Svetlana Árið 2020 varð hún „óvilj­andi“ að sam­ein­ing­ar­tákni þjóðar sinnar. Hún var á Íslandi í vik­unni vegna þings for­sætis­nefndar Norð­ur­landa­ráðs. Mynd: Golli

Viðskipti trompa ekki lýðræði og mannréttindi

Hún er ein­hver þekkt­asti þjóð­ar­leið­togi síns heims­hluta og á viku­lega fundi með stjórn­mála­leið­togum stærstu þjóða heims­ins. Samt er hún ekki leið­togi í heima­landi sínu og er enn að venj­ast því að vera kölluð stjórn­mála­maður.

Auðvitað verð ég þreytt og auð­vitað velti ég því oft fyrir mér hvort allir þessir fundir og öll þessi ferða­lög hafi skilað nægi­lega miklu; hvort við séum í raun og veru að fá meira en góðar mót­tökur,“ segir Svetlana Tsjí­konovskaja, spurð hvort und­an­farin fjögur ár hafi skilað því sem hún von­að­ist til.

Svetlana er leið­togi stjórn­and­stöð­unnar í Belarús, fyrr­ver­andi for­seta­fram­bjóð­andi, af mörgum álitin raun­veru­legur for­seti lands­ins sem hún neydd­ist til að flýja fyrir fjórum árum.

„Svo lítur maður framan í þá og sér ekk­ert nema tóm augun og það rennur upp fyrir manni að við­kom­andi hefur hvorki skiln­ing eða samúð fyrir lífi og örlögum okkar fólks“

Hún segir margt hafa áunn­ist þó enn sé langt í land. Skiln­ingur og með­vit­und umheims­ins um ástandið í heima­landi hennar sé mik­il­vægur áfangi einn og sér. Það hafi loks­ins tekst að beina augum heims­byggð­ar­innar á lífið undir …

Kjósa
27
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár