Mynd: Heiða Helgadóttir

„Landspítalinn hefur brugðist þessari konu“

„Land­spít­al­inn hefur brugð­ist þess­ari konu,“ segir Hjalti Már Björns­son, yfir­læknir á bráða­mót­töku, um reynslu konu sem leit­aði á bráða­mót­tök­una vegna heim­il­is­of­beldis. Hann biðst afsök­unar og kynnir nýtt verk­lag, ásamt Jóhönnu Erlu Guð­jóns­dóttur félags­ráð­gjafa. „Mik­il­væg­ast er að tryggja öryggi þolenda.“

Land­spít­al­inn brást konu sem leit­aði til bráða­mót­tök­unnar vegna áverka af völdum heim­il­is­of­beldis, segir Hjalti Már Björns­son yfir­læknir, um leið og hann biðst afsök­unar fyrir hönd spít­al­ans. Konan greindi frá reynslu sinni af spít­al­anum með bréfi sem birt var í leið­ara Heim­ild­ar­innar þann 20. októ­ber.

Varhugaverð viðbrögð 

Í frá­sögn kon­unnar kom fram að hún hafði strax við kom­una á spít­al­ann til­kynnt heim­il­is­of­beldi, en hún þurfti engu að síður að bíða lengi eftir við­tali við lækni. Óskað var eftir aðkomu lög­reglu áður en lækn­is­skoðun fór fram, en læknir sagði rang­lega að slíkt væri ekki gert og fram­kvæmdi skoð­un­ina án þess að kalla lög­reglu til.

Að skoðun lok­inni sagði lækn­ir­inn að áverk­arnir, meðal ann­ars eftir kverka­tak, væru ekki nógu alvar­legir til að það tæki því að taka ljós­myndir af þeim. Eftir að hafa heyrt atvika­lýs­ing­una brást lækn­ir­inn síðan við með því að segja að það þyrfti að til­kynna kon­una til …

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár