Milljónir flæða frá Ozempic lyfjarisa til íslenskra lækna

Danski lyfj­aris­inn Novo Nordisk greiddi íslensku heil­brigð­is­starfs­fólki, -stofn­unum og félögum rúma 21 milljón króna á þremur árum. Greiðsl­urnar átt­föld­uð­ust á sama tíma og notkun lyfj­anna rauk upp. Lækn­ir­inn sem hefur fengið mest hefur talað fyrir opin­berri nið­ur­greiðslu lyfja fyr­ir­tæk­is­ins sem notuð eru gegn syk­ur­sýki og við þyngd­ar­stjórnun, þeirra á meðal Ozempic. Hún segir fyr­ir­tækið ekki hafa áhrif á hennar mál­flutn­ing.

Milljónir flæða frá Ozempic lyfjarisa til íslenskra lækna

Af millj­ón­unum sem flæddu frá Novo Nordisk – stærsta fyr­ir­tækis Evrópu – inn í íslenskt heil­brigð­is­kerfi frá árinu 2020 til árs­ins 2022 fóru um 16,6 millj­ónir til heil­brigð­is­starfs­manna. Tæplega 40 þeirra eru nafn­greindir en á annan tug hafa haldið nafn­leynd í gögnum sem Frumtök – sam­tök frum­lyfja­fram­leið­enda á Íslandi sem Novo Nordisk eru aðild­ar­fyr­ir­tæki að – birta í sam­ræmi við siða­reglur sínar.

Sumir þess­ara heil­brigð­is­starfs­manna hafa skrifað upp á lyf sem Novo Nordisk fram­leiðir og eru í offitu­með­ferð – til að mynda Ozempic, Saxenda og Wegovy. Notkun slíkra lyfja hefur rokið upp hér­lendis frá árinu 2019 þegar 1.700 manns fengu lyf­inu ávísað með greiðslu­þátt­töku Sjúkra­trygg­inga Íslands (SÍ). Í fyrra var sá fjöldi kom­inn í rúm­lega 8.000. Alls 4.000 manns til við­bótar taka lyfin án þess að upp­fylla skil­yrði greiðslu­þátt­töku. Kostn­aður SÍ vegna lyfj­anna hefur tólf­fald­ast á síð­ast­liðnum fimm …

Kjósa
30
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • RE
    Regína Eiríksdóttir skrifaði
    Mikið væri spennandi að sjá tölfræði yfir árangur gegn offitu.
    0
  • Thorunn Ravn skrifaði
    Bara svona til upplýsingar þá er Saxenda og wegovy ekki framleitt sem sykursykislyf heldur lyf sem hefur áhrif á seddu hormón. Að læknar skulu ávísa ozempic til annarra en sykursjukra á Íslandi er undarlegt. Það er bannað hér í Danmörku og einungis saxenda og wegovy (sama lyf og ozempic) leyft til þess hér. Hvorugt lyfið er niðurgreitt af sjúkratryggingum hér…enda offita ekki skilgreint “sem sjúkdómur”.
    0
    • Sigga Svanborgar skrifaði
      nkl Ég hef verið að fylgjast með þessari umræðu á Íslandi versus Danmörku. Bý sjálf í danmörku...Ozempic er dýrari lyfið og gefið sykursjúkum enn hitt gefið þeim sem þurfa að grenna sig. Mætti halda að læknar á íslandi séu ekki upplýstir....og panti bara endalaust af dýrari lyfinu kannski vegna þess að þeir fái meiri bónus ef þeir skrifa það út......
      2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár