Við erum komin mitt inn í einhverja framtíð sem við þekkjum ekki

Auður Aðal­steins­dóttir, doktor í bók­mennta­fræði, skoðar í nýút­komnu fræði­riti hvernig bók­menntir og listir á Íslandi eru að takast á við stærsta mál okkar sam­tíma og fram­tíðar: Ham­fara­hlýnun. Hún segir mann­kynið nú þegar statt mitt inn í fram­tíð sem það þekkir ekki og sam­tíð sem það vill kannski ekki horfast í augu við. Hug­vís­indin, eða umhverf­is­hug­vís­indin öllu heldur, segir hún mik­il­vægan hlekk í bar­átt­unni við loft­lags­vána og að fram­tíðin megi ekki við þeim nið­ur­skurði sem boð­aður er í Rann­sókn­ar­sjóði.

Við erum komin mitt inn í einhverja framtíð sem við þekkjum ekki
Auður notar þekk­ingu ann­ars staðar frá, og sína eigin, til að setja menn­ingu og listir á Íslandi í hnatt­rænt sam­hengi, á sama tíma og hún skoðar hvað sé sér­ís­lenskt við þær. Mynd: Hörður Sveins­son Mynd: Hordur Sveinsson

Hvor­ug­kyns­orðið umhverfi er marglaga og marg­þætt, þrungið merk­ingum í fleir­tölu og því líf­rænt í sjálfu sér. Í orð­inu rúm­ast fjórar skil­grein­ingar sam­kvæmt orða­bók. Orðið umhverfi nær utan um nágrenni, lands­lag í nágrenni ein­hvers eða í kringum eitt­hvað en í því býr líka nátt­úru­fyr­ir­bæri í ljósi mann­legra athafna og verkn­aðar. Orðið umhverfi vísar þess vegna bæði til kring­um­stæðna eða aðstæðna manna en líka þeirra kring­um­stæðna og aðstæðna sem hann hefur sjálfur skapað sér.

Umhverfi á líka við í bók­mennta­fræði­legum skiln­ingi og á þá við bæði and­legar og efna­legar aðstæður sögu­per­sóna, þeirra innra og ytra líf en fjórða og síð­asta skil­grein­ing orða­bók­ar­innar er varðar umhverfi vísar til raun­vís­inda, stærð­fræð­innar og þar er umhverfi mengi þeirra punkta sem eru utan lok­aðs fer­ils eða utan rúm­myndar. Innan orðs­ins rým­ast því bæði hug­vís­inda­legar og raun­vís­inda­legar skil­grein­ingar, hvorug vís­indin eiga orðið umhverfi, heldur deila þær því. Umhverfi í sínum víð­asta skiln­ingi vísar til alls …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár