Önnur vaxtalækkun Hadiu Helgu

Þegar fjöl­skylda í Kópavogi tók á móti stúlku­barni í heim­inn í nóv­em­ber árið 2020 voru nokkrir dagar í sein­ustu vaxta­lækkun Seðla­bank­ans í hart­nær fjögur ár. Hadia Helga Ásdís­ar­dóttir Virk á hag­fræði­mennt­aða for­eldra sem náðu að festa sögu­lega lága vexti til fimm ára þegar hún var ein­ungis mán­að­ar­gömul. Nú lækka vextir á ný. For­eldrar hennar búa sig samt undir skell að ári.

Önnur vaxtalækkun Hadiu Helgu

Hadia Helga Ásdís­ar­dóttir Virk er fædd í byrjun nóv­em­ber árið 2020. Síðan hún fædd­ist hafa stýri­vextir Seðla­bank­ans ein­ungis lækkað tvisvar. Fyrst um miðjan fæð­ing­ar­mán­uð­inn og aftur núna, tæpum fjórum árum seinna.

Hún býr í Kópavogi ásamt for­eldrum sínum, Ásdísi Virk Sig­tryggs­dóttur og Usman Ghani Virk og bróður sínum, Karli Salmani. Við þessi tíma­mót, aðra vaxta­lækkun dótt­ur­innar, ákvað Heim­ildin að taka móð­ur­ina Ásdísi tali. Hvernig hefur hið sam­fellda tíma­bil hækk­andi og svo stöðugra hárra vaxta farið með efna­hag fjöl­skyld­unnar?

Hjá Ásdísi kom blaða­maður ekki að tómum kof­unum varð­andi efna­hags­mál, enda eru bæði hún og Usman hag­fræð­ingar að mennt og kynnt­ust raunar í Þýska­landi, í hag­fræði­námi. Þau fluttu til lands­ins með ekk­ert nema náms­skuldir árið 2016 en náðu samt að kaupa sér sína fyrstu eign árið 2018.

„Mamma mín deyr úr krabba­meini 2017, pabbi selur húsið þeirra og gat lánað okkur fyrir útborg­un­inni. Annars værum við mögu­lega ekki komin …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár