Að breyta áföllum í list­ræna sigra „Þetta var ein­hvers­konar djúpsál­ar­leg tján­ing á hlut­verki þol­and­ans. Frá því ég kom út úr skápnum með ofbeldið, árið 2015, hef ég svo ekki gert neina Grim-mynd,“ segir Hall­grímur Helgason. Mynd: Golli

„Ég var að mála partíið innra með mér“

„Að losa mig við nauðg­un­ar­byrð­ina end­ur­nýj­aði mig sem höf­und og lista­mann,“ segir Hall­grímur Helgason, nú þegar hann fagnar list­rænum sigrum – sem hefðu jafn­vel ekki orðið svo magn­aðir án áfalla for­tíðar. Sköpun hans á sér engin tak­mörk, líkt og sjá má á yfir­lits­sýn­ingu á verkum hans og í loka­bindi þrí­leiks hans. Hann ræðir eitt eitr­að­asta málið sem skekið hefur íslenskan bók­mennta­heim; þegar hann steig fram sem þol­andi nauðg­unar og mætti háði vold­ugra penna – meðal ann­ars hjá RÚV.

Segja má að Hall­grímur andi með sam­fé­lag­inu. Sem rit­höf­undur, lista­maður og sam­fé­lags­rýnir. Þessi hlut­verk renna saman í eina rödd; eins ríka af orðum og hún er lit­rík og kröftug.

„Það hefur verið mín helsta póli­tíska skylda að vera á vakt­inni gagn­vart spill­ingu og mis­beit­ingu valds,“ segir hann aðspurður um sam­fé­lags­rýn­ina sem lúrir einnig í bókum hans. „Ég er lélegri í launa­töflum, efna­hags­málum og verka­lýðs­bar­áttu; ekki vel læs á pen­inga­mál. En þegar kemur að rétt­læt­is­málum og spill­ing­ar­málum er ég á heima­velli. Þá reyni ég að láta heyra í mér.“

Hvaðan kemur sú hvöt, að finna til póli­tískrar skyldu?

„Ég fékk eitt sinn heið­urs­orðu frá Frökkum. Af því til­efni flutti franski sendi­herr­ann ræðu um leið og hann setti á mig orð­una og sagði að ég væri „écrivain engagé“ – en það er ákveðið hug­tak sem Frakkar eiga yfir þá rit­höf­unda sem auk þess …

Kjósa
69
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Þórdís Þórðardóttir skrifaði
    Flott viðtal. Gleymi því aldrei hvað mér brá mikið við skrif Guðbergs. Þarna opinberaði hann svo mikla sjálfsfyrirlitningu og misnotaði vald sitt til að verja nauðganir. Guðbergur trónaði í efstu sætum íslenskra rithöfunda á mínum lista en ég hef æ síðan átt erfitt með að greina verk hans frá hans persónu eftir að hann opinberaði sig í þessari andstyggilegu grein.
    6
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár