„Ég er auðvitað óþreyjufull“

Guðrún Haf­steins­dóttir, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, er ekki sú eina sem er óþreyju­full að taka við emb­ætti dóms­mála­ráð­herra. Allt Suð­ur­kjör­dæmi er óþreyju­fullt að sögn fyrsta þing­manns kjör­dæm­is­ins.

Óþreyjufull
Óþreyju­full Guðrún Haf­steins­dóttir, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, seg­ist auð­vitað vera óþreyju­full að taka við ráðu­neyti. „Það kemur að þessu. Þetta er í höndum for­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins.“ Mynd: Bára Huld Beck

„Ég er auð­vitað óþreyju­full að taka við ráðu­neyti. Það er það sem var búið að lofa,“ segir Guðrún Haf­steins­dóttir, fyrsti þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi. Nú eru 18 mán­uðir liðnir frá myndun starf­andi rík­is­stjórnar og við skipan hennar var til­kynnt að Jón Gunn­ars­son yrði dóms­mála­ráð­herra í mesta lagi í 18 mán­uði. Eftir þann tíma ætti Guðrún að taka við af Jóni.

Eftir að rík­is­stjórnin var mynduð í lok nóv­em­ber 2021 lýsti Guðrún yfir von­brigðum með að Suð­ur­kjör­dæmi, land­fræði­lega stærsta kjör­dæmi lands­ins, ætti ekki ráð­herra frá fyrsta degi þess­arar rík­is­stjórnar. Ágrein­ingur hefur verið um hvenær umræddir 18 mán­uðir eru liðnir. Ekki er ein­hugur um hvenær á að byrja að telja, frá kosn­ingum eða þegar rík­is­stjórnin var kynnt. Sama hvað því líður eru 18 mán­uðir liðnir. Guðrún er ekki sú eina sem er óþreyju­full, …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Allt af létta

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár