Heimshornaflakkari sest að á Sri Lanka

Fjarlæg lönd heill­uðu dreng­inn Björn Pálsson og í rúman ára­tug hefur hann ferð­ast um heim­inn og unnið þess á milli á veit­inga­stöðum víða um heim til að hafa efni á ferða­lög­unum. Hann stofn­aði svo ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tækið Crazy Puffin Adventures sem býður upp á ferða­lög til fram­andi staða og í dag býr Björn á Sri Lanka.

Heimshornaflakkari sest að á Sri Lanka
Björn á kamel­dýra­mark­aði fyrir utan Nouakchott í Márit­aníu. Mynd: Úr einkasafni

Hann fædd­ist í Västerås Í Svíþjóð árið 1989 og þar bjó fjöl­skyldan þangað til hann var tveggja ára en þá var flutt heim til Íslands, nánar til­tekið til Akur­eyrar en faðir hans er þaðan. Hann bjó fyrir norðan þangað til hann flutti að heiman tví­tugur og á æsku­ár­unum æfði hann fót­bolta með KA og svo var hann í tón­list­ar­námi; lærði á klar­inett og síðan voru það trommur og gítar. Snjó­brettið heill­aði þegar hann varð aðeins eldri og lengi var það hans aðal­á­huga­mál.

„Elsti bróðir minn er 13 árum eldri en ég og þegar ég var fimm ára fór hann sem skiptinemi til Puerto Rico. Þá fékk ég fyrst smjör­þef­inn af „exotic-ferða­lögum“ með því að heyra sögur og sjá myndir frá því ævin­týri. Systir mín fór svo sem skiptinemi til Ítalíu þegar ég var átta ára. Að vera vitni að ferða­lögum þeirra svona ungur kveikti strax löngun hjá mér til …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár