Nasistar og nútíminn á hvíta tjaldinu

Kvik­myndin The Zone of Interest í leik­stjórn Jonathan Glazer tekst á við hel­för­ina en á annan hátt en venja er fyrir, hún skoðar hryll­ing hennar í gegnum hvers­dags­legt líf ger­enda hennar, fjöl­skyldu sem bjó beint fyrir utan Auschwitz-útrým­ing­ar­búð­irnar. Myndin er ekki um þá fjöl­skyldu þó hún sé svo sann­ar­lega í miðju hennar. Leik­stjór­inn hefur sagt að myndin sé ekki gluggi inn í for­tíð­ina heldur við­vörun fyrir nútím­ann.

Kvik­myndin The Zone of Interest í leik­stjórn Jonathan Glazer byrjar í myrkri og með drunga­fullu tón­verki Mica Levi sem varir í nokkrar mín­útur þar til hljóð­mynd, fugla­söngur tekur við. Myrkrið og tón­verkið gefur áhorf­endum til kynna að myndin er alvar­leg enda um mann sem stjórn­aði fræg­ustu útrým­ing­ar­búðum nas­ista og fjöl­skyldu hans á því tíma­bili sem flestir voru myrtir í búð­unum. 

Við myrkr­inu tekur við mynd eins og úr fjöl­skyldu­albúmi, fjöl­skylda í laut­ar­ferð við stöðu­vatn að sumri. Fjöl­skyldu­fað­ir­inn, Rudolf Höss, stendur á sund­föt­unum og horfir á börnin sín leika sér með mag­ana fulla af jarð­ar­berjum og konan hans, Hedwig Höss, gefur ung­barni þeirra epla­bita. Því næst er fjöl­skyldan á hreyf­ingu, á göngu í skógi, á leið heim í bíl, börnin hlæj­andi í aft­ur­sæt­inu.

Þau keyra eftir vegi og beygja svo inn á annan að því sem nas­istar köll­uðu Áhuga­svæðið, eða The Interest Zone, svæðið í kringum útrým­ing­ar­búð­irnar þar sem stjórn­endur og …

Kjósa
29
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár