Þessi grein birtist fyrir rúmlega 9 mánuðum.

Skemmdarverk á söfnum myndu hafa ráðstafanir í för með sér

Ís­lensk lista­söfn hafa slopp­ið við að­gerð­ir hópa sem berj­ast fyr­ir lofts­lags­mál­um en er­lend­is hafa heims­fræg mál­verk feng­ið yf­ir sig máln­ingu og súpu svo eitt­hvað sé nefnt. Safn­stjór­ar hér­lend­is segj­ast sýna mál­staðn­um ákveð­inn skiln­ing en benda jafn­framt á að þeirra helsta hlut­verk er að standa vörð um lista­verk­in. Ekki hef­ur ver­ið grip­ið til sér­stakra ráð­staf­ana á ís­lensk­um lista­söfn­um vegna mót­mæla­gjörn­inga er­lend­is.

Skemmdarverk á söfnum myndu hafa ráðstafanir í för með sér
Sólblóm í súpubaði Þær Phoebe Plummer og Anna Holland límdu sig fasta við hlið eins þekktasta málverks Vincents van Goghs í National Gallery í London eftir að hafa skvett yfir það tómatsúpu. Þessi mótmælagjörningur aðgerðahópsins Just Stop Oil er einn af mörgum þar sem mikilsvirt listasafn er nýtt sem svið til þess að koma skilaboðum á framfæri. Mynd: Just Stop Oil

Við horfum aftan á tvo gesti National Gallery í London sem standa frammi fyrir einu þekktasta málverki Vincents van Goghs, mynd af sólblómum í vasa sem hann málaði árið 1888 til að skreyta heimili sitt í aðdraganda komu vinar síns, Paul Gauguin, til Arles. Ungu konurnar tvær eru klæddar hvítum stuttermabolum með mynd af hauskúpum. Áður en við vitum af hafa þær skvett úr tveimur dósum af tómatsúpu yfir sólblómin. Þessi sýn vekur vafalaust upp ónotatilfinningu hjá mörgum sem horfa á. Í myndbandinu heyrist líka í gestum lýsa undrun sinni, einn þeirra hrópar af skelfingu yfir athæfinu og loks er kallað á öryggisverði. Allt tekur þetta innan við tíu sekúndur. 

Konurnar tvær, sem eru aðgerðasinnar og tilheyra hreyfingunni Just Stop Oil, hópi sem berst aðallega gegn áframhaldandi olíuvinnslu, líma sig fasta við vegginn. „Hvort er meira virði, listin eða lífið? Er hún meira virði en matur? Meira virði en réttlæti? …

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár