Hún var áminning um úreltan hugsunarhátt

Í minn­ingu Auðar Har­alds­dóttur.

Hún var áminning um úreltan hugsunarhátt
Auður Haralds Rödd sem var umbreyt­inga­afl. Mynd: Stundin / Davíð Þór

Auður Haralds var kona sem fékk fólk til að hugsa – sumt til að sprengja á sér haus­inn.

Raunar bendir ýmis­legt til að henni hafi leiðst fólk sem nennti ekki að hugsa umfram það allra nauð­syn­leg­asta. Hröð hugsun ein­kenndi hana sem gat dritað út úr sér til­svörum um leið og hún afhjúpaði for­pokun í hugsun ann­arra, oft á ögrandi hátt, enda má segja að ögrun fylgi áræð­inni hugsun.

Enginn átti neitt inni hjá henni, frekar en hún taldi sig eiga eitt­hvað inni hjá ein­hverjum. Eins sjálf­stæð og hún var mein­fyndin. Senni­lega einn sjálf­stæð­asti hugur sem hefur sett mark sitt á þetta sam­fé­lag.

Þessi kona með blik við­kvæmni í aug­unum sem gat allt í einu brosað eins og barn í sól­skini á sum­ar­dag­inn fyrsta. Í henni bjó sprengi­kraftur, megn­ugur þess að möl­brjóta vana íhalds­sem­innar jafnt sem við­teknar hug­myndir.

Rótaði í hugsun samborgara sinna

And­spænis góð­borg­ara­legum tepru­skap benti hún ekki bara eins og barnið í Nýju fötum keis­ar­ans heldur hló og sagði eitt­hvað svo ískrandi hæðið að það ber­strípaði alla í kringum hana. Allir alls­berir. Fólk hjá lána­stofn­unum jafnt sem elsk­hugar hennar, dag­far­sprúðar konur í nágrenn­inu og sjálf­skip­aðir siða­post­ular sam­fé­lags­ins.

Í örfáum setn­ingum gat hún sagt eða skrifað eitt­hvað snar­brjálað, eld­klárt, þungt af til­finn­ingu; sorg­legt, fyndið, ögrandi og sterkt. Stíllinn iðandi af barokki og spriklandi fjör­ugum orðum.

Hún skrif­aði hratt, þraut­reyndur pistla­höf­undur sem fjall­aði af djörf­ung um sam­fé­lags­mál og afka­staði á við beitn­inga­kóng á rit­vél­ina sína fullri af kaffi­sk­vettum. Gat skilað pistli upp á akkúrat réttan orða­fjölda, aftur og aftur, og í hvert sinn rótað í hugsun sam­borg­ara sinna. Álíka beitt og hún iðaði af leik­gleði.

 Skrifin erfiðisvinna

Þó kall­aði hún skrifin erf­ið­is­vinnu, þriggja barna sjálf­stæð móðir með ofbeld­is­sam­bönd að baki sem ham­að­ist við að skrifa með börn sem grétu. Það þurfti að fæða þau og lá á að skrifa þessar bækur.

Hún var einskis nema sjálfrar sín að harka til að eiga þak yfir höf­uðið og mat handa börn­unum. Þegar ein­hverjir köll­uðu hana komm­ún­ista fyrir að skrifa í Þjóð­vilj­ann kom hún ofan af fjöllum og hváði að henni hefði bara verið boðið að skrifa þar. Svo hún gerði það!

Krítísk á við­mót sem konur mættu hjá læknum, að mati hennar, löngu, löngu, löngu áður en The New York Times aug­lýsti við­líka frétta­skýr­ingu um slíkt fyrir örfáum árum á Twitter.

„Þá opn­aði hún á umræðu um heim­il­is­of­beldi jafnt sem kvenna­kúgun“

Ruddist inn á svið bókmenntanna

Þegar hún sló í gegn sem pistla­höf­undur á Skjá einum í árdaga nútím­ans hló yngra fólk með þess­ari ískrandi fyndnu konu á aldur við mömmu þeirra. Sumir hissa að ein­hver mið­aldra kona gæti verið svona fyndin.

Ýmsir voru þó ómeð­vit­aðir um að á skjánum var kona sem hafði ruðst inn á svið bók­mennt­anna, einna lík­ust leys­ingum í jök­ulá, með rödd sem var engu lík. Á undan sinni sam­tíð í fámennu sam­fé­lagi þegar hún skrif­aði um svæsið heim­il­is­of­beldi, basl, óskil­getin börn, kjör lág­stétt­ar­kvenna og ein­stæðra mæðra, fátækt og góð­borg­ara­legt feðra­veldi í sjálfsævi­sögu­legum skáld­skap sem þó var ævin­týra­legri en margt sem margir höfðu lesið.

Bókin Hvunn­dags­hetjan: þrjár öruggar aðferðir til að eign­ast óskil­getin börn kom út árið 1979 og þá opn­aði hún á umræðu um heim­il­is­of­beldi jafnt sem kvenna­kúgun.

Í hugum margra er sú bók ein af bókum lífs­ins og hlýtur að telj­ast vera tíma­móta­verk. Líklega er óhætt að segja að Hvunn­dags­hetjan sé ein ást­sælasta og þekktasta bók hennar í vit­und sam­fé­lags­ins. 

Fræðimannsaugað greinir fortíðina

Í fyrra kom út síð­asta skáld­saga hennar – Hvað er drott­inn að drolla? – hjá For­lag­inu en hún hafði fyrst birt þá sögu í upp­hafi ald­ar­innar á vef­síð­unni Strik.is í sam­starfi við Hrafn Jök­uls­son heit­inn, löngu áður en fólk hafði van­ist til­hugs­un­inni að lesa bækur raf­rænt. Því var sagan eins og ný þegar hún kom út og hlaut góðar við­tökur.

„Að öllu sögðu skrif­ar Auð­ur Har­alds hér hug­vekj­andi bók um mið­ald­ir og heims­far­aldra, en ekki síð­ur um all­ar ósýni­legu mið­aldra kon­urn­ar í nú­tím­an­um“, sagði í dómi Ás­geirs H. Ing­ólfs­son­ar hér í Heim­ild­inni.

Bókin fjallar um mið­aldra skrif­stofu­konu sem átti sér þann draum að læra forn­leifa­fræði en smit­ast svo af bók um svarta­dauða og lækn­is­fræði mið­alda að hún vaknar í lík­ama tví­tugrar stúlku árið 1348, í upp­hafi svarta­dauða.

Skáldsagan er eins rík af hug­mynda­flugi og þekk­ingu á sagn­fræði. Og Ásgeir skrif­aði: „Þetta er merki­lega raunsæ skáld­saga um tíma­ferða­lag, enda Guðbjörg praktísk mann­eskja með lát­lausa fræði­manns­drauma, og það er fræði­manns­augað sem greinir for­tíð­ina af nákvæmni og í anda sam­an­burð­ar­rann­sókna.“

Fleiri skáld­sögur hennar urðu bibl­íur í lífi ófárra; bækur á borð við Læknama­fí­una og Ung, há, feig og ljós­hærð. Bókin Ban­eitrað sam­band á Njáls­göt­unni um sam­band móður og ung­lings­drengs, á kjarnaðri íslensku, var einnig ógleym­an­leg, og ýmsir lesa hana reglu­lega en hún varð jafn­framt leik­rit. Eins lágu margir í Elí­as­bók­unum vin­sælu sem höfðu örugg­lega áhrif á þróun húmors sumra á mót­un­ar­árum, en þær bækur skrif­aði hún upp úr innslögum sem þær Valdís Ósk­ars­dóttir höfðu gert fyrir Stundina okkar.

Auður var fjöl­hæf og ævi­starf hennar felst líka í blaða­mennsku, útvarps­þátta­gerð og þýð­ingum, auk þess sem hún starf­aði við verslun, skrif­stofu­störf, í verk­smiðju og efna­laug.

 Konur að skrifa um ofbeldi duttu úr tísku

Árið 1982 kom út skáldsagan Hlustið þér á Mozart? sem var þriðja skáld­saga Auðar. Næstu árin gaf hún út bæk­urnar um Elías og það var ekki fyrr en árið 1987 að hún gefur út skáld­sög­una Ung, feig, há og ljós­hærð. Eftir útgáfu hennar gaf hún ekki aftur út skáld­sögu fyrr en í áður­nefndri útgáfutil­raun með Hrafni Jökuls – Hvað er drott­inn að drolla? – bók sem kom út eins og ný í fyrra.

Ýmsir hafa velt fyrir sér af hverju þessi öfl­ugi skáld­sagna­höf­undur, þessi sterka rödd, hafi látið hér við sitja.

Þórunn Hrefna Sig­ur­jóns­dóttir, lærður bók­mennta­fræð­ingur, sagði í sjón­varps­mynd að Auður og fleiri sterkir kven­rit­höf­undar á hennar reki hafi hrein­lega dottið úr tísku, rit­höf­undar sem nutu alþýðu­hylli og brutu niður múra en þóttu um leið ekki nógu merki­legar til að fá grein­ingar í fag­tíma­ritum bók­mennt­anna. En vanga­veltur um hvarf þess­arar skáld­kvenna af sjón­ar­svið­inu á níunda ára­tugnum hafa einnig verið viðr­aðar í rit­gerð eftir Kolbrúnu Huldu Pét­urs­dóttur og blaða­grein í Mannlífi eftir Þórunni Hrefnu Sig­ur­jóns­dóttur, þegar Gerður Kristný var rit­stjóri þess.

„Lærður bók­mennta­fræð­ingur sagði í sjón­varps­mynd að Auður og fleiri sterkir kven­rit­höf­undar á hennar reki hafi hrein­lega dottið úr tísku, rit­höf­undar sem nutu alþýðu­hylli og brutu niður múra en þóttu um leið ekki nógu merki­legar til að fá grein­ingar í fag­tíma­ritum bók­mennt­anna.“

Áminning um úreltan hugsunarhátt

Auður og fleiri konur af þess­ari kyn­slóð voru, eins og áður sagði, að skrifa um veru­leika kvenna. Ofbeldi. Basl. Tabú. Það að vera lág­stétt. Vera ein­stæð móðir. Ást, fantasíu, vesen. Upplifun konu af hinu og þessu.

Þótti það ekki nógu fínt til að telj­ast bók­menntir á þeim tíma? Eða var bara ekki nógu bók­mennta­legt að vera fyndin? Þær tín­ast út á svip­uðum tíma og töfraraun­sæi var að kom­ast í tísku og bók­mennta­legra þótti kannski að lesa Gabriel García Márquez, þegar 100 ára ein­semd varð aðal­bókin. Síðasta bókin sem út kom á íslensku eftir hann var árið 2006 en það var verkið Minn­ingar um döpru hór­urnar mínar.

„Þótti það ekki nógu fínt til að telj­ast bók­menntir á þeim tíma? Eða var bara ekki nógu bók­mennta­legt að vera fyndin?“

 Í kynn­ing­ar­texta um þá bók hjá For­lag­inu segir: Á níræð­is­af­mæli sínu ákveður sögu­maður þess­arar bókar – þekktur pistla­höf­undur og ófor­betr­an­legur pip­ar­sveinn – að veita sér munað: eld­heita nótt með hreinni mey. Jómfrúin er á ung­lings­aldri og þegar hann sér hana sof­andi verður hann djúpt snort­inn af æsku­ljóma hennar. Hin heita ást­ar­nótt verður að heilu ári þar sem sögu­maður rifjar upp ævi­löng kynni sín af konum, flestum skyndi­konum, og upp­lifir allt í einu sterka og fram­andi kennd – hreina og óspillta ást.

 Til gam­ans má bera þennan texta saman við kynn­ing­ar­texta Hvunn­dags­hetju Auðar: Þessi ber­orða, skarp­skyggna og bráð­fyndna saga af hetj­unni sem fann þrjár óbrigðular aðferðir til að eign­ast óskil­getin börn er nú end­ur­út­gefin eftir tvo ára­tugi. Bókinni var þó ekki ætlað að koma aftur út, heldur skyldi hún standa sem minn­is­varði um úreltan hugs­un­ar­hátt. Samt er hér fátt sem les­endur nútím­ans kann­ast ekki við úr eigin ranni. Það fellur líka seint í aðal þess­arar bókar – óbrigðula fund­vísi Auðar á hræsni og yfir­dreps­skap og hæfi­leika hennar til að lýsa honum svo úr verður kon­ung­leg skemmtun.

 Víst er að Auður náði að stuða svo­leiðis sumt sam­tíð­ar­fólk sitt að einn reyndi að kyrkja hana á meðan aðrir helltu úr glasi yfir hana á Óðali. Orðin hennar stuð­uðu alla tíð, líka karla sem lúbörðu hana – kon­una sem svar­aði ofbeldi með fyndni. Hún var í lif­anda lífi áminn­ing um úreltan hugs­un­ar­hátt.

Í næsta blaði verður kafað dýpra og fræði­legar í þessar vanga­veltur, en þá munu birt­ast fleiri greinar um Auði Haralds og lífs­starf hennar.

Kjósa
58
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Vilborg Norðdahl skrifaði
    Vel skrifað um góða vinkonu
    1
  • Anna Óskarsdóttir skrifaði
    Mikil eftirsjá að þessarri konu - hún vakti mér nýjan sannleika sem ég hafði aldrei gert mér grein fyrir með Hversdagshetjunni
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár