Mæðgur fóru báðar í brjóstnám

Hin 25 ára gamla Hrafn­hildur Ing­ólfs­dóttir gekkst undir tvö­falt brjóst­nám í fyrra eftir að hún greind­ist með stökk­breyt­ingu í BRCA1-gen­inu. Guðrún Katrín Ragn­hild­ar­dóttir, móðir hennar, hefur einnig látið fjar­lægja brjóst sín – en hún fékk brjóstakrabba­mein 28 ára gömul.

Mæðgur fóru báðar í brjóstnám
Nánar Auk þess að hafa báðar farið í brjóst­nám hafa mæðgurnar báðar lagt fyrir sig hjúkr­un­ar­fræði og starfa á sömu deild Land­spít­al­ans. Mynd: Golli

Það var sjokk. Ég held að maður geti aldrei ímyndað sér nákvæm­lega hvernig það er, en það var algjört sjokk. Það var skrítin til­finn­ing því að ég var alveg ánægð – það var léttir að þetta var búið. En á sama tíma var þetta raun­veru­leik­inn. En ég hafði það alltaf bak við eyrað að þetta verður ekki svona að eilífu.“

Svona lýsir Hrafn­hildur Ing­ólfs­dóttir, 25 ára gam­all hjúkr­un­ar­fræði­nemi, við­brögðum sínum við því að sjá sig í fyrsta skipti í spegli eftir að hún hafði und­ir­geng­ist tvö­falt brjóst­nám. Hún ákvað að fara í aðgerð­ina í vor eftir að hafa greinst með stökk­breyt­ingu í BRCA1-geni.

Krabbamein í beinan kvenlegg

Hrafn­hildur var í tíma í skurð­hjúkrun snemma árs í fyrra þegar hún heyrði minnst á brakka­genið. Þó að þetta væri ekki í fyrsta sinn sem hún heyrði um það þá var þetta í fyrsta sinn sem hún leiddi að því hug­ann hvort hún væri mögu­lega með stökk­breytt gen. 

Bæði móðir og móð­ur­amma Hrafn­hildar höfðu fengið brjóstakrabba­mein til­tölu­lega ungar og því voru ein­hverjar líkur á að hún gæti sjálf verið með þessa stökk­breyt­ingu. En 55 til 65 pró­sent líkur eru á að kona sem hefur hana fái brjóstakrabba­mein fyrir sjö­tugt.

Ragn­hildur Björns­dóttir, amma Hrafn­hildar, var fimm­tug þegar hún tap­aði bar­áttu sinni við brjóstakrabba­mein vorið 1998. Það var á svip­uðum tíma og Guðrún Katrín Ragn­hild­ar­dóttir komst að því að hún ætti von á Hrafn­hildi. Aðeins tveimur árum eftir and­lát móður sinnar greind­ist Guðrún sjálf með brjóstakrabba­mein.

Hrafn­hildur ákvað, eftir að hafa hugsað málið, að hafa sam­band við brjósta­mið­stöð Land­spít­al­ans þar sem hún fékk erfða­ráð­gjöf. Nið­ur­staða rann­sókna var að hún, líkt og móðir hennar, væri ein af fáum Íslend­ingum sem væru með stökk­breyt­ingu í BRCA1-gen­inu.

„Þetta var nátt­úr­lega mjög mikið áfall, þegar ég fékk þessar fréttir, en samt ein­hvern veg­inn fannst mér ég vera með eitt­hvað í hönd­unum. Ég gat gert eitt­hvað í þessu,“ segir Hrafn­hildur.

 90 prósent líkur á brjóstakrabbameini

Í ljósi mik­illar sögu brjóstakrabba­meina í fjöl­skyld­unni voru lík­urnar á því að Hrafn­hildur myndi þróa með sér brjóstakrabba­mein á lífs­leið­inni taldar vera um 90 pró­sent.

Kjósa
25
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár