Náttúran er skólastofa framtíðarinnar
Doktor í úti­menntun Jakob Frímann Þor­steins­son er fyrsti dokt­or­inn í úti­menntun hér á landi. Honum langar að efla úti­menntun á Íslandi og lyfta því sem vel er gert í skóla­starfi, tóm­stunda­starfi og ferða­þjón­ustu. „Svo langar mig bara að gera eitt­hvað sem er skemmti­legt.“ Mynd: Kristinn Ingvarsson

Náttúran er skólastofa framtíðarinnar

Mögu­leikar úti­mennt­unar á Íslandi fel­ast í sér­stöðu íslenskrar nátt­úru og fjöl­breyti­leika hennar. Dr. Jakob Frímann Þor­steins­son hefur unnið hörðum höndum að því að gera úti­vist að úti­menntun og í dokt­ors­rann­sókn sinni kann­aði hann mögu­leika úti­mennt­unar á Íslandi. Og þeir eru fjöl­margir. „Langstærsta hindr­unin er í hausnum á okkur sjálfum.“

Fram­tíð­ar­skóla­stofan er úti í nátt­úr­unni, ekki við tölvu­skjá í skóla­stofu. Þannig sér dr. Jakob Frímann Þor­steins­son, nýdoktor í mennta­vís­indum, kennslu fyrir sér í nán­ustu fram­tíð. Í vor varði Jakob dokt­ors­rit­gerð sína við Deild mennt­unar og marg­breyti­leika í Háskóla Íslands. Sérsvið hans er úti­menntun og í dokt­ors­rit­gerð sinni greinir hann mögu­leika úti­mennt­unar á Íslandi.  

„Úti­menntun sem fag er enn þá í mótun á Íslandi. Þegar við erum að „hug­taka“ heim­inn þá erum við að flokka heim­inn í náms­greinar, en svo er svo margt sem fellur á milli náms­greina. Þetta er bara hug­ar­smíð okkar,“ segir Jakob. Fyrstu heim­ildir um úti­menntun á Íslandi er að finna í hug­myndum um skóla­starf á upp­hafs­árum 20. aldar. „Það voru vor­skólar og talað um gildi þess fyrir nem­endur að fara í svo­kall­aðar skóla­göngur til að upp­lifa nátt­úr­una. Við not­uðum önnur orð um þetta en við vorum að tala um þessi tengsl við sam­fé­lagið og nátt­úr­una. Hug­myndin um …

Kjósa
25
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár