Jesús og María halda jólin í Reykjavík með Jesú

Jesús Sigfús, konan hans María og sonur þeirra Kristján Jesús halda jólin heilög saman í Reykja­vík. Sá eldri fékk sím­tal frá nunnu sem leit­aði til hans vegna nafns­ins en sá yngri fékk í fyrra sér­staka jóla­kveðju frá ókunn­ugri konu sem vildi heyra í Jesú rétt fyrir afmæli frels­ar­ans.

Jesús og María halda jólin í Reykjavík með Jesú
Nafnar frels­ar­ans Jesús og Jesús ásamt Maríu. Afmæl­is­dagur hennar nálg­ast en þeim degi deilir hún með nafna manns síns og sonar, Jesú Kristi. Mynd: Golli

Síminn hringir nokkrum sinnum og karl­maður tekur upp tólið. „Halló?“ spyr rám rödd með dálitlum hreim.

Góðan dag­inn. Er ég að tala við Jesú?

„Góðan dag­inn. Þú ert að tala við Jesú,“ svarar Jesús. 

Jesús, Jesús og María

Maðurinn í sím­anum er ekki fæddur í Betlehem né heldur er hann helsti trú­ar­leið­togi og mik­il­væg­asta mann­eskjan í krist­inni trú. Hann er þó, líkt og nafni hans Kristur, kenn­ari.

Sá sem heldur á sím­tól­inu er Jesús Sigfús H. Potenciano – fram­halds­skóla- og háskóla­kenn­ari á átt­ræð­is­aldri. Hann er fæddur á Spáni en flutt­ist til Íslands eftir að hann kynnt­ist Maríu Önnu Krist­jáns­dóttur, íslenskri eig­in­konu sinni. Saman eiga hjónin, sem hafa verið saman í rúm fimm­tíu ár, 31 árs gamlan son. Hann heitir Kristján Jesús, en hann er alla jafna kall­aður Jesús.

Þrátt fyrir að fyrsti staf­ur­inn í nafni feðganna sé yfir­leitt bor­inn fram með h-hljóði upp á spænsku, bera þeir báðir nafn sitt fram upp á íslenska mát­ann – með j.

Fólk vildi berja „gripinn“ augum

„Á Spáni er Jesús bara eins og Gunnar eða Daníel. Ekki alveg eins og Jón eða Sigurður, en það er mjög almennt. Ekki bara á Spáni, heldur öllum þessum kaþ­ólsku ríkjum,“ útskýrir Jesús Sigfús.

Það voru því tals­verð við­brigði fyrir hann að koma til Íslands, þar sem hann var lengi vel sá eini sem bar nafnið. „Þegar ég kom hér þá var það ekki til. Ég vann þá í verslun sem tengda­faðir minn átti, Herjólfi í Skip­holti 70, og þá kom fólk til að sjá grip­inn,“ segir hann og skellir upp úr. Hann segir að fólk hafi verið mjög vina­legt, en for­vitið um það af hverju hann væri kom­inn til að starfa á Íslandi. „Ég sagði bara að ég væri ást­fang­inn af konu og þyrfti að gera eitt­hvað,“ segir hann.

Sé flett upp í þjóð­skrá má þar sjá að átta manns bera nafnið Jesús að eig­in­nafni, þar af fjórir að fyrsta nafni. Nafnið hefur þó enn ekki ratað á manna­nafna­skrá. „Ég er ekki lengur stjarnan, ég er bara venju­legur maður. Sem er líka gott,“ segir Jesús Sigfús um þessa fjölgun á nöfnum sínum hér­lendis og hlær. 

Hjálpar við að brjóta ísinn

Sonurinn Kristján Jesús er, líkt og faðir hans og nafni þeirra frá Nasaret, kenn­ari. Hann kennir þó aðeins yngri ald­urs­hópum. „Ég heiti Jesús, kalla mig Jesú, og allir í kringum mig. Ég er umsjón­ar­kenn­ari í grunn­skóla. Ég leyfi nem­endum mínum ekki að kalla mig Jesú – en allir vinir mínir kalla mig Jesú.“

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jólin

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár