Ísland hefur aldrei verið með færri stig á lista yfir fjölmiðlafrelsi í heiminum

Ísland situr áfram í sama sæti og landið gerði í fyrra í mæl­ingu Blaða­manna án landamæra á fjöl­miðla­frelsi. Landið hefur aldrei farið neðar á list­anum en það en framan af öld­inni sat Íslandi í efstu sætum hans. Ófræg­ing­ar­her­ferðir og lög­reglu­rann­sóknir á blaða­mönnum er meðal þess sem dregur Ísland niður.

Ísland hefur aldrei verið með færri stig á lista yfir fjölmiðlafrelsi í heiminum
Fjöl­miðla­frelsi Blaða­menn hafa það hlut­verk að upp­lýsa almenn­ing og veita vald­höfum aðhald. Ef þeim tekst vel til, og sam­fé­lag­inu tekst að tryggja þeim við­eig­andi starfs­að­stæður til að stunda sína vinnu, þá mælist fjöl­miðla­frelsi mikið. Ef það tekst ekki þá minnkar það. Mynd: Golli

Ísland situr áfram í 18. sæti á lista Blaða­manna án landamæra sem mælir fjöl­miðla­frelsi í 180 ríki heims­ins og var birtur í dag, en stiga­fjöldi lands­ins dregst saman milli ára og hefur aldrei verið lægri. Þetta er lægsta sæti sem Ísland hefur setið í síðan 2016, en Ísland mæld­ist oft­ast nær í efstu sætum list­ans framan af þess­ari öld. Þannig var Ísland í fyrsta sæti á lista sam­tak­anna yfir þau lönd þar sem fjöl­miðla­frelsi var mest árið 2008 og í öðru sæti tveimur árum síðar.

Frá þeim tíma hefur Ísland hrapað hratt á list­anum. Fyrsta fallið kom á árunum 2015 og 2016, þegar Íslandi féll niður í 19. og 21. sæti list­ans. Það var komið í 10. sæti árið 2017 og hefur verið í 15. til 16. sæti á síð­ustu árum. Nú er Ísland, líkt og áður sagði, komið í 18. sætið. 

Áfram sem áður raða nágranna­lönd okkar sér í efstu sætin. Noregur trónir á toppnum á meðan að Danmörk, Svíþjóð og Finnland sitja í sætum þrjú til fimm. Eina landið sem smeygir sér á milli Norð­ur­land­anna í þeim sætum er Holland sem situr í fjórða sæti. 

Eignahald getur skapa hagsmunaárekstur

Á meðal þess sem til­tekið er í grein­ingu sam­tak­anna á íslenskum fjöl­miðla­mark­aði er að stór sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki eigi fjöl­miðla­fyr­ir­tæki og að það veki upp spurn­ingar um hags­muna­á­rekstra. Er þar átt við eign­ar­hald fjöl­skyld­unnar sem er stærsti eig­andi Ísfé­lags­ins, Guð­bjargar Matth­í­as­dóttur og barna hennar, og Kaup­fé­lags Skag­firð­inga á Árvakri, útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins. Tap þeirrar fjöl­miðla­sam­stæðu frá því að áhrifa­hópar innan íslensks sjáv­ar­út­vegs keyptu hana árið 2009 var farið að nálg­ast þrjá millj­arða króna í lok árs 2022. 

Þá er sér­stak­lega tekið fram að blaða­menn sem stóðu að umfjöllun um Samherja og meinta glæpi þess fyr­ir­tækis frá árinu 2019 hafi þurft að sæta lög­reglu­rann­sókn og opin­berri ófræg­ing­ar­her­ferð. Er þar vísað í rann­sókn lög­regl­unnar á Norð­ur­landi eystra á fimm blaða­mönnum, þar af fjórum sem starfa í dag á Heim­ild­inni, fyrir meint brot á frið­helgi einka­lífs vegna umfjöll­unar um hina svoköll­uðu Skæru­liða­deild Samherja sem birt var í maí 2021. Umrædd rann­sókn hefur staðið í þrjú ár og 26 mán­uðir eru síðan að fjórir blaða­mann­anna fengu stöðu sak­born­ings í mál­inu. Þeir hafa verið yfir­heyrðir einu sinni, í ágúst 2022. 

Óvægin gagnrýni frá stjórnmálamönnum

Samtökin til­taka líka að blaða­menn hafi orðið fyrir sífellt óvægn­ari gagn­rýni á Alþingi sem sumir blaða­menn upp­lifi sem póli­tískan þrýst­ing. Lagaum­hverfi blaða­manna sé að uppi­stöðu í lagi og tryggi fjöl­miðla­frelsi ásamt aðgengi að opin­berum upp­lýs­ingum. Fram­fylgd þeirra laga sé hins vegar annað mál og það hafi hold­gervst í þeirri stöðu sem kom upp í kringum jarð­hrær­ing­arnar á Reykja­nesi, þegar lög­reglu­yf­ir­völd ætl­uðu að skerða veru­lega aðgengi fjöl­miðla að ham­fara­svæð­inu. Lausn náð­ist í því máli fyrr á þessu ári, eftir að Blaða­manna­fé­lag Íslands stefndi íslenska rík­inu, en í henni felst að blaða­menn og ljós­mynd­arar eru skil­greindir sem við­bragðs­að­ilar og fá sama aðgengi og aðrir slíkir. Blaða­menn án landamæra segja að siða­reglu­kerfi íslenskra blaða­manna, sem myndar fag­legan grunn undir starf­semi þeirra, virki vel. 

Efna­hags­leg staða íslenskra fjöl­miðla er sögð slæm. Þótt rann­sókn­ar­blaða­mennska hafi vaxið í kjöl­far stórra afhjúpanna á spill­ing­ar­málum á síð­ustu árum þá hafa aug­lýs­inga­tekjur hríð­fallið. Þessu hafi stjórn­völd mætt með upp­setn­ingu á styrkja­kerfi en áhyggjur séu af því innan blaða­manna­stétt­ar­innar að það kerfi gagn­ist fyrst og síð­ast stærstu fjöl­miðla­fyr­ir­tækj­unum. 

Flestir blaða­menn á Íslandi upp­lifa sig nokkuð örugga og hræð­ast ekki að verða beittir lík­am­legu ofbeldi. Kvenkyns blaða­menn verði þó endrum og sinnum fyrir því að vera hótað sím­leiðis eða í gegnum ummælum á sam­fé­lags­miðlum. Þetta vanda­mál er, sam­kvæmt grein­ing­unni, vax­andi á Íslandi. 

Norður-Kórea skríður af botninum

Í sam­an­tekt Blaða­manna án landamæra er 180 löndum og svæðum raðað upp í röð eftir fjöl­miðla­frelsi. Hún byggir á því að sér­­fræð­ingar svara spurn­inga­list­­anum sem gerður er af sam­tök­un­­um. Þau svör eru síðan greind og lönd­unum gefin ein­kunn. Því hærri sem hún er, því meira er fjöl­miðla­frels­ið. Nor­egur fær til að mynda ein­kunn­ina 91,89.

Ísland fær hins vegar 80,13 og stiga­­fjöldi lands­ins dregst saman um 3,06 stig  á milli ára. 

Eritrea vermir neðsta sæti list­ans en skammt fyrir ofan það er Sýrland og Afganistan situr í þriðja neðsta sæt­inu. Ein­ræð­is­ríkið Norður-Kórea, sem sat á botn­inum í fyrra, situr nú í sæti 177 og stór­veldið Kína, sem var í næst neðsta sæti fyrir ári síðan, klifrar upp í sæti 172. 


Fyr­ir­vari um hags­muni: Í frétt­inni er fjallað um atburði sem tengj­ast Heim­ild­inni og starfs­mönnum fjöl­mið­ils­ins beint. Höfundur er á meðal þeirra sem eru með rétta­stöðu sak­born­ings í rann­sókn lög­regl­unnar á Norð­ur­landi eystra sem fjallað er um.
Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár