Fólkið sem hefur ekki fengið fjölskyldusameiningu bíður í von og ótta

Ahmed Omran er sextán ára drengur frá Palest­ínu sem hefur ekki getað sótt um fjöl­skyldu­sam­ein­ingu því sjálfur fékk hann ekki vernd fyrr en í gær. Faðir hans er sótt­varn­ar­læknir á Gaza. Um 200 umsóknir um dval­ar­leyfi fyrir palest­ínska rík­is­borg­ara á grund­velli fjöl­skyldu­sam­ein­ingar eru óaf­greiddar. Fatma Albayyouk bíður eftir svari fyrir for­eldra sína og bræður, en aðeins faðir hennar upp­fyllir skil­yrðin.

Fólkið sem hefur ekki fengið fjölskyldusameiningu bíður í von og ótta
Fatma og Ahmed Þau Fatma og Ahmed eiga það sam­eig­in­legt, annað en að vera bæði frá Gaza, að hafa beðið í von og óvon eftir svörum um stöðu sína og stöðu fjöl­skyldu sinnar sem eru föst Gaza.

Mikið hefur verið fjallað um palest­ínska rík­is­borg­ara sem hafa fengið sam­þykkt dval­ar­leyfi á Íslandi á grund­velli fjöl­skyldu­sam­ein­ingar, en eru fastir á Gaza. „Flest en ekki öll þeirra 128 sem hafa fengið sam­þykkt dval­ar­leyfi eru stödd á Gaza,“ sagði í svari frá Útlend­inga­stofnun. 

En þessir 128 ein­stak­lingar eru þó ekki þeir einu sem fastir eru á Gaza en eiga ætt­ingja á Íslandi. Þessi tala segir alls ekki alla sög­una um palstínskt fólk á Íslandi sem bíður í von og ótta eftir fréttum af fjöl­skyld­unni. Fleiri bíða enn eftir svari frá Útlend­inga­stofnun við því hvort fjöl­skyldu­með­limir þeirra fái dval­ar­leyfi hér á landi á grund­velli fjöl­skyldu­sam­ein­ingar. 

Ahmed

Ahmed Omran er 16 ára palest­ínskur strákur sem kom til Íslands sem fygld­ar­laust barn í mars á síð­asta ári. Móðir hans er háskóla­kenn­ari og faðir hans er sótt­varn­ar­læknir fyrir heil­brigð­is­ráðu­neytið á Gaza, Haitham Omran. „Núna er það mik­il­væg­asta að halda lífi,“ …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár