Þessi grein birtist fyrir meira en ári.

Veiðigjöld munu hækka en óljóst er um hversu mikið

Greint var frá því í vor að veiði­gjöld muni hækka ár­ið 2025. Sú ætl­an er stað­fest í skýrslu „Auð­lind­anna okk­ar“ en ekk­ert er sagt um hversu mik­ið. Það kost­ar rík­ið átta millj­arða króna á ári að sinna rann­sókn­um, þjón­ustu, eft­ir­liti og um­sjóð með fisk­veið­um. Of­an á þá tölu verð­ur að koma bein og sýni­leg hlut­deild þjóð­ar­inn­ar í af­komu við fisk­veið­ar sem henni er tryggð í lög­um.

Veiðigjöld munu hækka en óljóst er um hversu mikið
Ráðherra Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra ýtti verkefninu „Auðlindirnar okkar“ úr vör í maí í fyrra. Niðurstaða þeirrar vinnu liggur nú fyrir. Mynd: Stundin / Davíð Þór

Veiðigjöld verða hækkuð. Hvernig framtíðarfyrirkomulag greiðslu þeirra verður og hversu miklum viðbótartekjum þau muni skila í ríkissjóð er þó enn óljóst og á eftir að útfærast nákvæmlega. Þetta kom fram í kynningu á vinnu „Auðlindarinnar okkar“, verkefnis sem Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra setti af stað í maí í fyrra. Hóparnir sem féllu undir verkefnið skiluðu sameiginlegri lokaskýrslu í dag. 

Raunar eru ekki ný tíðindi að veiðigjöld muni hækka. Ríkisstjórnin boðaði þá hækkun í fjármálaáætlun sinni fyrir árin 2024 til 2028 sem birt var í mars síðastliðnum. Þar kom fram að veiðigjaldið yrði hækkað á stærri samþættar útgerðir en á móti yrði frítekjumark hækkað til hagsbóta fyrir litlar og meðalstórar útgerðir. Áætlað var að þessar breytingar myndu skila auknum tekjum í ríkissjóð frá og með árinu 2025. Hvernig þetta yrði gert var ekki útfært frekar í áætluninni en fyrir lá að hækkunin yrði á grundvelli niðurstöðu „Auðlindarinnar okkar“. 

Í skýrslunni sem birt var í dag leggur starfshópurinn sem falið var að skoða þetta til að ný og einfaldari leið verði farin við álagningu og innheimtu veiðigjalda, að gjaldið verði lagt á aflaverðmæti hverrar veiðiferðar og þannig gjaldfært í rauntíma. 

Tillaga hópsins samkvæmt skýrslunni er sú að veiðigjaldið verði í samræmi við metna auðlindarentu af fiskveiðum. Starfshópurinn telur að ekki séu vísbendingar um að álagt veiðigjald víki að verulegu marki frá því sem lagt er upp með í lögum um það, en þar segir að gjaldið eigi að vera um 33 prósent af metinni auðlindarentu af fiskveiðum. 

Einnig kæmi til greina að mati starfshópsins að viðhalda núverandi kerfi veiðigjalda en meta reiknistofn veiðigjalds í því skyni að hann endurspegli sem best auðlindarentu. Þar þyrfti sérstaklega að horfa til áhrifa fjármagnskostnaðar, aukafyrninga og milliverðlagningar.

Þorri þjóðarinnar segir að gjöldin eigi að vera hærri

Í lögum um veiðigjald eru sett fram skýr markmið. Þeir fjármunir sem innheimtast vegna veiðigjalda eiga að „mæta kostnaði ríkisins við rannsóknir, stjórn, eftirlit og umsjón með fiskveiðum og fiskvinnslu og til að tryggja þjóðinni í heild beina og sýnilega hlutdeild í afkomu við veiðar á nytjastofnum sjávar.“ 

Mat matvælaráðuneytisins, sem sett er fram í skýrslunni, er að kostnaður við þjónustu ríkisins við sjávarútveg sé um átta milljarðar króna á ári. Því er ljóst að veiðigjaldið þarf að ná að minnsta kosti inn þeirri tölu og til viðbótar að „tryggja þjóðinni í heild beina og sýnilega hlutdeild í afkomu við veiðar á nytjastofnum sjávar.“ 

Miklar deilur hafa verið um þessi mál – hvernig eigi að skipta afkomunni af fiskveiðum milli útgerða annars vegar og almennings, eigenda auðlindarinnar, hins vegar – áratugum saman. Í könnun sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands gerði fyrir matvælaráðuneytið í tengslum við vinnu við „Auðlindina okkar“ kom fram að rúmlega 83 prósent aðspurðra töldu að auðlindagjöld sem leggjast á geirann ættu að vera hærri. Þar af töldu 57,3 prósent að þau hættu að vera mun hærri. Einungis kjósendur eins flokks á Íslandi, Sjálfstæðisflokks, eru að meirihluta sátt við fiskveiðistjórnunarkerfið

Alþýðusamband Íslands (ASÍ) birti greiningu í febrúar síðastliðnum þar sem sagði að auðlindarenta í sjávarútvegi hefði verið 56 milljarðar króna á árinu 2021. Með auðlindarentu er átt við þá arðsemi sem verður til vegna þess að stjórnvöld hafa takmarkað aðgengi að auðlindinni, með úthlutun  aflaheimilda. Veiðigjald ársins 2021 var hins vegar 7,9 milljarðar króna, eða um 14 prósent af auðlindarentunni, og þar með langt frá 33 prósent viðmiðinu. 

Það var þó umtalsvert meira en útgerðirnar greiddu í veiðigjald árið 2020, þegar það var einungis 4,8 milljarðar króna, en umtalsvert minna en árið 2018, þegar það var 11,3 milljarðar króna. Í fyrra var gjaldið 7,9 milljarðar króna og á fyrri hluta yfirstandandi árs greiddu útgerðirnar 5,6 milljarða króna í veiðigjald. 

Gríðarlegur hagnaður á síðustu árum

Frá árinu 2009 og út árið 2021 högnuðust sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki lands­ins um 533 millj­arða króna, samkvæmt gagnagrunni sem Deloitte heldur úti um geirann. Mestur var hagn­að­ur­inn í krónum talið á tíma­bil­inu á síðastnefnda árinu, þegar geir­inn hagn­að­ist um 65 millj­arða króna. Hann jókst um 124 pró­sent á milli ára og var 36 millj­örðum krónum meiri þá en árið 2020.

Á sama tíma­bili, frá 2009 og út árið 2021, hefur sjáv­ar­út­veg­ur­inn greitt 219,3 millj­arða króna í opin­ber gjöld, þar af 85,9 millj­arða króna í veiði­gjöld. Auk þess er um að ræða tekju­skatt og tryggingagjald. Sú tala dregst frá áður en hagn­aður sjá­v­­­ar­út­­­vegs­­fyr­ir­tækja er reikn­að­ur auk þess sem búið er að taka til­lit til fjár­fest­ingar í geir­an­um, sem býr til eign. 

Opin­beru gjöldin voru 22,3 millj­arðar króna árið 2021, sem var 28 pró­sent meira en árið 2020. Á sama tíma og hagn­að­ur­inn sem sat eftir hjá sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækj­unum jókst um 36 millj­arða króna milli ára juk­ust opin­beru gjöldin um 4,9 millj­arða króna.

Hagn­aður geirans áður en hann greiddi veiði­gjöld, tekju­skatt og tryggingagjald í rík­is­sjóð var sam­tals 752,3 millj­arðar króna frá 2009 og út árið 2021. Af þessum hagn­aði sat tæp­lega 71 pró­sent eftir hjá útgerðum lands­ins en rétt um 29 pró­sent fór í opin­ber gjöld.

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár