Hvenær geta börnin gengið örugg um Grindavík?
Grind­vík­ingar Grind­vískir drengir í and­dyri húsa­kynna Gildis-líf­eyr­is­sjóðs. Þar boð­uðu verka­lýðs­fé­lög til mót­mæla vegna lána­mála Grind­vík­inga í upp­hafi viku. Mynd: Golli

Hvenær geta börnin gengið örugg um Grindavík?

Íbúar í Grinda­vík eru varaðir við því að ganga ann­ars staðar en á götum og gang­stéttum, þar sem holur geti opn­ast án fyr­ir­vara. Unnið er að því að fylla upp í sprungur og bæj­ar­starfs­menn ætla að vera búnir að tryggja öryggi fólks, áður en kallið um að snúa heim kemur. Íbúi í bænum telur ekki öruggt að halda heim skömmu eftir ára­mót, eins og marga Grind­vík­inga eflaust langar.

Í Grinda­vík hefur verið unnið að því að fylla upp í sprungur og starfs­menn á vegum bæj­ar­ins eru að reyna að átta sig á því hvar hættur gætu leynst, vegna jarð­hrær­ing­anna sem skóku bæinn fyrir rúmum mán­uði síðan. Þrátt fyrir að fólk megi nú dvelja á heim­ilum sínum í Grinda­vík frá morgni og fram á kvöld er varað við göngu­ferðum um bæinn. 

„Mik­il­vægt er að íbúar og aðrir sem koma til Grinda­vík­ur­bæjar ferð­ist um á götum og gang­stéttum og tak­marki gang­andi umferð sína eins og kostur er. Það er enn hreyf­ing á jörð­inni, sprungur og holur geta opn­ast fyr­ir­vara­laust,“ segir í nýlegri til­kynn­ingu frá bænum.

Atli Geir Júl­í­us­son, sviðs­stjóri umhverfis- og skipu­lags­sviðs Grinda­vík­ur­bæjar, segir í sam­tali við Heim­ild­ina að unnið sé að því að yfir­fara sprungur sem mynd­uð­ust í aust­ur­hluta bæj­ar­ins, austan við stóra mis­gengið sem reif gatna­mótin í grennd við íþrótta­mið­stöð­ina í sundur. Einnig er verið að …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kári Jónsson skrifaði
    Börn og fullorðnir geta ekki gengið um örugg í Grindavík, vegna þess að helmingur Gríndavíkur er byggður ofan á og sitthvorum megin við eldgosa-sprungu, helmingur bæjarins hefur sigið um góðan 1-metra og gæti horfið á nokkrum klukkutímum, enginn er öruggur í slíkum kringumstæðum.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jarðhræringar við Grindavík

FréttirJarðhræringar við Grindavík

Íbúum leyft að dvelja næt­ur­langt í Grinda­vík þótt lög­reglan mæli ekki með því

Frá og með morg­un­deg­inum verður íbúum og fólki sem starfar hjá fyr­ir­tækjum í Grinda­vík heim­ilt að fara í bæinn og dvelja þar næt­ur­langt. Í nýlegri frétta­til­kynn­ingu lög­reglu­stjór­ans á Suð­ur­nesjum er greint frá þessu. Íbúar eru þó varaðir við að inn­viðir bæj­ar­ins séu í lama­sessi og sprungur víða. Bærinn sé því ekki ákjós­an­legur staður fyrir fjöl­skyldur og börn.
FréttirJarðhræringar við Grindavík

Tímabært að verja Reykja­nes­braut

Þor­valdur Þórð­ar­son eld­fjalla­fræð­ingur segir að það sé tíma­bært að huga að vörnum fyrir Reykja­nes­braut­ina og aðra inn­viði á Suð­ur­nesjum. Atburða­rásin á fimmtu­dag, þegar hraun rann yfir Grinda­vík­ur­veg og hita­vatns­leiðslu HS Veitna, hafi verið sviðs­mynd sem búið var að teikna upp. Hraun hafi runnið eftir gam­alli hraun­rás og því náð meiri hraða og krafti en ella.

Mest lesið undanfarið ár