Að éta fíl - Í Malaví verður lítið mikið

Malaví er ein þjóða sem skora lægst á lista Sam­ein­uðu Þjóðanna yfir vel­megun þjóða. Stór hluti af fram­lögum Íslands til þró­un­ar­sam­vinnu ratar þangað, ríf­lega 1.600 millj­ónir króna í ár. Blaða­maður Heim­ild­ar­innar hélt utan til að kynna sér aðstæður og örlög heima­manna.

Að éta fíl - Í Malaví verður lítið mikið

Klukkan er á slag­inu sex að kvöldi. Inni á afgirtri lóð húss, í einu af betri hverfum höf­uð­borg­ar­innar Lilongwe, standa tveir örygg­is­verðir sam­tímis upp og ganga frá varð­skýli sínu við stórt og mikið hlið sem skilur að garð­inn og göt­una fyrir utan. Eins og tveir vel þjálfaðir her­menn ganga þeir takt­fast og ákveðið inn á gras­flöt­ina í garði húss­ins og að fána­stöng­inni sem þar er. 

Þeir skipta verkum; annar dregur fán­ann niður, hinn tekur við honum og leggur var­lega yfir öxl­ina á sér. Þetta eru ungir og mynd­ar­legir menn. Reffi­legir. En sá sem tekur við fán­anum virkar þreyttur, jafn­vel sorg­mæddur til augn­anna. Félagi hans hnýtir fán­ann frá og gerir upp lín­una.

Svo ganga þeir sam­taka til baka að varð­skýl­inu, leggja fán­ann á borð og brjóta saman í lít­inn þrí­hyrn­ing.

Annar  vörð­ur­inn réttir hinum, þar sem hann stendur með hendur út og lóf­ana upp. Í þeirri stöðu gengur hann sem leið …

Kjósa
42
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Magnús Einarsson skrifaði
    Þetta er fróðleg og vel skrifuð grein. Það hefði samt mátt minnast á útflutning frá Malaví, en þar er tóbak verðmætasti hlutinn af löglegum varningi. Tóbakið er þekkt fyrir mikil gæði. Malaví flytur út uþb 164,000 tonn árlega og tóbakið er 55% af útflutningstekjum þjóðarinnar. Ólöglegi hlutinn er hins vegar verðmætari en það er kannabis sem er þekkt sem "Malawi Gold" og þykir það allra besta í veröldinni. Mikill túrismi er tengdur kannabis, en það er ólöglegt að rækta, selja og neyta þess nema í lækningaskyni. Það hefði verið fræðandi ef höfundur hefði kynnt sér þessa sérkennilegu ökónómíu í Malaví.
    0
  • KHS
    Kristín Hildur Sætran skrifaði
    Virkilega athyglisvert, hreint frábært að kynnast hvað er gert rétt, því þarf að halda hátt á lofti að hægt sé áfram að snúa þróuninni við og í betri heim á fjarlægum stöðum, það mun skapa betri heim FYRIR OKKUR ÖLL !!!
    3
  • Inga Björk Sveinsdóttir skrifaði
    Fróðleg, vel skrifuð grein. Íslendingar eru greinilega að gera eitthvað rétt.
    4
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár