Dag­vist­un­ar­vand­inn Fæð­ing­ar­or­lof á Íslandi er alls 12 mán­uðir en börnum er ekki tryggður réttur í lögum til þess að kom­ast að á leik­skóla að því loknu. Mynd: Heiða Helgadóttir

Geta lent í miklum mínus ef þær fá ekki leikskólapláss

Ein­stæðar mæður sem ekki fá leik­skóla­pláss fyrir börn sín eru lík­legar til þess að enda með nei­kvæðar tekjur í lok mán­aðar og getur staðan jafn­vel orðið svo slæm að þær enda í 140 þús­und króna mínus í lok mán­aðar. Þetta leiðir ný meist­ara­rann­sókn Þóru Helga­dóttur í ljós.

Þóra Helga­dóttir átti eins árs gamlan son þegar hún fór að velta fyrir sér hvað hún vildi rann­saka í meist­ara­námi sínu í fjár­málum fyr­ir­tækja. Vinkonur hennar voru líka með ung börn og voru farnar að finna fyrir löngum biðlistum leik­skól­anna á eigin skinni. 

„Ég fékk þennan dag­vist­un­ar­vanda ekki út úr hausnum á mér,“ segir Þóra, sem ákvað að ein­beita sér að kostn­aði for­eldra við það að hafa ekki úrræði á vegum sveit­ar­fé­laga að loknu fæð­ing­ar­or­lofi. 

Fæð­ing­ar­or­lof á Íslandi er alls 12 mán­uðir en börnum er ekki tryggður réttur í lögum til þess að kom­ast að á leik­skóla að því loknu. Því tekur gjarnan við svo­kallað umönn­un­ar­bil, mán­uðir eða jafn­vel heilt ár, þar sem for­eldrar þurfa að finna önnur dag­vist­un­ar­úr­ræði en leik­skóla fyrir börnin sín. Oft leita for­eldrar til dag­for­eldra en biðlist­arnir hjá þeim eru langir og því ekki öruggt að börnin kom­ist að þar. Stundum geta ætt­ingjar tekið …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MÁ
    Margrét Ásgeirsdóttir skrifaði
    Lausnin á vanda foreldra er lengra fæðingarorlof. Hér eru foreldrar ungra barna vinnuafl sem atvinnulífið gjörnýtir. Ekki er nóg að byggja hús undir börn. Ef velferð barna væri í fyrirrúmi í íslensku samfélagi einblíndum við ekki á að koma þeim fyrir á stofnun allan sinn vökutíma frá 12 mánaða aldri. Ung börn eru háð umönnun fullorðins fólks og þurfa ekki síður en fuglsungar að vera undir væng foreldra þar til þau hafa þroska til að sjá um sínar frumþarfir: gengið, borðað sjálf, farið á salerni, notið samvista við önnur börn og óttast ekki aðskilnað við foreldra. Foreldrar ættu að vera búnir að koma barni á þann stað 24 mánaða. Ungt fólk hefur lítinn áhuga á kennaranámi. Velur frekar viðskiptafræði, hagfræði, stjórnmálafræði og lögfræði. Þessi fög eru kenndi í fleiri háskólum en menntunarfræði. Mikil samkeppni er um vinnu á þeim markaði. Enginn samkeppni er um kennarastarf í leik- og grunnskóla. Hvernig stendur á því? Tímin til kominn að rannsaka starfsval og hvaða ástæður liggja að baki því. Síðan þarf að vinna með þær niðurstöður og búa til betra samfélag fyrir börn.
    0
  • JA
    Jón Arnarson skrifaði
    Það rennur ómælt fé úr sjóðum okkar landsmanna ef þrengir örlítið að vegna ætlaðrar pestar, til ótrúlegustu aðila.
    Það sem fjallað er um hér – sem og margt annað sem ekki eru í náðinni hjá Bjarna Ben – er okkar samfélagi til smánar!
    Ef samfélagið er ekki fært um að standa sig, þá á það að styrkja þá sem þeir geta ekki þjónað, með beinu gjaldi sem því nemur, að viðbættu afleiddum kostnaði.
    Öll borgum við skatta og útsvar að auki sem er tekju óháð.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár