„Bandaríski draumurinn holdi klæddur“

Stjórn­mála­fræði­pró­fess­or­inn Baldur Þór­halls­son segir að kjör Donalds Trump skýrist helst af hefð­bundnum efna­hags­legum ástæðum. Fyrir mörgum Banda­ríkja­mönnum sé verð­andi for­seti hold­gerv­ingur banda­ríska draums­ins og lík­legri til að halda honum á lífi en fram­bjóð­andi Demókra­ta­flokks­ins. Baldur segir að íslenskra stjórn­valda bíði það verk­efni að reyna að sog­ast ekki inn í við­skipta­stríð Banda­ríkj­anna og Kína.

„Bandaríski draumurinn holdi klæddur“
Trump og Harris mætt­ust Donald Trump vann kosn­ing­arnar með yfir­burðum og boðar hefð­bundna ein­angr­un­ar­stefnu, vernd­ar­tolla og minni aðkomu að stríðs­á­tökum ann­arra ríkja. Mynd: AFP

Baldur Þór­halls­son stjórn­mála­fræði­pró­fessor telur að ekki megi lesa of mikið í kjör Donalds Trumps­sem for­seta Banda­ríkj­anna í annað sinn, í þeirri mein­ingu að rúmur helm­ingur banda­rískra kjós­enda sé með því sér­stak­lega að lýsa sig fylgj­andi orð­ræðu og öllum ítr­ustu fyr­ir­ætl­unum Trumps. Sigur hans megi skýra með sömu skýr­ingum og helst hafa verið not­aðar til að skýra út kosn­inga­úr­slit í Banda­ríkj­unum und­an­farna öld. 

„Hann boðar frelsi ein­stak­lings­ins, hann boðar lága skatta, hann er banda­ríski draum­ur­inn holdi klæddur, fyrir helm­ing Banda­ríkja­manna,“ segir Baldur í sam­tali við Heim­ild­ina frá höf­uð­borg Banda­ríkj­anna, Washington D.C. „Ég held að alla Banda­ríkja­menn dreymi banda­ríska draum­inn. Og Trump er hann og lofar að halda honum á lífi. Það eru allir að von­ast til þess að einn góðan veð­ur­dag detti banda­ríski draum­ur­inn í fangið á þeim. Þeir telja að Trump og Repúblikanar séu lík­legri til þess að láta það ger­ast en Demókratar,“ segir Baldur.

„Þetta held ég …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár