„Í skrítnu millibili sem er eiginlega hvergi“

Gunn­þór­unn Guð­munds­dóttir, pró­fessor, í almennri bók­mennta­fræði, hefur kennt nám­skeið í sjálfsævi­sögu­legum skáld­skap og skoðað minnið sér­stak­lega. Hvernig við túlkum for­tíð­ina. Hér skoðar hún sjálfsævi­sögu­lega skáld­sögu Guðrúnar Evu Mín­vervu­dóttur: Í skugga trjánna – sem Bjartur gefur út.

„Í skrítnu millibili sem er eiginlega hvergi“
Rit­höf­und­ur­inn og sögu­konan Guðrún Eva Mínervu­dóttir dregur les­endur fim­lega inn í sinn heim í skugga trjánna, segir Gunn­þór­unn Guð­munds­dóttir meðal ann­ars í rit­dómi um nýj­ustu bók Guðrúnar Evu, Í skugga trjánna. Mynd: Golli

Nýjasta verk Guðrúnar Evu Mínervu­dóttur, Í skugga trjánna, ber und­ir­tit­il­inn skáld­saga en virð­ist þó að öllu sköpu­lagi vera sjálfsævi­sögu­legur texti. Sögukona okkar, kölluð Eva, segir okkur hvernig hún tekst á við skilnað við eig­in­mann og barns­föður. Hún lítur þá einnig til for­tíðar og ræðir skilnað við fyrri eig­in­mann­inn, en við slík rof í líf­inu dúkka einatt upp önnur rof og áföll úr for­tíð­inni. Úr verður eins konar þroska­saga konu á miðjum aldri, eins mót­sagna­kennt og það hljómar, en mætti þó einnig kalla sögu af end­ur­fæð­ingu skálds. Það er því tvö­falt end­ur­lit í verk­inu, til nýlið­inna atburða og svo til fjar­læg­ari sem spegla þá og setja í sam­hengi. Höfundur hefur áður sent frá sér skáld­sögur sem bera með sér blæ minn­inga­bóka, dag­bóka og/eða sjálfsævi­sagna, þar á meðal Albúm (2002) og Skegg Raspútíns (2016).

„Skrán­ing­ar­þörf sögu­konu er rík og ein­beitt og hún sýnir okkur hér og þar hvernig það mynd­ast ein­hvers konar glufa eða op á milli skáld­skap­ar­ins og veru­leika svo flæðir vel á milli“
Gunn­þór­unn Guð­munds­dóttir

Skrif allt að því líkamlegt viðbragð

Þessi saga er römmuð inn með lýs­ingu af partíi í upp­haf­skafla, nokkrum milli­köflum og lokakafla, þar sem hálf­ó­kunn­ugt fólk hefur komið saman til að taka hug­breyt­andi efni í öruggu umhverfi. Sögu­konan fer þó var­lega í sak­irnar en upp­lifir sig engu að síður í ein­hvers konar milli­bils­á­standi og sögu­sviðið og per­són­urnar í veisl­unni virð­ast vera á öðru til­veru­stigi en per­sónur í öðrum hlutum verks­ins, ein­hvers staðar milli draums og veru­leika eða ofskynj­ana og raun­veru. Þessi inn­römmun nýt­ist höf­undi vel í að búa til til­finn­ingu fyrir innri fram­vindu eða hringrás í skiln­að­ar­sög­unum.

Að skrifa um atburði í lífi sínu er allt að því lík­am­legt við­bragð hjá höf­und­inum, eins og hún skrifi atburði niður um leið og þeir ger­ast – a.m.k. innra með sér. Þetta minnir á þegar Sigurður Pálsson segir frá því í Bernsku­bók hvernig hann reyndi sem barn að halda hey­skap­aran­nál þar sem hann ætl­aði að festa á blað allt sem gerð­ist á hverjum degi – hann baukaði við þetta langt fram eftir nóttu þar til að hann gafst upp, það var ann­að­hvort að lifa eða skrifa, hann réði ekki við að gera hvort tveggja í einu eða eins og segir í bók­inni „veru­leik­inn hafði betur á hverjum ein­asta degi“ (Bernsku­bók, bls. 205).

Þörf fyrir að segja frá

Skrán­ing­ar­þörf sögu­konu er rík og ein­beitt og hún sýnir okkur hér og þar hvernig það mynd­ast ein­hvers konar glufa eða op á milli skáld­skap­ar­ins og veru­leika svo flæðir vel á milli. Fólk sem hún rekst á í hvers­deg­inum getur átt á hættu að rata í bók, eins og túrist­arnir sem hún selur gist­ingu. Þessa þörf segir sögu­konan vera hluta af þeim eig­in­leika sem hún erfði frá föður sínum að fylgj­ast með fólki í kringum sig: „En ólíkt honum sem geymdi allt með sjálfum sér hafði ég þörf fyrir að segja frá. Skjal­festa. Dokúm­entera“ (bls. 77).

Það var sagt um Victor Hugo að hann væri hald­inn grafómaníu eða skrifæði, því­líkur flaumur af textum liggur eftir hann, en hér kemur einnig til söfn­un­ar­árátta eða gríð­ar­leg þörf fyrir að forða líf­inu frá því að hverfa spor­laust – ástand sem margir sjálfsævi­sagna­höf­undar hafa lýst í gegnum tíð­ina. Enda sagði höf­und­ur­inn í við­tali fyrir margt löngu að hún væri „ekki annað en bóka­gerð­ar­vél“ (ívitnað í grein Þor­gerðar E. Sig­urð­ar­dóttur um höf­und­inn í Ritinu: Tímarit Hug­vís­inda­stofn­unar 2003:1). En það eru líka raktar aðrar ástæður fyrir skrif­þörf­inni, þeirri sem kvikn­aði hjá henni á ung­lings­aldri: „Ég skrif­aði vegna þess að heim­ur­inn var eins og kao­tískur basar fullur af varn­ingi sem hróp­aði: Taktu mig með þér heim! Með því að hlýða kall­inu var hægt að henda reiður á hlut­unum; lækna heim­inn af sinni krónísku óreiðu […] Skáld­skap­ur­inn varð hald­reipi og innri eldur“ (bls. 141). Aftur er hér kunn­ug­legt minni úr ævi­skrifum – að koma skikki á óreið­una, að finna þráð­inn í yfir­þyrm­andi flóði aðskilj­an­legra minn­inga og atburða.

Minnishöll

Hug­breyt­andi eða hug­víkk­andi efni, draumkennt ástand, milli­bil og yfir­nátt­úru­leg svið tengir man nú helst við skáld­skap sym­bólist­anna og súr­r­ea­lista – sjaldnar við verk bundin svo ræki­lega við hvers­dag­inn eins og þessi. En þó, í minn­ing­ar­verki sínu Í leit að liðnum tíma er Proust einnig upp­tek­inn af við­líka ástandi – þ.e.a.s. að vera ein­hvers staðar á milli draums og veru­leika og vakna smám saman til sjálfs síns með hjálp lík­ams­minnis. Það mætti líka kalla þá minn­is­höll sem opn­ast honum eftir smákökuát og tedrykkju ann­ar­legt ástand fjarri áþreif­an­legum hvers­degi.

Skrifin eru einnig við­brögð við áföllum, en áföll eru gegn­um­gang­andi í sög­unni – þau sem sögu­konan glímir við, en einnig eldri sár ann­ars fólks sem verður á vegi hennar, t.d. hjá þeim sem koma til hennar í rit­un­ar­búðir, hjá stúlku sem hún tekur í tíma­bundið fóstur og au-pair stúlk­urnar þeirra eiga ýmiss konar áfalla­sögur að baki. Þau áföll tengj­ast mörg hver fíkni­sjúk­dómum sem skrifin eru við­brögð við og svipta hul­unni af til að brjót­ast undan þeim: „Leyndin og lygin vernda okkur fyrir augna­ráði ann­arra. En þessir dygg­ustu þjónar Bakkusar, leynd og lygi, eyði­leggja mann hægt og rólega innan frá“ (bls. 230).

Dregur okkur fimlega inn í sinn heim

Að skrifa um líf ann­arra er þó við­kvæmt og fjöl­mörg dæmi um sjálfs/ævi­sögur sem hafa valdið miklum usla í fjöl­skyldum, jafn­vel lög­sóknum eða þá ein­hvers konar svartextum. Hér vakna því spurn­ingar um afhjúpun einka­lífs, því ýmsar per­sónur eru kunn­ug­legar úr sam­tíð­inni og sumar hverjar bera eigin nöfn, auk þess að skrifað er um börn sem fá litlu um það ráðið. Sögu­konan reynir þó á eigin skinni að vera við­fangs­efni ann­arra, t.d. þegar hennar fyrr­ver­andi segir af henni sögur við mann og annan: „Það er óþægi­legt að missa sögu­þráð eigin lífs út úr hönd­unum af því að ein­hver önnur mann­eskja er með mjög aktífar mein­ingar um hver þú sért. Samt er það að ein­hverju leyti hlut­skipti okkar allra. Við getum ekki stjórnað því hvað aðrir segja um okkur“ (bls. 246). Þetta rímar vel við orð Barböru Johnson sem sagði eitt sinn í umfjöllun um ævi­sögu Sylviu Plath og Ted Hughes að það að ein­hver fylgist með manni sé ein­hvers konar rán, en okkar ævi sé einmitt það sem við getum ekki átt. Vit­neskja um okkar líf sé alltaf nú þegar ann­arra.

Það koma augna­blik í frá­sögn­inni þar sem texti og veru­leiki renna svo kirfi­lega saman í eitt að það er eins og höf­und­ur­inn sé mættur og skrifi text­ann jafn­óðum og les­and­inn les. Þannig dregur sögu­konan okkur fim­lega inn í sinn heim í skugga trjánna. Þetta er inn­hverfur texti, sjálfsmið­aður bæði að efni og formi, en fjallar þó einnig um það að sjálfið mót­ast í sam­lífi með öðrum, hvers­dag­ur­inn rúmar flókin tengsla­net og það að hlusta á aðra, að vera „vel­viljað vitni“ (bls. 77), geti auðgað sjálf og hvers­dag.

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár