Carlsberg í Rússlandi ekki lengur danskt

Þann 19. júlí til­kynnti danski bjór­fram­leið­and­inn Carlsberg að Rússar hefðu yfir­tekið, og þar með þjóð­nýtt, verk­smiðjur fyr­ir­tæk­is­ins í Rúss­landi. Það var gert sam­kvæmt fyr­ir­skipun Pútíns for­seta sem setti góð­vin sinn yfir fyr­ir­tækið. Fleiri dönsk stór­fyr­ir­tæki ótt­ast að þeirra bíði sömu örlög.

Carlsberg í Rússlandi ekki lengur danskt
Taka til sín bjór­inn líka Carlsberg er nýjasta dæmið um erlend fyr­ir­tæki sem Rússar hafa tekið yfir og þjóð­nýtt.

Í mars á síð­asta ári, skömmu eftir inn­rás Rússa í Úkraínu, tillkynnti danski bjór­fram­leið­and­inn Carlsberg að öll fram­leiðsla á vegum fyr­ir­tæk­is­ins í Rúss­landi yrði stöðvuð, um óákveð­inn tíma, eins og það var orðað. Nokkru síðar til­kynnti fyr­ir­tækið að það hygð­ist selja verk­smiðjur sínar í land­inu en fram­leiðsl­unni yrði haldið áfram uns kaup­andi hefði fund­ist. Baltika Breweries, eins og hið rúss­neska dótt­ur­fyr­ir­tæki Carlsberg heitir, er með átta verk­smiðjur í Rúss­landi og var fyrir inn­rás­ina með tæp­lega 9 þús­und starfs­menn og um 27 pró­senta mark­aðs­hlut­deild á rúss­neska bjór­mark­aðnum. Rök stjórn­enda Carlsberg fyrir því að halda fram­leiðsl­unni áfram uns nýr kaup­andi fynd­ist voru ann­ars vegar þau að starfs­menn­irnir héldu vinn­unni og hins vegar að fyr­ir­tæki sem væri í fullum gangi væri sölu­væn­legra en ef fram­leiðslan lægi niðri. Sú ákvörðun stjórn­enda Carlsberg að halda fram­leiðsl­unni áfram mætti mik­illi gagn­rýni heima fyrir í Danmörku og reyndar víðar.

Tilskipun Pútíns

25. apríl síð­ast­lið­inn und­ir­rit­aði Vladimir Pútín til­skipun þess efnis að Rússar geti yfir­tekið erlend fyr­ir­tæki sem starfi í land­inu. Yfirtaka þýðir í raun þjóð­nýt­ing. Með til­skip­un­inni er Rússum heim­ilt að taka í sínar hendur fyr­ir­tæki, að öllu leyti eða að hluta, sem hafa verið í eigu einka­að­ila eða fyr­ir­tækja, erlendra sem inn­lendra. Með þjóð­nýt­ing­unni er við­kom­andi fyr­ir­tæki sett undir stjórn ráðu­neytis eða að stofnað verði opin­bert félag sem fari með stjórn­ina. Þjóð­nýt­ingin getur tekið til allra fyr­ir­tækja, banka, sam­göngu­fyr­ir­tækja og orku­fram­leiðslu­fyr­ir­tækja svo fátt eitt sé nefnt. Á tímum Sov­ét­ríkj­anna voru fyr­ir­tæki iðu­lega þjóð­nýtt með þeim rökum að með því móti yrðu þau eign „fólks­ins“ og lytu stjórn þess. Sú varð þó ekki alltaf, og kannski sjaldn­ast, raunin. 

Góðvinurinn Taimuraz Bollojev kallaður til

Eins og áður var getið var til­kynnt um þjóð­nýt­ingu Rússa á dótt­ur­fyr­ir­tæki Carlsberg, Baltika Breweries, fyrir tíu dögum síðan. Stjórn­endum Carlsberg var ekki fyr­ir­fram til­kynnt um þessa ákvörðun og höfðu ekk­ert um hana að segja. Ákvörð­unin kom „að ofan“.

Þegar ákvörð­unin lá fyrir þurfti að finna hæfan mann til að setj­ast í for­stjóra­stól­inn hjá Baltik Breweries. Pútín leit­aði ekki langt yfir skammt í þeim efnum en fól vini sínum Taimuraz Bollojev for­stjóra­starfið.

Góðvinur PútínsBollojev og Pútín hafa átt eitt og annað saman að sælda í gegnum árin.

Taimuraz Bollojev sem er sjö­tugur að aldri, og útlærður ölgerð­ar­maður, þekkir vel til Baltika Breweries þar sem hann gegndi starfi for­stjóra um 13 ára skeið. Á for­stjóra­árum hans juk­ust umsvif Baltika Breweries mikið og þegar hann lét af for­stjóra­starf­inu árið 2004, og seldi eign­ar­hlut sinn í fyr­ir­tæk­inu, var ölgerðin sú stærsta í Rúss­landi og meðal stærstu fram­leið­enda á sínu sviði í heim­inum.

Eftir árin hjá Baltika Breweries, sem Carlsberg keypti síðar, sneri Bollojev sér að fata­gerð. Samkvæmt til­skipun frá Pútín fékk fata­gerð Bollojev einka­rétt á fram­leiðslu á öllum fatn­aði fyrir rúss­neska her­inn. Árið 2009 varð Bollojev, að beiðni Pútíns, for­stjóri rík­is­fyr­ir­tæk­is­ins Olimp­stroj sem sá  um upp­bygg­ingu allra mann­virkja vegna vetr­ar­olymp­íu­leik­anna í Sotji árið 2014.

Bollojev er fæddur og upp­al­inn í landamæra­hér­að­inu Norður - Ossetíu  í Kákasus og í við­tali við fjöl­miðil í St. Pét­urs­borg kvaðst hann stoltur af upp­runanum. Hann nefndi einnig að bjór væri eft­ir­læt­is­drykkur Osseta.

,,Þeir pen­ingar sjást aldrei aftur“
Peter Chernyshov
fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Carlsberg í A-Evrópu um tap fyr­ir­tæk­is­ins vegna þjóð­nýt­ing­ar­innar.

Bollojev hefur fjöl­mörg áhuga­mál, fyrir mörgum árum stofn­aði hann ásamt Pútín júdó­fé­lag í St. Pét­urs­borg, hann hefur líka mik­inn áhuga á ísknatt­leik og veiðum.  Bollojev er mik­ill áhuga­maður um tón­list, einkum óperur. Í áður­nefndu við­tali nefndi hann Placido Domingo og Luciano Pavarotti sem sína upp­á­halds­söngv­ara.

Hvað verður um Baltika Breweries?

Tapaðir pen­ingarCarlsberg mun verða fyrir um 400 millj­arða tapi vegna þjóð­nýt­ingar Rússa, að því er Peter Chernyshov segir.

Þessa spurn­ingu lagði frétta­maður danska útvarps­ins fyrir Peter Chernyshov, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra Carlsberg sam­steypunnar í nokkrum löndum Austur- Evrópu. Chernyshov kvaðst ekki í vafa um að ætl­unin væri að koma Baltika Breweries í hendur útval­inna holl­vina Pútíns. Hann sagði jafn­framt að lík­lega næmi tap Carlsberg um 20 millj­örðum danskra króna (400 millj­arðar íslenskir) vegna þjóð­nýt­ing­ar­innar. „Þeir pen­ingar sjást aldrei aftur“ sagði Chernyshov.

Fleiri dönsk fyrirtæki gætu farið sömu leið

Jens Worning, fyrr­ver­andi ræð­is­maður Dan­merkur í St. Pét­urs­borg, sagð­ist í við­tali við danska útvarpið telja að fleiri dönsk fyr­ir­tæki með starf­semi í Rúss­landi gætu farið sömu leið og Baltika Breweries. Hann nefndi sér­stak­lega skófram­leið­and­ann Ecco og Rockwoll fyr­ir­tækið sem fram­leiðir stein­ull.

Ecco rekur tvö hund­ruð versl­anir í Rúss­landi og hefur haldið starf­sem­inni óbreyttri eftir inn­rás Rússa í Úkraínu. Fyr­ir­tækið hefur vegna þessa legið undir mik­illi gagn­rýni, ekki síst í heima­land­inu Danmörku. Margir danskir skó­salar hafa hætt sölu á Ecco skóm og selja ein­ungis skó sem til voru á lager, eða búið var að panta fyrir inn­rás­ina. Þótt stjórn­endur Ecco hafi ekki verið fúsir til að upp­lýsa mikið um sam­drátt í fram­leiðslu og sölu er vitað að sam­drátt­ur­inn er veru­legur.

Litlar líkur á þjóð­nýt­ingu EccoJens Worning telur meiri líkur á þjóð­nýt­ingu Rockwool en Ecco.

Áður­nefndur Jens Worning sagð­ist telja meiri líkur á að Rússar myndu þjóð­nýta Rockwool fyr­ir­tækið en Ecco enda væri grund­vall­ar­munur á þessum tveimur fyr­ir­tækjum. Ecco væri fyrst og fremst sölu­fyr­ir­tæki sem seldi skótau, sem ekki væri fram­leitt í Rúss­landi. Ef versl­an­irnar tvö hund­ruð yrðu teknar úr höndum Ecco myndi fyr­ir­tækið ein­fald­lega hætta skó­send­ingum til Rúss­lands. Öðru máli gegnir um Rockwool, fyr­ir­tækið er með fjórar verk­smiðjur í Rúss­landi og um 1.200 starfs­menn. Stein­ull­ar­fram­leiðslan er mjög vél­vædd og krefst til­tölu­lega lít­ils mann­afla. Rúss­neski her­inn hefur um langt ára­bil verið mik­il­vægur við­skipa­vinur Rockwool og stein­ullin sem fram­leidd er í verk­smiðjum fyr­ir­tæk­is­ins í Rúss­landi er ein­ungis seld þar í landi. Jens Birgers­son, fram­kvæmda­stjóri Rockwool sagði nýlega í við­tali við dag­blaðið Politi­ken að stjórn fyr­ir­tæk­is­ins hefði markað þá stefnu að halda fram­leiðsl­unni í Rúss­landi óbreyttri. „Við teljum það skárri kost að eiga og reka verk­smiðj­urnar fjórar áfram en að láta þær í hendur Rússa, sem myndi ger­ast ef við myndum hætta okkar starf­semi í land­inu.“

Þess má í lokin geta að Rússar hafa nýlega þjóð­nýtt franska mjólk­ur­vöru­fram­leiðslu­fyr­ir­tækið Danone. Fyr­ir­tækið var með fram­leiðslu á 13 stöðum í land­inu og rúm­lega 7 þús­und starfs­menn.

Stein­ullin áfram fram­leiddFram­kvæmda­stjóri Rockwool telur skárra að halda fram­leiðslu áfram heldur en að Rússar taki verk­smiðj­urnar yfir.

 

Kjósa
26
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár