Fékk vinnu hjá Forlaginu eftir að hafa deilt Tiktok myndbandi um bækur

„Bækur eru eig­in­lega komnar í stað­inn fyrir Netflix hjá mér,” segir Embla Rún Hall­dórs­dóttir. Hún gerir Tiktok mynd­bönd um bækur sem hún hefur lesið undir myllu­merk­inu #bókaTok. Eftir að hafa gert Powerpoint kynn­ingu um þær bækur sem hún hafði lesið bauð bóka­út­gáfan Forlagið henni vinnu.

Fékk vinnu hjá Forlaginu eftir að hafa deilt Tiktok myndbandi um bækur
Embla Rún heldur að bóka Tiktok sé komið til að vera. „Ég held að þetta sé ekki eitt­hvað stutt trend. Ég held við munum sjá þetta vaxa meira og meira.” Mynd: Aðsend

Fjöldi fólks fylgist með #BókaTok sem er ákveð­inn flokkur mynd­banda á sam­fé­lags­miðl­inum Tiktok. Þar deilir fólk hvaða bækur það er að lesa. Jafnvel end­ur­leikur atriði úr bók­unum. 

Íslenska bóka Tiktok fór á flug í lok síð­asta árs. Ein af þeim sem hóf bóka umræð­una á íslenska bóka Tikt­ok­inu er stjórn­mála- og fjöl­miðla­fræði­nem­inn Embla Rún Hall­dórs­dóttir. Hún byrj­aði að deila mynd­böndum á Tiktok fyrir einu og hálfu ári síðan. „Þar byrj­aði ég að deila víd­eóum bara um mitt dag­lega líf og geð­heilsu. Mjög mikið að fók­usa á að sýna hvernig það er að vera ung mann­eskja með kvíða og þung­lyndi. Brjóta niður svona ákveðnar ster­eótýpur.”

„Ég póstaði um bæk­urnar sem ég hafði lesið, svona Powerpoint kynn­ingu að gera grín að hversu ein­hæfar bæk­urnar voru sem ég var að lesa. Það fer á flug og akkúrat í sömu viku byrja fleiri að pósta bóka-tokum. Þá byrjar svona að spyrj­ast út að Íslenskt bóka-tok er að mynd­ast. Ég var strax mjög spennt fyrir því. Ég les mjög mikið og er mjög mikið á þessu Banda­ríska bóka-toki og ég byrja þá bara að gera fullt af þessum bóka-tok mynd­böndum.”

Fékk vinnu eftir að hafa deilt Tiktok myndbandi

Í byrjun jan­úar hafði bóka­út­gáfu­fyr­ir­tækið Forlagið sam­band við Emblu. „Þau voru búin að taka eftir að bóka-tok væri að koma til Íslands og greini­lega er þarna stór mark­hópur sem bara Forlagið hefur ekki verið að ná til. Þau vildu ráða ein­hvern til sín til þess að fjalla um bæk­urnar þeirra og svona íslenskar bækur.”

Embla segir hingað til hafa verið litla umræðu um íslenskar bækur á bóka Tiktok. „Ég held að það sé alveg vilji fyrir því, á íslenska bóka-tok­inu, að fjalla meira um íslenskar bækur. En það er bara svo lítið búið að vera í umræð­unni hjá bóka-toki og hjá þessum hópi fólks sem fylgist með bókum í gegnum sam­fé­lags­miðla.” 

Bækur komnar í staðinn fyrir Netflix

Spurð hvers vegna hún telji að bæk­urnar sem mælt sé með á Íslenska bóka Tikt­ok­inu séu frekar erlendar bækur en íslenskar segir Embla að það spili inn í hversu háfleyg bók­menntaum­ræðan getur verið á íslandi og það höfði ekki til allra. „Tiktok lítur á bækur sem afþrey­ingar efni frekar en eitt­hvað svona, eitt­hvað sem er svona menn­ing­ar­legt.”

„Bækur eru eig­in­lega komnar í stað­inn fyrir Netflix hjá mér. Það er þannig sem að ég horfi á bækur og ég held að fleiri Tiktok ýti meira undir það.” Embla segir að hún líti á bækur sem afþrey­ingar efni frekar en ein­göngu sem eitt­hvað fágað og menn­ing­ar­legt. „Þær geta líka bara verið geð­veikt flipp­aðar og þarft ekk­ert alltaf að vera að lesa eitt­hvað háfleygt og merki­legt.”

Íslenska bóka Tiktok fer vax­andi og telur Embla að núna séu um 20 Tiktok rásir sem deili mynd­böndum undir myllu­merk­inu bóka Tiktok. Telur hún þar með bóka­söfn og útgáfu­fé­lög sem deila mynd­böndum á Tiktok. „Ég held að þetta sé ekki eitt­hvað stutt trend. Ég held við munum sjá þetta vaxa meira og meira.”

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár