Loftárás Ísraels á Beirút í sept­em­ber síð­ast­liðnum. Mynd: afp

Loftárásir halda áfram á Fönikíu

Hvaða land er Líbanon? Þótt landið virð­ist ekki eiga sér mikla sögu er sú saga reyndar bæði merk og löng. Það ríki sem Ísrael varpar nú á sprengjum sínum var fyrir um 3.000 árum eitt það merki­leg­asta og þrótt­mesta í heimi.

Þetta var eitt grimmi­leg­asta umsátur forn­ald­ar­sög­unnar. Hinn ósigr­andi Makedón­íu­kon­ungur var árið 332 FT kom­inn til Fönikíu með 30.000 manna þraut­reyndan her sem hafði þegar hrundið Daríusi Per­sa­kóngi á flótta og var nú á leið­inni suður til Egifta­lands að leggja undir sig píramídana og Nílardal.

En kon­ungur borg­ar­innar Týrus neit­aði að gef­ast upp fyrir Alex­ander þegar leið hers­ins lá þar um og samn­inga­þóf bæði við Týrus­menn og Per­sa­kóng skil­aði engu.

Hvað átti Alex­ander að gera? Farðu fram hjá Týrus og láttu borg­ina eiga sig, sögðu sumir manna hans.

En Týru­s­kóngur réði yfir öfl­ugum flota sem ungi Makedón­íu­kóng­ur­inn ætl­aði að gæti orðið sér skeinu­hættur. Því gerði Alex­ander sjö mán­aða hlé á her­ferð sinni meðan hann reyndi af afefli að kné­setja Fönik­íu­menn, og tókst það loks með nær ofur­mann­legu erf­iði – sínu og manna sinna.

Óvænt grimmd Alexanders mikla

Meg­in­hluti borg­ar­innar var nefni­lega á ræki­lega víg­girtri eyju …

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið undanfarið ár