„Græðgin er að drepa okkur“

Fjórir ein­stak­lingar svör­uðu því hver þeirra drauma­laun eru og gisk­uðu á það hverjar hæstu heild­ar­árs­tekjur síð­asta árs voru. Ekkert þeirra hefur áhuga á að kom­ast á hátekju­list­ann.

Gestir og gang­andi í Kringl­unni voru beðin um að giska á hæstu heild­ar­árs­tekjur Íslend­inga á síð­asta ári. Svörin voru ólík og nokkrum millj­örðum of lág. Einnig var fólk beðið um að segja þá upp­hæð sem þau myndu veita sér í laun ef það væri undir þeim sjálfum komið. Öll sögð­ust þau sátt við laun sem væru á bil­inu 600–800 þús­und krónur, en það er rétt undir með­al­launum þeirra sem voru í fullri vinnu árið 2022 sam­kvæmt Hag­stof­unni. 

Brjálæði

Gríma Kóps heyrði að ein­hver hefði verið með 42 millj­ónir á mán­uði á síð­asta ári. Aðspurð hverjar hún haldi að mestu heild­ar­árs­tekj­urnar árið 2022 hafi verið svarar hún: „Alltof mikið.“

Gríma KópsSegir fólk ekki þurfa margar millj­ónir á mán­uði.

Það voru fjórir millj­arðar, hvað finnst þér um það?

Mér finnst þetta brjál­æði. Bara munur á fólki í tekjum er brjál­æði.

Finnst þér að það ætti að vera eitt­hvert þak á því hvað ein­stak­lingur getur fengið háar tekjur?

Já, mér finnst það. Það mætti alveg vera.

Hverju myndi það breyta?

Mér finnst nátt­úr­lega að þeir sem eru með lægstu launin eigi að fá hærri laun, mann­sæm­andi laun. Mér finnst brjál­æði þegar fólk er með margar millj­ónir á mán­uði því við vitum að við þurfum ekki margar millj­ónir á mán­uði. Við eigum bara að vera svo­lítið raunsæ og ekki komin út í græðgi. Græðgin er að drepa okkur.

Værir þú til í að vera á svona hátekju­lista ein­hvern tím­ann á lífs­leið­inni?

Nei. Mér finnst nóg að hafa bara nóg fyrir mig. 

Ein spurn­ing að lokum, ef þú fengir að velja launin þín alveg sjálf og gætir gefið þér hvað sem er, hvað mynd­irðu greiða þér í laun?

Mér finnst allt í lagi að vera með svona kannski 700–800 þús­und krónur á mán­uði. Mér finnst að það ætti að vera svona ... en ef fólk á fyr­ir­tæki og gengur vel finnst mér ekk­ert óeðli­legt að fólk geti borgað sér góð laun. En þegar banka­stjór­arnir eru með öll þessi laun, sem bera enga ábyrgð, bara bullshit.

Ekki meira en forsetinn

Leifur Guð­munds­son er hugsi yfir því hverjar hæstu heild­ar­árs­tekj­urnar hafi verið. „Ég bara get ekki ímyndað mér það. Ég veit að það er alveg svaka­lega mikið.“

Leifur Guð­munds­sonTelur það ekki gott að vera of ríkur.

Rúmir fjórir millj­arðar. Hvað finnst þér um það?

Ég bara ... já, já, það er alltof mikið. Ég kann ekki að ræða svona háar tölur.

Finnst þér að það ætti að vera eitt­hvert þak á því hvað fólk getur fengið miklar tekjur?

Já, það finnst mér. Bara ekk­ert meira en for­set­inn alla­vega. 

For­set­inn væri þá þakið?

Já, mér finnst það bara eðli­legt. 

Værir þú til í að vera á svona hátekju­lista ein­hvern tím­ann á lífs­leið­inni?

Nei, ég held að það sé ekki gott að vera svona ríkur.

Ef þú gætir gefið þér hvað sem er í laun. Ef þú fengir bara alveg að ráða, hver væri svona þín drauma­tala?

600–800 þús­und krónur í mesta lagi. Ég hef ekk­ert að gera með meira. 

Til hamingju

Viktor Guð­laugs­son giskar á að mestu heild­ar­árs­tekj­urnar hafi verið 300 millj­ónir króna. 

Viktor Guð­laugs­sonFinnur ekki fyrir löngun til að vera á hátekju­lista.

Rúmir fjórir millj­arðar.

Heyrðu, það ... ég óska við­kom­andi bara til ham­ingju.

Finnst þér að það ætti að vera eitt­hvert þak á því hvað fólk getur verið með miklar heild­ar­árs­tekjur? 

Ég held að það sé mjög erfitt að eiga við það því að ég veit ekki eig­in­lega hver ætti að setja þær reglur og hvernig ætti að fram­fylgja þeim. Þannig að ég sé nú ekki mikla mögu­leika á því, hins vegar held ég að það væri kannski ráð að skatta meira þessi ofur­laun svoköll­uðu. Ég held að það væri kannski svona það sem við gætum gert, en ég held að þessu verði aldrei hand­stýrt.

Værir þú til í að vera á svona lista ein­hvern tím­ann á lífs­leið­inni?

Nei, ég held að ég hafi engar áhyggjur af því af því að mér liði ekk­ert betur með það.

Ef þú fengir að stjórna því alveg hvað þú værir með í mán­að­ar­laun, hvaða upp­hæð held­urðu að þú myndir velja þér?

Ég myndi nú bara velja mér upp­hæð sem myndi nægja mér vel til fram­færslu svo ég gæti lifað svona mann­sæm­andi lífi og sú tala er nátt­úr­lega afstæð því að auð­vitað er lífs­stíll fólks mis­jafn og þarfir manna og lífstil­gangur mjög mis­jafn þannig að ég held að það sé erfitt að nefna ein­hverja tölu. Ég er nú eft­ir­launa­maður með þokka­leg eft­ir­laun og ég er bara mjög sáttur með það. 

Heimurinn þarf ekki milljarðamæringa

„Svona 300 millj­ónir. Ég veit það ekki,“ giskar Fanndís Fjóla Hávarð­ar­dóttir á að hæstu heild­ar­árs­tekjur síð­asta árs hafi verið.

Fanndís Fjóla Hávarð­ar­dóttirMyndi borga sér 800 þús­und krónur á mán­uði og málið dautt.

Sá sem var með mestu heild­ar­árs­tekj­urnar fékk rúma fjóra millj­arða.

Já. Are we sure? Fjórir millj­arðar!

Finnst þér að það ætti að vera eitt­hvert þak á hvað fólk getur grætt mikið eða á það bara að vera frjálst öllum að fá það sem þau vilja?

Málið er að heim­ur­inn þarf ekki millj­arða­mær­inga, það er bara málið. Þeir þurfa það ekki. Af hverju eru þið að hoarda svona mik­inn pen­ing? Það er engin ástæða til þess nema bara gloatið að eiga pen­ing þannig, já.

Værir þú til í að vera á svona lista ein­hvern tím­ann á lífs­leið­inni?

Nei. Ég er ekki nógu mik­il­væg eða rík til að geta farið á þennan lista. 

Ef þú fengir að velja hvaða tölu sem er í mán­að­ar­laun, hvaða tölu held­urðu að þú myndir velja?

Fyrir eða eftir skatt?

Fyrir skatt.

Segi bara 800 þús­und fyrir skatt og málið dautt. Ég skal bara sætta mig við það.

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hátekjulistinn 2023

Ójöfnuður ósanngjarn en samt nauðsynlegur
SagaHátekjulistinn 2023

Ójöfn­uður ósann­gjarn en samt nauð­syn­legur

Nið­ur­stöður nýlegrar rann­sóknar á við­horfum íslensks almenn­ings til ójafn­aðar og félags­legs rétt­lætis sýna að stærstur hluti almenn­ings er óánægður með tekju­ó­jöfnuð og telur ójöfnuð við­hald­ast vegna þess að hinir ríku og valda­miklu hagn­ast á honum. Sami almenn­ingur vill hins vegar ekki útrýma ójöfn­uði með öllu vegna trúar á opin tæki­færi og verð­leika.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár