Stolt af barnabörnunum, bókmenntaarfinum og því að hafa stutt hag kvenna

Hjónin Ólafur H. Ragn­ars­son og María Jóhanna Lár­us­dóttir hafa tekið virkan þátt í íslensku sam­fé­lagi í gegnum árin. Í dag horfa þau til baka með bros á vör og fara yfir það sem hefur veitt þeim gleði í gegnum árin. Þeim er það hjart­ans mál að halda í hlát­ur­inn, hvort annað og menn­ing­una.

Stolt af barnabörnunum, bókmenntaarfinum og því að hafa stutt hag kvenna
María Jóhanna Lár­us­dóttir og Ólafur H. Ragn­ars­son Hjónin Hanna og Ólafur halda fast í húmor­inn, gleð­ina og hvort annað. Mynd: Eik Arnþórsdóttir

Það eru til ýmsar leiðir til að fara í gegnum lífið með bros á vör. Fyrir hjónin Ólaf H. Ragn­ars­son, 82 ára, og Maríu Jóhönnu Lár­us­dóttur, 77 ára, skiptir máli að halda í húmor­inn, hlúa vel að hvort öðru og sinna áhuga­málum. Þau búa í Mörkinni á Suð­ur­lands­braut og líður vel þar. 

Áður en þau fluttu í Mörkina bjuggu hjónin í ein­býl­is­húsi í Árbænum. Ólafur er lög­fræði­mennt­aður og sér­hæfði sig í hug­verka­rétti á sviði atvinnu­lífs. Hann rak lög­fræði­stofu í 38 ár og naut sín vel í starfi. Á síð­asta ári ákvað Ólafur þó að tími væri kom­inn til að selja lög­manns­stof­una og njóta per­sónu­legra áhuga­mála í meira mæli. „Ég er orð­inn 82 ára. Það er kom­inn tími til að reyna að vinna úr ævinni og njóta þess­ara ára sem eru eftir,“ segir Ólafur og brosir blítt. 

María, eða Hanna eins og hún er kölluð af fjöl­skyldu og vinum, mennt­aði sig í íslensku og sagn­fræði í Háskóla Íslands. Hún starf­aði við móð­ur­máls­kennslu í Verzlunarskóla Íslands í tæp 40 ár og þótti afar vænt um starf sitt. Hanna var líka aðgerðasinni. Hún er einn af stofn­endum Kvenna­list­ans, var vara­þing­maður árið 1986 og mót­mælti notkun kjarn­orku­vopna í Evrópu með mán­að­ar­langri mót­mæla­göngu. 

Sterkar skoðanir

„Ég var alveg ekta kenn­ari,“ svarar Hanna glöð, aðspurð hvort hana hafi alltaf langað að stunda kennslu. „Það var alltaf svo gaman.“ Hún segir kennsl­una eitt af því sem hafi veitt henni mesta gleði í líf­inu. „Og Óli. Hann var alltaf með mér, við hlið­ina á mér. Við vorum bara alltaf saman.“

María Jóhanna Lár­us­dóttirHanna á lands­fundi Kvenna­list­ans árið 1993.

Þau rifja upp gamla tíma. „Ég ólst upp í Vest­ur­bænum. Það er alveg ynd­is­legur staður,“ segir Hanna. Þau Ólafur kynnt­ust fyrst á bernsku­árum og urðu síðar ást­fangin. „Við gift­umst og bjuggum alltaf úti í sveit­inni,“ segir Hanna og vísar þá í Árbæinn en þau hjónin byggðu þar ein­býl­is­hús í Klapp­ar­ási eftir stutt stopp í Hraun­bænum. 

„Og Óli. Hann var alltaf með mér, við hlið­ina á mér. Við vorum bara alltaf saman.“
María Jóhanna Lár­us­dóttir

Í dag býr Ólafur einn í íbúð á Mörkinni en Hanna er á hjúkr­un­ar­heim­il­inu þar sem hún fær aðhlynn­ingu. Það skiptir hjónin máli að hlúa að hvort öðru og verja tíma saman á hverjum degi. „Við hitt­umst tvisvar á dag. Svo förum við í leik­hús og á Sin­fón­í­una,“ segir Ólafur. „Okkur þykir gaman að fara niður í bæ, taka þátt í mann­líf­inu og skoða Reykja­nes og höf­uð­borg­ar­svæðið.“ Hanna jánkar því. „Við höfum alltaf fylgt því eftir.“

Hanna segir sterkar skoð­anir vera eitt af því sem geti hjálpað fólki að lifa góðu lífi. Sjálf hefur hún ekki veigrað sér við að fylkja sér á bak við mál­efni sem standa henni nærri. Ólafur horfir stoltur á eig­in­konu sína þegar hann lýsir rétt­læt­is­kennd hennar. Á níunda ára­tugnum var Hanna ein 200 kvenna frá Norð­ur­lönd­unum sem gengu frá New York-ríki í Banda­ríkj­unum alla leið til Washington. Gangan tók heilan mánuð. „Hún er mik­ill frið­ar­sinni og gekk með vin­konu sinni, Guðrúnu Agn­ars­dóttur, lækni og alþing­is­manni,“ segir Ólafur. „Frið­ar­gangan var gegn kjarn­orku­væð­ingu í Vestur-Evrópu.“

„Svo er hún einn af stofn­endum Kvenna­list­ans og hún hefur mjög sterkar skoð­anir í fem­inískum málum.“ Hanna tekur undir með Ólafi og brosir.

Grein eftir HönnuBrot úr grein sem birt­ist í Morg­un­blað­inu árið 1986 þar sem Hanna ritar um fram­boð Kvenna­list­ans.

Áhugamálin vega þungt

Til þess að halda lík­am­anum hraustum leggur Ólafur áherslu á að stunda lík­ams­rækt og gerir það af miklu kappi. „Ég fer tvisvar í viku í sund­leik­fimi, svo fer ég í kín­verska leik­fimi á mið­viku­dögum og svo reyni ég að ganga þrjá til fimm kíló­metra minnst fjóra daga í viku.“ Auk þess hjólar hann tvisvar í viku í tutt­ugu mín­útur. „Ég hef nú alltaf verið mik­ill „action“ maður þannig lagað. Þetta hentar mér ágæt­lega,“ segir Ólafur og hlær þegar blaða­kona segir hann vera eins og atvinnu­mann að æfa svona mikið. Hann útskýrir að það sé sitt mark­mið að reyna að nýta tím­ann á jákvæðan hátt í það sem er upp­byggi­legt, því að það skipti máli. 

Ólafur hefur einnig mikið dálæti á tón­list og segir nóg að gera í félags­líf­inu á Mörkinni ef fólk sæk­ist eftir því. Þau Hanna fara til dæmis reglu­lega á kaffi­hús á svæð­inu. „Það er sótt af mörgum þannig að það er ekki langt að sækja ef þú vilt hitta fólk. Þá get­urðu ein­fald­lega bara farið niður og sest hjá ein­hverjum. Það er tekið vel á móti þér. Við förum oft þangað.“

Það er ljóst að jákvætt hug­ar­far, félags­líf og sterkar skoð­anir hafa hjálpað Ólafi og Hönnu að eiga gott líf. En lífið er sveiflu­kennt og erf­iðir tímar óhjá­kvæmi­legir.

Lífið er sveiflu­kennt, hvernig er best að takast á við krefj­andi tíma að ykkar mati?

„Það er til dæmis með því að hafa áhuga­mál,“ svarar Hanna. „Já,“ segir Ólafur og bætir við: „Og ákveðið æðru­leysi og þol­in­mæði til að umbera mót­læti. Það fylgir aldr­inum að maður getur ekki gert nærri því það sama og áður og þarf að sætta sig við breyt­ing­una. Það er alltaf eitt­hvað sem lífið hefur upp á að bjóða.“ Hann telur það skipta lyk­il­máli að taka þátt í að lifa. „Lífið stoppar ekki, það heldur alltaf áfram.“

Það getur hins vegar verið of vara­samt að lifa of hratt að mati Ólafs. „Ég held að Íslend­ingar lifi of hratt fyrir stund­ina. Það er of mikil spenna og ásókn í vind. Það þarf að læra að hægja á og njóta augna­bliks­ins, ég held að það vanti í íslenska menn­ingu.“ 

„Það þarf að læra að hægja á og njóta augna­bliks­ins, ég held að það vanti í íslenska menn­ingu“
Ólafur H. Ragn­ars­son

Húmorinn hjálpar

Ólafur H. Ragn­ars­sonEr stoltur af fjöl­skyld­unni sinni og barna­börn­unum.

Eitt af því sem Ólafur og Hanna hafa nýtt sér til þess að finna gleð­ina í líf­inu er að sjá spaugi­legar hliðar lífs­ins. Það er þeim hjónum hjart­ans mál að halda í hlát­ur­inn. Þess vegna segj­ast þau hafa gaman af því að fara á leik­rit sem eru í létt­ari kant­inum.

Ólafur segir nóg af svart­nætti til staðar og því hjálpi að halda í kómísku hliðar lífs­ins. Hann lýsir Hönnu sem sér­stak­lega brosmildri mann­eskju. „Hún gefur mikið af sér. Þess vegna á hún svona margar vin­konur. Hún hefur til­hneig­ingu til að sjá þessar kómísku hliðar í líf­inu.“ Hanna svarar að rétti­lega sé hún jú alltaf bros­andi. 

Aðspurð hverju þau eru stolt af í líf­inu svarar Hanna: „Ég er til dæmis stolt af því að hafa viljað hag kvenna sem mestan og ég hef bara stutt það af alefli, fullum fetum.“ 

Ólafur segir: „Ég er stoltur af fjöl­skyld­unni minni, sonum okkar þremur og barna­börnum. Stoltur að hafa verið far­sæll í starfi sem lög­fræð­ingur. Það veitir mér gleði að hafa lokið starfi mínu far­sæl­lega. Svo er það nátt­úr­lega gleði­efni að tala íslensku svona í ljósi þess að íslenski menn­ing­ar­arf­ur­inn liggur í tungu­mál­inu og sög­unni okkar. Það þarf að varð­veita vel bók­mennta­arf­inn okkar. Ég er stoltur af því sem Íslend­ingur að við eigum þennan bók­mennta­arf.“ 

„Ég er stoltur af því sem Íslend­ingur að við eigum þennan bók­mennta­arf“
Ólafur H. Ragn­ars­son

Hvað er það besta við að eld­ast?

Þau svara bæði því að það sé gaman að hafa meiri tíma til að sinna per­sónu­legum áhuga­málum. „Og að fylgj­ast með barna­börn­unum,“ bætir Ólafur við með hlýjan svip en þau hjónin eiga sex barna­börn. „Já,“ svarar Hanna. „Alveg æðis­lega gaman.“

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár