Dior 999 Hér les Almar úr bók sinni með Dior 999-vara­lit til að lýsa sem best skyn­bragði orð­anna sem hann notar til að böggla mynd úr haus sínum yfir í haus les­anda. Mynd: Golli

„Þegar ég skrifa svona ástarbréf líður mér vel“

Almar Steinn Atlason, einnig þekktur sem Almar í kass­anum, birt­ist þjóð­inni þegar hann dvaldi í viku í gler­kassa á vegum LhÍ, árið 2015. Um dag­inn hélt hann útgáfu­hóf fyrir nýja bók í þremur bindum: Mold er bara mold. Þar, í Tjarn­ar­bíói, var Almar tengdur við þvag­legg og með nær­ingu í æð – meðan hann las alla bók­ina sleitu­laust á 23 klukku­tímum.

Við að lesa aftan á bæk­urnar þrjár í verki Almars birt­ast bak­síðu­text­arnir eins og sitúa­sjónir frekar en form­leg kynn­ing. Raunar ber heild­ar­verkið bragð af bók­verki – eða hvað segir Almar um það?

 „Minn bak­grunnur er nátt­úr­lega í mynd­list. Þannig að það er ekki skrýtið að maður svingi óvart yfir í þá fag­ur­fræði,“ segir hann og því næst að sitúa­sjón­irnar aftan á bók­unum séu glefsur inn í sög­una: „... svona stillu­augna­blik sem varða svo­lítið leið í gegnum í bók­ina. Og mér fannst að það væri betra að hafa þessar sitúa­sjónir aftan á heldur en lýs­ingar.

Stundum kannski er mín­útu atriði eða sena betri gluggi inn í líf en sam­an­tekt á tutt­ugu árum.“

 En hvað seg­irðu um inni­haldið?

„Þetta eru allar stóru til­finn­ing­arnar og stóru lýs­ing­ar­orðin. Þetta er í raun grunn­ur­inn að sög­unni. Ég hef aldrei kynnst mann­eskju sem …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár