Fiskurinn sem fer um Belarús: „Ég mun ræða þetta“

Ferða­manna­lausir Þing­vellir í rign­ingu og roki voru vett­vangur einka­fundar Bjarna Bene­dikts­sonar for­sæt­is­ráð­herra og Volodomír Selenski, for­seta Úkraínu, síð­degis á mánu­dag. „Við þurfum raun­veru­legan stuðn­ing,“ sagði Selenskí á leið inn á fund­inn en virt­ist hissa þegar hann var spurður út í hvort útflutn­ingur Íslend­inga á fiski til Rúss­lands í gegnum bela­rúss­neskan milli­lið hefði borið á góma.

Fiskurinn sem fer um Belarús: „Ég mun ræða þetta“
Virtist hissa „Þú getur sagt mér frá því – og ég mun ræða þetta við for­sæt­is­ráð­herr­ann,“ sagði Volodomír Selenskí á blaða­manna­fundi sem hald­inn var á Þing­völlum, um áfram­hald­andi útflutn­ing Íslands til Rúss­lands í gegnum bela­rúss­neskan milli­lið. Hann virt­ist hissa á spurn­ing­unni. Mynd: Golli

Á núm­erslausum BMW var Volodomír Selenskí, for­seta Úkraínu, ekið bein­ustu leið frá Kefla­vík­ur­flug­velli til Þing­valla síð­degis á mánu­dag. Jakka­fata­klæddur Bjarni Bene­dikts­son stóð í rign­ing­unni á tröppum Þing­valla­bæj­ar­ins og bauð for­set­ann vel­kom­inn í vöggu lýð­ræðis á Íslandi, eins og hann orð­aði það. Þetta var ekki fyrsti fundur þeirra tveggja en sá fyrsti sem fram fer á Íslandi, á heima­velli Bjarna, sem er mögu­lega að taka á móti sínum síð­asta opin­bera gesti í hlut­verki for­sæt­is­ráð­herra. Um fjórar vikur eru síðan að Bjarni fékk veður af komu Selenskí til Íslands, sam­kvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar, en mikil leynd hvíldi yfir komu hans, eins og er jafnan um ferðir hans.

„Takk fyrir að bjóða mér,“ sagði Selenskí, eftir að hafa gengið 33 metra leið úr bílnum og til Bjarna, þar sem hann stóð á tröpp­unum. Fjórum íslenskum fjöl­miðlum hafði verið boðið að standa aðeins til hliðar við tröpp­urnar og smella af myndum og reyna að …

Kjósa
30
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ásgeir Överby skrifaði
    " og ég mun ræða þetta við forsætisráðherrann,"
    ... og hvað svo? Munu fiskúflytjendur halda áfram að flytja út til Hvítarússlands eins og ekkert hafi í skorist? En innflutningur þangað hefur hundraðfaldast síðan stríðið hófst.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár