Eyði­legg­ing Í gær lét­ust minnst 24 Palest­ínu­menn í loft­árás Ísra­els­hers á Ibn Rushd skól­ann í Al-Zawaida, þar sem fólk sem hafði flúið heim­ili sín vegna stríðs­ins hafð­ist við, sem og í annarri árás hers­ins. 93 aðrir slös­uð­ust í árás­unum tveimur. Mynd: Ashraf Amra / Anadolu

Ár af stríði og hörmungum á Gaza

Yfir fjöru­tíu þús­und Palest­ínu­menn hafa verið drepnir á árinu sem liðið hefur frá hryðju­verka­árás Hamas á Ísrael. Fjórtán hund­ruð Ísraelar hafa verið drepnir í átök­unum, lang­flestir í árás­unum þann 7. októ­ber. Sprengjum hefur rignt yfir íbúa Gaza og rök­studdur grunur er um að stríðs­glæpir hafi verið framdir.

Sprengjum rignir enn á Gazaströndinni, ári eftir hryðju­verka­árás Hamas á Ísrael þann 7. októ­ber á síð­asta ári. Tug­þús­undir Palest­ínu­manna hafa lát­ist og rök­studdur grunur er um að Ísra­els­her fremji stríðs­glæpi í hefnd­ar­að­gerðum sínum fyrir hryðju­verka­árás­ina. Enn er nokkur fjöldi gísla í haldi Hamas á Gaza, sem teknir voru höndum í árás sam­tak­anna á Ísrael fyrir ári síðan. 

2,3 millj­ónir manna búa á Gaza-strönd­inni en land­svæðið er ekki nema um 365 fer­kíló­metrar að stærð. Gervi­hnatt­ar­myndir sýna eyði­legg­ing­una eftir árásir Ísra­els­hers, sem hefur lagt heilu hverfin í rúst, grandað alda­gömlum moskum og kirkjum og eyði­lagt rækt­ar­land. Samkvæmt mati Sam­ein­uðu þjóð­anna, sem unnið er út frá gervi­hnatt­ar­myndum, er rétt um fjórð­ungur allra bygg­inga á Gaza gjör­eyði­lagðar eða illa skemmdar. Um 66 pró­sent þeirra hafa verið skemmdar að ein­hverju leyti í árás­unum, þar á meðal um 227.000 íbúðir. 

Aldrei áður hafa við­var­andi stríðs­á­tök á Gaza varað jafn lengi og þau hafa gert nú, þó átaka­saga ríkj­anna tveggja spanni ára­tugi. Yfir 1.100 Ísraelar hafa verið drepnir á þessum tólf mán­uðum, lang­flestir í árás­unum sjálfum 7. októ­ber. Fleiri en 41.000 Palest­ínu­menn hafa á sama tíma verið drepnir í hefndar árásum ísra­el­skra stjórn­valda. 

Átökin hafa færst út fyrir Gaza og Ísrael og eru nú fjöl­margir óbreyttir líbanskir borg­arar nú á flótta undan loft­árásum Ísra­els­hers. Í nótt vörp­uðu Ísraelar sprengjum á Beirút, höf­uð­borg Líbanon, í her­ferð sinni gegn Hezbollah, sem hafa stutt við aðgerðir Hamas með árásum á Ísrael. Tæplega fjórð­ungur íbúa Líbanon hefur flúið heim­ili sín og haf­ast sumir við í tjöldum, bílum eða á göt­unni. 1.400 hafa verið drepnir í árásum Ísraels á Líbanon. Þar að auki hafa Ísraelar og Íranir skipst á eld­flauga- og loft­árásum. 

Ekki sér fyrir end­ann á átök­unum en yfir­lýst mark­mið ísra­el­skra ráða­manna er að upp­ræta Hamas. Liðsmenn þeirra halda áfram að berj­ast og virð­ast langan veg frá því að gef­ast upp. Í nótt skutu Ham­asliðar flug­skeytum á Tel Aviv, höf­uð­borg Ísraels, á sama tíma og for­seti lands­ins, Isaac Herzog, hóf minn­ing­ar­at­höfn um árás sam­tak­anna fyrir sléttu ári. 

Innan Ísraels virð­ist víð­tækur stuðn­ingur við aðgerðir stjórn­valda gegn íbúum Gazastrandarinnar. Þó er tek­ist á um hvar áhersl­unar ættu að liggja og hvaða mark­mið ætti að hafa að leið­ar­ljósi. Stór hópur Ísraela er þannig óánægður með að stjórn­völd skuli ekki leggja harðar að sér að frelsa þá Ísraela sem enn eru fangar Hamas eftir hryðju­verka­árás­ina, frekar en að setja allt púður í að útrýma liðs­mönnum sam­tak­anna. Sextíu og þrír gíslar eru enn í haldi Hamas á Gaza af þeim 251 sem teknir voru í hryðju­verka­árásinni 7. Október. Sextíu og þrír eru látnir en 117 hefur verið sleppt úr haldi. 

Ísraelsk stjórn­völd njóta stuðn­ings víða á Vest­ur­löndum og hafa Banda­ríkin heitið því að standa með Ísrael í átök­unum uns yfir líkur. Samkvæmt þar­lendum fjöl­miðlum, hafa banda­rísk stjórn­völd varið jafn­virði 2.510 millj­arða íslenskra króna í beinan stuðn­ing við aðgerðir Ísraela.

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu