ing að mati Svölu, Kjartans og Teklu, sem komu að stofnun Félags lífs­stíls­lækn­inga á Íslandi.

Lífsstílslækningar fyrir alla 

Félag lífs­stíls­lækn­inga á Íslandi er ungt félag og er öllum opið, óháð lækn­is­menntun. Orðið „lífs­stíls­lækn­ingar“ er örlítið óþjált og lækn­arnir tala ekki endi­lega um lífs­stíls­lækn­ingar í almennu tali. „Við tölum um hvað hvetur fólk áfram til að gera breyt­ingar. Það vita flestir að það er gott að borða hollt og sofa vel. En þegar maður er að vinna með hverjum og einum þarf maður að vita af hverju fólk vill halda heils­unni eða hvort það sé með ein­hver mark­mið sem það vill ná,“ segir Kjartan. 

Við­horfið gagn­vart lífs­stíls­lækn­ingum í sam­fé­lag­inu er almennt gott að mati Kjartans, Teklu og Svölu, en yngri læknar eru almennt opn­ari en þeir sem eldri eru. Svala lýsir við­horfi sem hún mætti sem nýút­skrif­aður læknir, full eld­móðs: „Þú getur ekk­ert sagt fólki að breyta um lífs­stíl,“ voru skila­boðin sem hún fékk. Svala svar­aði fullum hálsi: „Ég bara: Víst!“ segir hún. Mik­il­væg­ast er, að hennar mati, að mæta fólki þar sem það er statt á veg­ferð breyt­ing­anna. „Þú þarft að tengja við breyt­ing­una,“ bætir Tekla við. 

„Það á að vera áreynslu­laust að lifa heil­brigðu lífi
Svala Sig­urð­ar­dóttir læknir
Víst! Svala Sig­urð­ar­dóttir læknir hefur unnið að því frá útskrift að stuðla að heilsu­efl­andi sam­fé­lagið meðal ann­ars með lífs­stíls­breyt­ingum og jákvæðri sál­fræði.

Lífs­stíls­lækn­ingar eru ekki við­ur­kennt sér­nám innan lækn­is­fræð­innar og það kann að trufla fólk, einkum innan fag­stétt­ar­innar. Umræða um að inn­leiða lífs­stíls­lækn­ingar inn í sér­nám í heim­il­is­lækn­ingum er hins vegar hafin. Tekla segir að í raun ætti að byrja mun fyrr, strax í grunn­skóla. „Ef við skiljum betur hvað við þurfum þá verður allt miklu auð­veld­ara. Þetta eru grunn­fræði sem þú ættir að kunna þegar þú ert að læra á heim­inn. Þú þarft að vita hvernig þú virkar sjálfur.“

Stóra verk­efnið fram undan sé að skapa og við­halda heilsu­efl­andi sam­fé­lagi. „Heilsa á hvorki að vera áskorun né und­an­tekn­ing. Þetta eru kannski líka umhverfis- og sam­fé­lags­lækn­ingar,“ segir Tekla. Til að lifa heilsu­sam­legu lífi í dag þarf að fara út í ákveðnar öfgar að hennar mati og að það veki sér­staka athygli ef fólk lifi heilsu­sam­legu lífi. „Í dag þarftu að grípa til aðgerða ef þú ætlar að reyna að búa til öruggt og heilsu­efl­andi umhverfi. Ef þú ert að sneiða hjá sykri og afþakkar mar­engskök­una í mat­ar­boði þá ertu álitin spes, mögu­lega með eitt­hvert vanda­mál.“ Það á ekki að vera þannig, segir Tekla. 

Breyt­ingar„Í dag þarftu að grípa til aðgerða ef þú ætlar að reyna að búa til öruggt og heilsu­efl­andi umhverfi,“ segir Tekla Hrund Karls­dóttir læknir. Því vill hún breyta.

Heilsu­efl­andi umhverfi eigi að vera normið. Svo það ger­ist verði ákveðnar sam­fé­lags­breyt­ingar að eiga sér stað. „Heilsu­efl­ing á að vera almenn þekk­ing, inn­leidd í skóla­kerfið, að þú skiljir hvað þú getir gert til að vera með góða heilsu. Og sam­fé­lagið þarf að breyt­ast líka. Það á að vera áreynslu­laust að lifa heil­brigðu lífi. En á meðan við erum ekki komin þangað er það mark­mið okkar að skýra fyrir kol­legum okkar hvað við getum ein­blínt á og hvað við getum gert til að hjálpa fólki og hjálpa því að hjálpa sér sjálft,“ segir Svala. 

Til­gangur Félags lífs­stíls­lækn­inga á Íslandi er að efla menntun og rann­sóknir á sviði lífs­stíls­lækn­inga, veita fag­legan stuðn­ing og umræðu­vett­vang fyrir lækna, heil­brigð­is­starfs­fólk og aðra sem hafa  áhuga á þessu sviði. Öllum er frjálst að ganga í félagið, ekki síst til að efla heilsu­læsi og hegðun almenn­ings til þess að hafa áhrif á þróun íslensks sam­fé­lags og minnka álag á heil­brigð­is­kerfið til lengri tíma. „Það eru ekki bara læknar sem sinna lífs­stíls­s­lækn­ingum, við hvetjum allar stéttir til að not­færa sér þetta,“ segir Kjartan. „Við viljum líka eiga í beinu sam­tali við fólkið þannig að þetta sé bæði fræðsla milli kollega og til að vald­efla ein­stak­ling­inn. Það þurfa ekki allir að fara til lífs­stíls­læknis, upp­lýs­ing­arnar eiga að vera aðgengi­legar,“ segir Tekla. 

Kjartan, Tekla og Svala vinna nú hörðum höndum að skipu­lagn­ingu fyrstu ráð­stefnu lífs­stíls­lækn­inga hér á landi síðar á þessu ári. Öllum er vel­komið að taka þátt í umræð­unni um lífs­stíls­lækn­ingar á Facebook: Félag lífs­stíls­lækn­inga á Íslandi.

Kjósa
26
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár