Listrænn leikstjóri á leið til Hollywood
Helena Stef­áns­dóttir Helena Stef­áns­dóttir flýgur senn til Hollywood og afsannar kannski að svo­kall­aðar list­rænar myndir eigi ekki erindi þangað. Mynd: Golli

Listrænn leikstjóri á leið til Hollywood

Helena Stef­áns­dóttir frum­sýndi nýlega kvik­mynd­ina Nata­tor­ium – heitið merkir sund­höll eða inni­sund­laug. Nata­tor­ium er fyrsta kvik­myndin hennar í fullri lengd en Helena bæði skrif­aði hand­rit og leik­stýrði mynd­inni.

Nata­tor­ium var heims­frum­sýnd á kvik­mynda­há­tíð­inni í Rott­er­dam og hefur jafn­framt verið valin inn á South by Southwest hátíð­ina í Banda­ríkj­unum. Í mjög góðri umsögn Hollywood Reporter segir að myndin sé bæði glæsi­leg og skrýtin en um leið altæk saga um þögn í sjálfs­vörn og ótta. Drama með list­rænu yfir­bragði og anda hryll­ings.

„Ég var búin að skrifa hand­rit að stutt­mynd um hálf­systk­ini sem verða smá skotin í hvort öðru. Svo, smám saman, fannst mér eins og það þyrfti að vera stærri saga, en ekki stutt­mynd. Þá sá ég fyrir mér mynd af þessum máls­verði – þar sem allir eru glaðir á yfir­borð­inu en undir niðri kraumar allt. Og þau neita að horfast í augu við það sem kraumar undir eða geta það ekki,“ segir Helena og nefnir því næst að hún hafi jafn­framt lesið smá­sögu eftir vin­konu sína, að nafni Celeste Ramos, sem heitir Swim.

…
Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár