Valkyrjurnar vakna
Val­kyrj­urnar Mynd: Golli

Valkyrjurnar vakna

Kolfinna Niku­lás­dóttir stofn­aði gym-klúbb með nokkrum vin­konum sínum sem þær kalla Val­kyrjur Vakna en einka­þjálf­ar­inn þeirra er einmitt Guð­mundur Emil Jóhanns­son, sem þær kalla Gemil, sem hefur verið að þjálfa karla undir for­merkj­unum Víkingar vakna. Vin­kon­urnar hafa hver sína ástæðu fyrir því að vilja ann­ars vegar verða sterkar og hins vegar mæta í rækt­ina þrisvar í viku.

Þær voru fjórar sem vökn­uðu þennan morg­un­inn sem val­kyrjur og lögðu leið sína í World Class í Vatns­mýr­inni til að mæta í „gym­mið“ saman. Þær Kolfinna Niku­lás­dóttir, Þuríður Blær Jóhanns­dóttir, Rebekka Magn­ús­dóttir, Ást­hildur Úa Sig­urð­ar­dóttir og Steiney Skúla­dóttir mynda Gym-klúbb­inn Val­kyrjur vakna. Því miður vakn­aði Steiney veik þennan morg­un­inn og gat því ekki mætt. En það er æfing aftur eftir tvo daga og aftur í næstu viku, þrisvar sinnum. Ást­hildur Úa var svo ein­beitt í sínu svo Kolfinna, Blær og Rebekka ræddu við blaða­konu Heim­ild­ar­innar um klúbb­inn, um karl­mennsku og kven­leika, styrk og konur á klúbba-aldri. 

„Konur geta verið vík­ingar og karlar val­kyrjur en við erum Val­kyrj­urnar. Þegar ein­hver okkar er ekki mætt á réttum tíma fær sú sama sím­hring­ingu frá mér og ég segi: Er ég eina Val­kyrjan sem er vöknuð? Þá þurfa hinar bara að drulla sér og drífa sig,“ segir Rebekka Magn­ús­dóttir, sem gengur á milli …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár