Líkir ákærunni við tilburði nasista, fyrrum Sovétríkjanna og einræðisherra

Donald Trump, fyrr­ver­andi for­seti Banda­ríkj­anna og fram­bjóð­andi til næstu kosn­inga árið 2024, hefur verið ákærður fyrir að halda því fram að nið­ur­stöður síð­ustu for­seta­kosn­inga væru rangar. Trump gæti átt yfir höfði sér margra ára fang­els­is­vist.

Líkir ákærunni við tilburði nasista, fyrrum Sovétríkjanna og einræðisherra
Donald Trump Hefur verið ákærður fyrir lygar sínar um nið­ur­stöður for­seta­kosn­ing­ana árið 2020. Mynd: afp

Donald Trump fyrrum Banda­ríkja­for­seti vermir nú sviðs­ljósið vest­an­hafs vegna stöðu sinnar sem sak­born­ingur í máli banda­ríska rík­is­ins gegn honum. Jack Smith, sér­stakur sak­sókn­ari, sem er skip­aður af dóms­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna, lagði fram ákæruna og óskaði jafn­framt eftir því að málið fengi for­gangs­með­ferð. „Ég hvet alla til þess að lesa ákæruna í heild,“ sagði Smith á fjöl­miðla­fundi og bætti við að árásin á þing­hús Banda­ríkj­anna hefði að hluta til verið knúin áfram af lygum Trump. 

Ákæran á hendur Trump er fjór­þætt, og er hann meðal ann­ars sak­aður um að hafa  vís­vit­andi haldið því fram að nið­ur­stöður kosn­ing­anna 2020 væru rangar, þrátt fyrir að vita betur. Með því á hann að hafa veikt lýð­ræð­is­legar stoðir Banda­ríkj­anna. Trump er einnig kærður fyrir sam­særi gegn rétt­indum almenn­ings. Hefði honum tek­ist ætl­un­ar­verk sitt um að krukka í kosn­ing­unum, þá hefði hann brotið á rétt­indum fjölda rík­is­borg­ara sem kusu Biden með lög­legum hætti. Verði Trump dæmdur sekur gæti hann átt yfir höfði sér margra ára fang­els­is­vist.

Árás­armaðurKlæðir styttu með Make America Great Again der­húfu Trump og fána.

Ágengni og áróður Trump, á meðan á kosn­ingum stóð og þegar þeim var lokið, náði ekki ein­göngu til almennra kjós­enda heldur not­aði hann stöðu sína til að þrýsta á emb­ætt­is­menn og starfs­fólk stofn­ana. Til að mynda hringdi hann í rík­is­stjóra Georg­íu­fylkis, Brad Raf­fen­sperger, og bað hann að útvega sér eitt atkvæði í við­bót til þess að sigra Biden. Í sím­tal­inu sagði hann: „Það sem ég vil gera er þetta. Ég vil bara finna 11.780 þús­und atkvæði.“ Einnig hélt þáver­andi for­seti því fram að 5.000 manns hefðu kosið í nafni lát­inna ein­stak­linga og taldi þeirra atkvæði þar með ógild. Þetta reynd­ist ekki vera rétt. Í sam­tal­inu telur Trump upp mögu­legar ástæður þess að telja þurfi atkvæði kosn­ing­anna aftur en þær ástæður stand­ast ekki rök. Með þessu ætl­aði Trump að tryggja sigur sinn á Biden og koma í veg fyrir að hann þyrfti að láta af völdum, en hann hélt því linnu­laust fram að ekki væri að marka kosn­ing­arnar. 

Biden og Trump hnífjafnir

„Lög­leysan í þessum ákærum á hendur Trump Banda­ríkja­for­seta og fylg­is­manna hans minna á nas­ista Þýska­lands á fjórða ára­tug síð­ustu aldar, fyrrum Sov­ét­ríkin og önnur ein­ræð­is­ríki,“ segir í til­kynn­ingu frá kosn­inga­skrif­stofu Trumps. Þá segir einnig að Trump hafi ávallt fylgt lögum og virt stjórn­ar­skrá Banda­ríkj­anna og þiggi ráð frá hátt­settum lög­fræð­ingum. 

Til­kynn­ingKosn­ingateymi Trump gagn­rýnir ákæruna og stjórn Biden.

For­set­inn fyrr­ver­andi hefur tví­vegis verið ákærður til emb­ætt­is­missis af neðri deild banda­ríska þings­ins, full­trúa­deild­inni, en í bæði skiptin var hann sýkn­aður af öld­unga­deild­inni. Fyrri ákæran sneri að mis­beit­ingu valds en sú síð­ari um hlut hans í árásinni á þing­hús Banda­ríkj­anna 6. jan­úar 2021.

Donald Trump og Joe Biden hafa báðir til­kynnt að þeir bjóði sig fram til for­seta árið 2024. Nýleg könnun Siena háskóla og The New York Times mældi fylgi þeirra hnífjafnt. Aðrar nið­ur­stöður benda til að kjós­endur vilji hvor­ugan þeirra í emb­ætti for­seta. 

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Stefán Agnar Finnsson skrifaði
    Fyrir hundrað árum gerði Hitler misheppnaða tilraun til valdaráns í Þýskalandi, þ.e. Bjórkjallarauppreisnin. Fyrir bragðið var hann dæmdur í fangelsi. Þangað nær samlíkingin við Trump vissulega.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár