Menning er gáttin að samfélagslegri þátttöku
Vigdís Jak­obs­dóttir „Mér finnst það ein­fald­lega vera mann­réttndi að hafa aðgang að hinni menn­ing­ar­legu sam­ræðu því það veitir okkur raun­veru­legt aðgengi að því að hafa áhrif á menn­ingu okkar og sam­fé­lag. Það hefur í raun verið minn drif­kraftur alveg síðan ég var krakki að jafna rétt fólks. Stuðla að jöfn­uði. Að fleiri fái notið sín og fái að virkja kraft­inn sem býr í fólki, helst öllum í sam­fé­lag­inu. Við höfum öll eitt­hvað að gefa og fram að færa. Það er í raun drifið mitt.“ Mynd: Golli

Menning er gáttin að samfélagslegri þátttöku

Vigdís Jak­obs­dóttir, list­rænn stjórn­andi Lista­há­tíðar í Reykja­vík, er trú kjör­orði hátíð­ar­innar að list og menn­ing séu ekki for­rétt­indi heldur réttur allra. Raunar kjarna þessi orð sýn hennar sem byrj­aði að mót­ast þegar hún var önnur af tveimur græn­metisætum á Ísafirði, sextán ára með haus­inn á kafi í bókum. Nú er nýbúið að kynna dag­skrá lista­há­tíðar – sem er í takt við kjör­orðið. En lista­há­tíðin hefst 1. júní.

Árið var bara 1996 og nútím­inn lúrði í upp­sigl­ingu þegar Vigdís Jak­obs­dóttir, list­rænn stjórn­andi Lista­há­tíðar í Reykja­vík, fjár­magn­aði korn­ung háa fjár­upp­hæð upp á eigið sjálf­dæmi til að safna saman krökkum í Önund­ar­firði á Vest­fjörðum og leið­beina þeim í leik­list.

Þetta var sum­arið eftir snjó­flóðið á Flateyri og meira en rúmu ári eftir snjó­flóðið á Súðavík.

Hún vildi gera eitt­hvað fyrir ung­menni á Vest­fjörðum í kjöl­far þeirra hörm­unga sem snjó­flóðin voru.

Strax þá trú þeirri sann­fær­ingu að aðgengi að menn­ingu vald­efli mann­eskj­una á þann hátt að hún geti orðið öfl­ugri þátt­tak­andi í sam­fé­lag­inu. Hún leigði Holt í Önund­ar­firði og réð mat­ráðs­konu, auk þess að fara í ferða­lag með ung­mennin um Vest­firði þar sem þau sýndu eigin leik­sýn­ingu á tíu stöðum.

Sumarið eftir snjóflóðið

Það var þá sem und­ir­rituð kynnt­ist henni fyrst á sum­ar­kvöldi, sjálf að slíta ung­lings­skónum þegar hún villt­ist inn á nám­skeiðið á ein­hverju …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Sérðu villu?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár