Mynd: AFP

Átján ára afmæli ríkisarfans

Átján ára afmæl­is­dag­ur­inn markar tíma­mót í lífi hvers ein­stak­lings. Sjald­gæft er þó að uppá hann sé haldið með jafn fjöl­mennum og íburð­ar­miklum hætti og gert var í Kaup­manna­höfn síð­ast­lið­inn sunnu­dag.

Dönsk ung­menni eru, upp til hópa, ekki sér­lega upp­tekin af átján ára afmæl­is­deg­inum. Danska útvarpið, DR, gerði fyrir skömmu könnun meðal hóps ung­menna, sem voru á átj­ánda ári, hvað þau teldu merki­leg­ast við að ná átján ára aldri og þar með orðin sjálf­ráða. Flest nefndu þrennt; þá gætu þau keypt áfengi (sterkara en 16.5% sem er heim­ilt frá 16 ára aldri), full öku­rétt­indi (tak­mörkuð fást við 17 ára aldur) og kosn­inga­rétt. 

Ungur maður sem með fjöl­mennri veislu fagn­aði átján ára afmæl­inu sl. sunnu­dag 15. októ­ber, og öðl­að­ist þar með áður­nefnd rétt­indi, er í senn venju­legur og óvenju­legur ung­lingur. Venju­legur að því leyti að áhuga­mál hans eru mörg þau sömu og margra jafn­aldra hans en það óvenju­lega er að í fyll­ingu tím­ans verður hann, að öllu óbreyttu, kon­ungur Dan­merkur. 

Christian Valdemar Henri John 

Þessi ungi maður sem um ræðir og fékk síðar nafnið Christian Valdemar Henri John fædd­ist á Rík­is­spít­al­anum í Kaup­manna­höfn. Fréttir um að fjölg­unar væri von í fjöl­skyldu Mar­grétar Þór­hildar höfðu birst í dönskum fjöl­miðlum mán­uðum saman og nýr og til­von­andi rík­is­arfi væri á leið­inni. Þegar þær fregnir bár­ust rétt eftir mið­nætti aðfara­nótt 15. októ­ber  að „nú væri allt að ger­ast“ flykkt­ust frétta­menn og ljós­mynd­arar að inn­gangi Rík­is­spít­al­ans. Eftir langa bið kom fað­ir­inn, Friðrik krón­prins, bros­andi út um dyr fæð­ing­ar­deild­ar­innar. Hann sagði að fæddur væri hraustur strákur og honum og móð­ur­inni Mary heils­að­ist vel.

Þegar frétta­menn spurðu um stærð son­ar­ins sýndi fað­ir­inn með höndum að hann væri „sirka svona“ og þetta svar vakti kátínu við­staddra. Miðað við „sirka svona“ væri dreng­ur­inn að minnsta kosti 65- 70 senti­metra langur. Hinn stolti faðir hafði ofmetið lengd­ina, dreng­ur­inn mæld­ist við fæð­ingu 51 senti­metri. Klukkan 12 á hádegi fæð­ing­ar­dags­ins var hleypt af 21 púð­ur­skoti í bæki­stöðvum flot­ans í Kaup­manna­höfn og sam­tímis var flaggað á öllum opin­berum bygg­ingum, og stræt­is­vagnar um allt land óku um skreyttir veifum í dönsku fána­lit­unum.  Allar götur síðan hefur þessi frum­burður krón­prins­hjón­anna, eins og for­eldr­arnir, af og til verið umfjöll­un­ar­efni danskra fjöl­miðla, einkum glans­tíma­rit­anna. Það gildir líka, í minna mæli þó, um yngri börn þeirra Friðriks og Mary, Isabellu, Vincent og Jos­ephine. 

Hefð fyrir mörgum nöfnum  

Eins og fram kom hér að framan ber hinn til­von­andi rík­is­arfi fjögur nöfn, Christian Valdemar Henri John. Tvö þau fyrstu eru gömul kon­ungs­nöfn en hin tvö eru nöfn feðra þeirra Friðriks og Mary. Hér á landi er löng hefð fyrir því að íslenska nöfn danskra þjóð­höfð­ingja, drottn­ingin er Margrét Þór­hildur, krón­prins­inn Friðrik og nær öruggt má telja að Christian Valdemar Henri John verði kall­aður Kristján. Þess má geta að hefð er fyrir því að börn í kon­ungs­fjöl­skyld­unni beri ekki færri en fjögur skírn­ar­nöfn, Friðrik IX, faðir Mar­grétar Þór­hildar bar sjö nöfn.

Síðan á 17. öld hafa elstu synir danska þjóð­höfð­ingj­ans til skiptis fengið nöfnin Frederik og Christian, Margrét Þór­hildur var vita­skuld und­an­tekn­ing frá þess­ari venju. Afi Mar­grétar Þór­hildar var Kristján X, faðir Mar­grétar Þór­hildar var Friðrik IX og Friðrik krón­prins verður sam­kvæmt regl­unni Friðrik X. Sonurinn verður, þegar þar að kemur, Kristján XI.  Að núm­era kóng­ana með róm­verskum hækk­andi tölum er gert til að koma í veg fyrir rugl­ing.  

Engin sérréttindi

Af ástæðum sem ekki þarf að fjöl­yrða um hefur æska og upp­vöxtur Krist­jáns prins að ýmsu leyti verið með öðrum hætti en gengur og ger­ist. For­eld­arnir hafa alla tíð lagt á það áherslu að son­ur­inn myndi umgang­ast jafn­aldra sína og ekki njóta sér­rétt­inda þegar að skóla­göngu kæmi.

Kristján var á leik­skóla í Fredens­borg norðan við Kaup­manna­höfn um fjög­urra ára skeið en í ágúst 2011 hóf hann nám við Tra­negård­skól­ann í Gentofte. Sá skóli er almennur grunn­skóli og Kristján prins er sá fyrsti í sögu dönsku kon­ungs­fjöl­skyld­unnar sem sækir almennan grunn­skóla. Fram að því höfðu börnin í kon­ungs­fjöl­skyld­unni að mestu leyti fengið einka­kennslu heima á Amali­en­borg og lítt umgeng­ist jafn­aldra á grunn­skóla­ár­unum.  

Herlufsholm og heimildamyndin

Í ágúst 2021 hóf Kristján prins nám við Her­lufs­holm­skól­ann á Suður- Sjálandi. Sá skóli á sér langa sögu, stofn­aður 1565, og hefur verið mjög eft­ir­sóttur. Skólinn er bæði grunn- og fram­halds­skóli, nem­endur að jafn­aði um 600, stúlkur og piltar. Tæplega helm­ingur nem­enda býr á heima­vist en aðrir búa heima eða hjá ætt­ingjum.

Í maí 2022 sýndi danska sjón­varps­stöðin TV 2 heim­ilda­mynd um Her­lufs­holm­skól­ann, Her­lufs­holms hemmelig­heder. Í mynd­inni var hul­unni svipt af ýmsu sem ekki hafði áður komið fram í dags­ljósið. Margir fyrr­ver­andi nem­endur greindu frá ofbeldi, ein­elti, kyn­ferð­is­legri áreitni sem þeir höfðu orðið fyrir eða vitni að. Í mynd­inni kom fram að skól­inn var í hópi þeirra lök­ustu varð­andi ein­elti og álag á nem­endur sam­kvæmt könnun í öllum skólum lands­ins. 

Myndin vakti gríð­ar­lega athygli, að ekki sé meira sagt. Afleið­ing­arnar voru meðal ann­ars þær að skóla­stjór­inn var rek­inn sem og yfir­stjórn skól­ans. 

Her­lufs­holmskanda­len, eins og danskir fjöl­miðlar komust að orði, var dögum saman til umfjöll­unar í útvarpi, sjón­varpi, net- og prent­miðlum. Strax vakn­aði sú spurn­ing hvort fram­tíð­ar­rík­is­arf­inn Kristján yrði áfram í skól­anum þar sem hann hafði verið einn vetur við nám og bjó á heima­vist skól­ans. 26. júní 2022 kom til­kynn­ing frá Amali­en­borg þess efnis að prins­inn myndi ekki halda áfram námi við Her­lufs­holms­skól­ann og að Isabella systir hans, sem áformað var að myndi setj­ast í 9. bekk skól­ans þetta sama ár, myndi ekki hefja þar nám. 

Þess má geta að aðsókn að Her­lufs­holm­skól­anum hefur snar­minnkað og veru­lega hefur fallið á glans­mynd­ina, svo notað sé orða­lag danskra fjöl­miðla. 

Kristján prins inn­rit­að­ist sum­arið 2022 í Ordrup Gymnasium og er þar við nám, þegar þetta er skrifað.  Systirin Isabella lauk grunn­skóla­nám­inu frá Ingrid Jesper­sens Gymnasieskole  sl. vor og hóf nú í haust nám við Øregård Gymnasium, þar lauk Friðrik faðir hennar stúd­ents­prófi og sömu­leiðis Jóakim bróðir hans.  

Gallup könnunin

Danska kon­ungs­fjöl­skyldan er eilíft umræðu­efni meðal Dana. Þótt raddir heyr­ist sem telja rétt­ast að leggja kon­ung­dæmið af sýna kann­anir að mik­ill meiri­hluti dönsku þjóð­ar­innar má ekki heyra minnst á neitt slíkt. Margrét Þór­hildur hefur notið mik­illar hylli þegna sinna og á árum áður komu oft fram efa­semdir um að Friðrik krón­prins myndi valda emb­ætt­inu, þegar þar að kæmi. Hann hefur hins­vegar vaxið mikið í áliti meðal dönsku þjóð­ar­innar á und­an­förnum árum og ekki spillir fyrir að krón­prinsessan Mary nýtur mik­illar virð­ingar og vin­sælda.

Í nýlegri Gallup könnun um kon­ungs­fjöl­skyld­una var spurt hver úr fjöl­skyld­unni væri í mestu upp­á­haldi hjá við­kom­andi. 41 pró­sent svar­enda nefndu Friðrik krón­prins, 22 pró­sent nefndu drottn­ing­una og 15 pró­sent krón­prinsess­una Mary. Enginn í könn­un­inni nefndi Kristján prins. Sér­fróðir, sem dag­blaðið Berl­ingske ræddi við, um mál­efni fjöl­skyld­unnar á Amali­en­borg sögðu að Kristján prins væri „óþekkt stærð“ kannski væri það skýr­ingin á að eng­inn nefndi hann sem sitt upp­á­hald. Bentu líka á að þegar Friðrik krón­prins var 18 ára naut hann tak­mark­aðs álits hjá almenn­ingi. Það hefði gjör­breyst.

Afmælisveislan

Áður­nefnd Gallup könnun sýndi að áhugi fyrir kon­ungs­fjöl­skyld­unni er minni meðal ungs fólks og færri úr þeim ald­urs­hópi telja að við­halda beri kon­ungs­rík­inu. Það kann að vera ein ástæða þess að krón­prins­hjónin og Kristján prins hafa lagt mikla áherslu á að ná til ungs fólks eins og ber­lega kom í ljós í átján ára afmæl­is­veisl­unni sem fram fór í Krist­jáns­borg­ar­höll. Af þeim 360 gestum sem sátu veisl­una voru 200 jafn­aldrar prins­ins, tveir frá hverju sveit­ar­fé­lagi í Danmörku, ásamt Græn­landi og Færeyjum. Auk þess nor­rænt kónga­fólk, ætt­ingjar og vinir. Hápunktur veisl­unnar var ræða afmæl­is­barns­ins, sem þótti takast vel upp. Danskir fjöl­miðla­menn voru sann­færðir um að prins­inn hefði sjálfur skrifað ræð­una, eng­inn fjöl­miðla­full­trúi hefði komið þar nærri. 

Ungmenni, sem sátu veisl­una og fjöl­miðlar ræddu við, voru sam­mála um að það hefði verið ein­stök upp­lifun og heiður að fá að fagna með prins­inum. Sjálfur sagði prins­inn að þegar allt þetta afmælistil­stand, sem hefði verið mjög skemmti­legt, yrði að baki færi hann aftur í skól­ann. 

Var Öskubuska meðal gestanna?

Eftir að veisl­unni lauk og farið var að taka til í veislu­salnum kom í ljós gylltur skór sem einn gest­anna hafði skilið eftir. Í til­kynn­ingu frá Amali­en­borg sem birt­ist á Instagram undir fyr­ir­sögn­inni „Er det mon Askepot, der glemte sin sko i aftes“ (er það kannski Ösku­buska sem gleymdi skó sínum í gær). Mynd af skónum birt­ist jafn­framt á síð­unni. Eig­and­anum var jafn­framt boðið að hafa sam­band til að end­ur­heimta skó­inn. 

Ekki voru liðnir margir klukku­tímar þegar viku­ritið SE & HØR hafði haft uppi á „Ösku­busku“.  Það var Anne-Sofie frá Stenløse sem skildi skó­inn eftir og sagði í við­tali við tíma­ritið að þetta hefði verið hugsað sem „skemmti­legur endir, eins og í ævin­týr­inu um Ösku­busku. Hún sagði jafn­framt að hún hefði verið búin að ræða þetta við fjöl­skyldu sína sem hefði verið sam­mála henni. Í við­tal­inu sagð­ist hún ekki hafa ákveðið hvort hún myndi sækja skó­inn. „ Ef þau (í höll­inni) ætla að henda honum vil ég gjarna fá hann til baka.“

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár