Tónlist geti dimmu í dagsljós breytt

Magnea Tóm­as­dóttir óperu­söng­kona segir að tón­listin sé lík­lega það síð­asta sem hverfi frá fólki sem sé með heila­bilun. Músíkin sé enda djúpt í kjarna okkar allra. Magnea hefur um ára­bil kennt starfs­fólki hjúkr­un­ar­heim­ila og aðstand­endum fólks með heila­bilun að nota tón­list til að bæta líðan þeirra sem eru veik.

Tónlist geti dimmu í dagsljós breytt
Frelsi til tján­ingar Magnea Tóm­as­dóttir, óperu­söng­kona segir að tón­list geti verið mjög góð leið til að ná til kjarna mann­eskj­unnar og þar með veitt fólki með heila­bilun frelsi til tján­ingar. Mynd: Golli

Þetta snýst um að opna hjartað. Þó að fólk sé búið að tapa alls kyns færni er alltaf eitt­hvað sem hægt er að grafa eftir. Ég held að tón­listin sé það síð­asta sem fer hjá okkur. Svo lengi sem við drögum and­ann getum við notið tón­listar.“

Þetta segir Magnea Tóm­as­dóttir óperu­söng­kona, sem hefur meðal ann­ars kennt á nám­skeið­inu Tónlist og heila­bilun í Lista­há­skóla Íslands og stýrir á næst­unni nám­skeiði hjá Mími sem er ætlað starfs­fólki í umönn­un­ar­störfum og aðstand­endum fólks með heila­bilun. 

Sextug þegar hún greindist með heilabilun

Mamma og pabbi Magneu veikt­ust bæði af heila­bil­un­ar­sjúk­dómi. „Mamma var bara sex­tug þegar hún greind­ist og ég var mjög ung þegar það gerð­ist, eða 27 ára. Mér fannst ég ekki ung á þeim tíma en sé núna að svo var. Pabbi minn greind­ist síðan seinna með heila­bilun. Hann var gröfu­karl en líka tón­list­ar­maður sem spil­aði djass.“ 

…
Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár